Sérbýli hækkað um 12 milljónir frá rýmingu Grindavíkur

Með­al­kaup­verð sér­býlis í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur hækkað úr 68 millj­ónum króna í nóv­em­ber í tæpar 80 millj­ónir króna. Skýr­ingin er hús­næð­is­neyð Grind­vík­inga. Nokkrir þeirra við Heim­ild­ina að reynt sé að græða á þeim.

Sérbýli hækkað um 12 milljónir frá rýmingu Grindavíkur
Eldgos Í jan­úar flæddi hraun að nyrstu byggðum Grinda­víkur og eyði­lagði þrjú hús. Mun fleiri hús í bænum eru skemmd og ríkið hefur ákveðið að kaupa hús af Grind­vík­ingum, óski þeir þess. Mynd: Golli

Ný vísi­tala íbúða­verðs og með­al­verð úr kaup­samn­ingum benda til skarprar verð­hækk­unar á  íbúðum í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins að mati Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS). Velta á íbúða­mark­aði nálægt höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki auk­ist jafn mikið á milli mán­aða frá upp­hafi mæl­inga í jan­úar árið 2014.

HMS telur að íbúða­kaup Grind­vík­inga hafi haft áhrif á fast­eigna­mark­að­inn í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og gætu áhrifin orðið meiri á næstu mán­uðum. Íbúða­mark­að­ur­inn í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins tók kipp í febr­úar með miklum verð­hækk­unum og mik­illi fjölgun kaup­samn­inga. HMS telur að áhrifin megi rekja til íbúða­kaupa Grind­vík­inga í mán­uð­inum og að íbúða­kaupin muni ýta undir verð­þrýst­ingi á mark­aði næstu mán­uði.

HMS greindi frá því fyrr í vik­unni að ný vísi­tala íbúða­verðs á land­inu öllu hefði  hækkað um 1,9 pró­sent á milli mán­aða í febr­úar. Þar vó verð­hækkun á fjöl­býl­is­húsum þungt, en und­ir­vísi­tala fjöl­býl­is­húsa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um  2,1 pró­sent á milli mán­aða, á meðan und­ir­vísi­tala fjöl­býl­is­húsa á lands­byggð­inni hækk­aði um 6,4 pró­sent á milli mán­aða.

Sérbýlin hækka mest

Ef litið er til útgef­inna kaup­samn­inga í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins má sjá skarpar verð­hækk­anir, en þar hækk­aði með­al­verð á seldri íbúð úr 61,6 millj­ónum króna í jan­úar í tæpar 65 millj­ónir króna í febr­úar. Mest hefur verð­hækk­unin orðið á sér­býl­is­húsum á svæð­inu, en með­al­kaup­verð þeirra hefur hækkað úr 68 millj­ónum króna í nóv­em­ber 2023 í tæpar 80 millj­ónir króna í febr­úar 2024.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði með­al­verð í kaup­samn­ingum einnig, en þó mun minna. Þar nam með­al­kaup­verðið 78,3 millj­ónum króna í febr­úar, miðað við 78 millj­ónir króna í jan­úar.

Kaup­samn­ing­um fjölg­ar og velt­an eykst

Mun fleiri kaup­samn­ingar voru gefnir út í febr­úar heldur en í jan­úar í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Fjöldi þeirra rúm­lega tvö­fald­að­ist á tíma­bil­inu, eða úr 74 í jan­úar í 164 í febr­úar. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölg­aði kaup­samn­ingum einnig, úr 332 í jan­úar í 491 í febr­úar.

Vegna hærra verðs og fleiri kaup­samn­inga jókst veltan tölu­vert á íbúða­mark­aði á milli mán­aða í febr­úar, eða úr 26 í 38 millj­arða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og úr 5 í 11 millj­arða í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Veltan hefur ekki auk­ist jafn­mikið á milli mán­aða í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins frá upp­hafi mæl­inga í jan­úar 2014.

„HMS telur að aukin virkni á íbúða­mark­aðnum á suð­vest­ur­horn­inu sé til­komin vegna íbúða­kaupa Grind­vík­inga í febr­úar,“ segir í sam­an­tekt stofn­un­ar­innar. Alþingi sam­þykkti lög um kaup rík­is­stjórn­ar­innar á íbúð­ar­hús­næði í bænum þann 23. febr­úar. Tæplega 900 íbúða­eig­endur sem áttu lög­heim­ili í Grinda­vík geta því selt fast­eignir sínar til rík­is­ins og keypt aðra íbúð á fast­eigna­mark­aði.

„Íbúða­kaup Grind­vík­inga geta aukið verð­þrýst­ing á íbúðum á  íbúða­mark­aði í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæðis á næstu mán­uðum,“ segir í sam­an­tekt HMS. 

Heim­ildin ræddi nýverið við Grind­vík­inga sem eru í hús­næð­is­leit í Reykja­nesbæ. Sögðu þeir allir að verð hafi hækkað mikið á örfáum vikum. Fast­eigna­mark­að­ur­inn er „í tómu rugli“ sagði einn þeirra. „Því miður þá eru Grind­vík­ingar, vinir, að berj­ast um sömu húsin,“ sagði annar. „Það er bara verið að græða á okkur,“ sagði sá þriðji.

Viðtölin má lesa hér.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjaneseldar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár