Búið að minnka viðurlög við slysasleppingum í frumvarpi um laxeldi

Í stað þess að laxeldis­fyrirtæki geti misst hluta af framleiðslu­heimildum sínum á eldislaxi ef slysa­sleppingar eiga sér stað hjá þeim eiga þau nú að greiða sektir. í öðrum tilfellum eru viðurlögin nú engin.

Sektir ekki kvótamissir
Sektir ekki kvóta­missir Búið er að breyta frum­varpi fyrr­ver­andi mat­væla­ráð­herra, Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þannig að lax­eld­is­fyr­ir­tæki missa ekki lengur kvóta ef til slysa­slepp­ingar kemur hjá þeim heldur þurfa þau að greiða fjár­sektir. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Búið er að draga úr viðurlögum við mistökum og slysum í sjókvíaeldi á laxi í frumvarpi fyrr­verandi matvæla­ráðherra, Svandísar Svavars­dóttur, sem nú hefur verið dreift á þingi. Þetta gerðist í kjölfarið á því að farið hefur verið yfir athuga­semdir og umsagnir um frum­varpið sem meðal annars hafa komið frá hagsmuna­aðilum í laxeldi og einnig í laxveiði og náttúru­vernd. 

Viðurlög við slysa­sleppingum á eldislaxi voru meiri í laga­frumvarpi matvæla­ráðherra þegar það var kynnt í samráðs­gátt stjórn­valda og áttu laxeldis­fyrirtæki að geta misst hluta af framleiðslu­kvóta sínum ef slysa­sleppingar á eldislaxi kæmu upp hjá þeim. Í staðinn eiga þau nú að greiða fjár­sektir. Í öðrum tilfellum er búið að fjarlægja viðurlög alveg við tilteknum slysum og munu laxeldis­fyrirtækin ekki einu sinni þurfa að greiða fjár­sektir.

Í 48. grein frum­varpsins sagði meðal annars um svokallaðan „þekktan strok­atburð“, það er að segja þegar strokinn eldislax finnst og er rakinn til …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/frettir/akvordun-matvaelastofnunar-um-stjornvaldssekt-a-hendur-rekstrarleyfishafa-i-sjokviaeldi-stadfest
    0
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Þeir hafa kannski setið og "leiðrétt" í samlestri svona í lokin hagsmunaaðilarnir? "Mældu rétt stelpa!"
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár