Þessi grein birtist fyrir rúmlega 8 mánuðum.

Arctic Fish segir að faraldur laxalúsar hafi leitt til slysasleppingar hjá fyrirtækinu

Nýj­ar skýr­ing­ar en áð­ur hafa kom­ið fram á slysaslepp­ing­unni hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish er að finna í árs­reikn­ingi þess fyr­ir síð­asta ár. Þar seg­ir að lúsafar­ald­ur hjá fyr­ir­tæk­inu hafi leitt til þess að eld­islax­ar sluppu úr sjókví fyr­ir­tæk­is­ins. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Stein Ove-Tveiten seg­ir að laxal­ús­in sé ekki bein ástæða fyr­ir slysaslepp­ing­unni held­ur und­ir­liggj­andi ástæða.

Arctic Fish segir að faraldur laxalúsar hafi leitt til slysasleppingar hjá fyrirtækinu
Arctic Fish segir slysin tengjast Arctic Fish segir að tveir afdrifaríkir atburðir sem komu upp hjá fyrirtækinu í fyrra, slysaslepping á 3500 eldislöxum og lúsafaraldur, tengist með beinum hætti. Myndir Veigu Grétarsdóttur af laxalúsafaraldrinum vöktu mikla athygli í fyrra.

Laxeldisfyritækið Arctic Fish segir að laxalúsafaraldurinn hjá fyrirtækinu í fyrra og afdrifarík slysaslepping tengist með beinum hætti. Arctic Fish segir að „áskoranir“ vegna laxalúsarinnar hafi leitt til slysasleppingar á 3500 eldislöxum í fyrrasumar sem svo syntu upp í laxveiðiár víða um landið. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Arctic Fish fyrir síðasta ár. Þessar skýringar á slysasleppingunni, sem leiddi til fjöldamótmæla á Austurvelli og lögreglurannsóknar, hafa ekki áður komið fram. 

Orðrétt segir um þetta í ársreikningi Arctic Fish: „Auk þess leiddu áskoranir út af smiti vegna laxalúsar um sumarið og haustið til slysasleppingarinnar í kvíastæði okkar í Kvígindisdal í ágúst.“ Á öðrum stað í ársreikningnum segir orðrétt: „Áskoranir vegna lúsasmits leiddu til slysasleppingar í Kvígindisdal í ágúst.

„Undirliggjandi ástæða slysasleppingarinnar tengist því hvernig slátrunarfyrirkomulag breyttist vegna laxalúsar.“
Stein Ove Tveiten,
forstjóri Arctic …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Umdeilt frumvarp matvælaráðherra um lagareldi bíður líklega næsta þings
FréttirLaxeldi

Um­deilt frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi bíð­ur lík­lega næsta þings

Gísli Rafn Ólafs­son, þing­mað­ur Pírata og vara­formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar, seg­ir að enn sé ver­ið að ræða við hags­mun­að­ila út af lagar­eld­is­frum­varp­inu. Hann seg­ir lík­legra en ekki að frum­varp­ið bíði næsta þings. Frum­varp­ið er um­deilt og hafa mat­væla­ráð­herr­ar Vinstri grænna ver­ið gagn­rýnd­ir fyr­ir það.
Búið að ráða nýjan mann í starfið hjá MAST eftir innanhúsátök
FréttirLaxeldi

Bú­ið að ráða nýj­an mann í starf­ið hjá MAST eft­ir inn­an­húsátök

Mat­væla­stofn­un hef­ur ákveð­ið að Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir verði nýr sviðs­stjóri yf­ir með­al ann­ars lax­eldi hjá stofn­un­inni. Átök urðu inn­an­húss hjá stofn­un­inni eft­ir að Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn í starf­ið en hann hafði með­al ann­ars skrif­að grein­ar þar sem hann lýsti yf­ir stuðn­ingi við sjókvía­eldi sem at­vinnu­grein.
SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýn­ir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og tal­ar um hann eins og eign

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skil­að gagn­rýnni um­sögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráð­un­um hjá SFS er að rekstr­ar­leyf­in í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bund­in leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt ann­að í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Hann sagðist ekki geta meir“
1
Viðtal

„Hann sagð­ist ekki geta meir“

„Ég gat ekki bjarg­að barna­barn­inu mínu. En ef það verð­ur til þess að ég geti kannski bjarg­að ein­hverj­um, þó ekki nema einu barni, þá vil ég segja sögu okk­ar,“ seg­ir Þór­hild­ur Helga Þor­leifs­dótt­ir kennslu­ráð­gjafi. Son­ar­son­ur henn­ar, Pat­rek­ur Jó­hann Kjart­ans­son Eberl, fannst lát­inn mið­viku­dag­inn 12. maí 2021, að­eins fimmtán ára gam­all. Hann hafði svipt sig lífi.
„Við mætum í vinnuna til þess að sigra“
6
Á vettvangi

„Við mæt­um í vinn­una til þess að sigra“

Kona sem sit­ur á bið­stofu með fleira fólki er að grein­ast með heila­æxli og það þarf að til­kynna henni það. En það er eng­inn stað­ur sem hægt er að fara með hana á, til að ræða við hana í næði. Í ann­an stað er rætt við að­stand­end­ur frammi, fyr­ir fram­an sjálfsal­ann en þá fer neyð­ar­bjall­an af stað og hama­gang­ur­inn er mik­ill þeg­ar starfs­fólk­ið hleyp­ur af stað. Í fjóra mán­uði hef­ur blaða­mað­ur ver­ið á vett­vangi bráða­mót­tök­unn­ar á Land­spít­al­an­um og fylgst með starf­inu þar.

Mest lesið í mánuðinum

Leyniupptaka lýsir vinargreiða og hrossakaupum Bjarna og Jóns
1
Afhjúpun

Leyniupp­taka lýs­ir vin­ar­greiða og hrossa­kaup­um Bjarna og Jóns

Son­ur og við­skipta­fé­lagi Jóns Gunn­ars­son­ar þing­manns full­yrð­ir í upp­tök­um sem tekn­ar voru af manni sem sagð­ist vera fjár­fest­ir að Jón hafi sam­þykkt beiðni Bjarna Bene­dikts­son­ar um að þiggja sæti á lista gegn því að Jón kom­ist í að­stöðu til veita veiði­leyfi til Hvals hf. Það verði arf­leifð Jóns að tryggja Kristjáni Lofts­syni nán­um vini sín­um leyf­ið. Það sé hins veg­ar eitt­hvað sem eigi að fara leynt.
„Hann sagðist ekki geta meir“
2
Viðtal

„Hann sagð­ist ekki geta meir“

„Ég gat ekki bjarg­að barna­barn­inu mínu. En ef það verð­ur til þess að ég geti kannski bjarg­að ein­hverj­um, þó ekki nema einu barni, þá vil ég segja sögu okk­ar,“ seg­ir Þór­hild­ur Helga Þor­leifs­dótt­ir kennslu­ráð­gjafi. Son­ar­son­ur henn­ar, Pat­rek­ur Jó­hann Kjart­ans­son Eberl, fannst lát­inn mið­viku­dag­inn 12. maí 2021, að­eins fimmtán ára gam­all. Hann hafði svipt sig lífi.
Grunaði að það ætti að reka hana
3
Viðtal

Grun­aði að það ætti að reka hana

Vig­dís Häsler var rek­in úr starfi fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna eft­ir að nýr formað­ur tók þar við fyrr á ár­inu. Hún seg­ir kosn­inga­vél Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa ver­ið gang­setta til að koma hon­um að. Vig­dís ræð­ir brottrekst­ur­inn og rasísk um­mæli sem formað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins hafði um hana. Orð­in hafi átt að smætta og brjóta hana nið­ur. Hún seg­ist aldrei munu líta Sig­urð Inga Jó­hanns­son sömu aug­um eft­ir það.
Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
6
FréttirKynferðisbrot

Mynd­ir af neyð­ar­mót­töku send­ar áfram: „Ekki mynd­ir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lög­reglu var heim­ilt að senda mynd­ir sem tekn­ar voru af Guðnýju S. Bjarna­dótt­ur á neyð­ar­mót­töku fyr­ir þo­lend­ur kyn­ferð­isof­beld­is á verj­anda manns sem hún kærði fyr­ir nauðg­un. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­vernd­ar. Guðný seg­ir ótækt að gerend­ur í kyn­ferð­isaf­brota­mál­um geti með þess­um hætti feng­ið að­gang að við­kvæm­um mynd­um af þo­lend­um. „Þetta er bara sta­f­rænt kyn­ferð­isof­beldi af hendi lög­regl­unn­ar.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár