Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.

Stefán Ólafsson og Anna Hrefna Ingimundardóttir voru sammála um að nýir kjarasamningar væru að mörgu leyti einstakir í sögulegu samhengi

Í nýjasta þætti Pressu mættu Stefán Ólafsson, sérfræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, og Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, til þess að ræða nýgerða kjara­samn­inga. Bæði sögðu nýja samn­inga vera fyrir margar sakir ein­staka. 

„Stóra fréttin er lík­lega bar sú að við höfum náð mjög breiðri sátt á vinnu­mark­aði með gerð fjögur ára samn­ings. Sem er nú ekki oft gerður á Íslandi, þar sem við höfum náð að marka launa­stefnu sem ætti að ríkja víð­tæk sátt um, og sem er innan þess efna­hags­lega svig­rúms sem við höfum oft talað um,“ sagði Anna Hrefna.

Stefán Ólafsson tók undir þetta og sagði samn­ing­anna vera að mörgu leyti óvenju­lega. „Þetta er til­raun til þess að flýta lækkun verð­bólgu og lækkun vaxta sér­stak­lega með því að fara fram með hóf­samar launa­hækk­anir,“ lýsti Stefán sem sagð­ist í muna eftir öðrum eins …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár