Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Ölmu íbúðafélags, segir fyrirhugaðar breytingar á húsaleigulögum muni vega að samningsfrelsi einstaklinga og draga úr framboði á íbúðum á leigumarkaði.
Í umsögn sem Gunnar Þór, fyrir hönd Ölmu íbúðafélags, sendi til velferðarnefndar Alþingis síðastliðinn mánudag, er farið hörðum orðum um frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra um breytingar á húsaleigulögum. Meginmarkmið frumvarpsins eru að bæta húsnæðisöryggi og réttarvernd leigjenda hér landi.
Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að banna verðtryggingu á skammtíma leigusamningum, efla Kærunefnd húsamála og gera leigusölum skylt að tilkynna leigjendum um forgangsrétt sinn til endurnýjunar á leigusamningi.
Þá er einnig lagt til að koma á almennri skráningarskyldu á leigusamningum í gagnagrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar, svonefnda leiguskrá. Munu upplýsingar úr leiguskránni verða notaðar til þess að upplýsa um markaðsverð leiguhúsnæðis og sporna við óvenjulegum leiguverðshækkunum sem geta átt sér stað þegar leigusamningar eru endurnýjaðir.
Telur leiguverð ekki óeðlilega …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir (5)