Ég sit fyrir framan Norðurljós áður en fjórða undanúrslitakvöldið hefst. Inn skokkar bassaleikari Vampíru sem komst í úrslitin á þriðja undanúrslitakvöldinu í gær. Hann sest hjá mér og spyr mig fyrst hvað ég sé að lesa og svo fyrir hvern ég sé að skrifa. Ég segi honum það og sýni honum það sem ég hafði sagt um hljómsveitina hans kvöldið áður. Hann er mjög sáttur og lofar að sýna félögum sínum greinina.
Svo fer hann að tala um blackmetal og hvað þeir í Vampíru væru að hugsa um margt og hvort ég gæti ekki tekið viðtal við þá? „Ja, ég á að taka viðtal við sigursveitina fyrir Heimildina, en ég hef víst ekki pláss fyrir meira,“ segi ég afsakandi. „Þá verðum við bara að vinna,“ segir Reynir Bergmann Guðmundsson mjög einbeittur, og það hljómar næstum því eins og það sé bara formsatriði, svo þeir komist nú í viðtal. …
Athugasemdir