Vísað á götuna með átján mánaða dóttur

Precious Lorrence og átján mán­aða dóttur hennar Söruh var vísað á göt­una á þriðju­dag­inn og mæðgurnar sviptar allri þjón­ustu, segir Precious og tals­konur tveggja hjálp­ar­sam­taka.

Vísað á götuna með átján mánaða dóttur
Í strætó Mæðgurnar Precious Lorrence og Sarah. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Ég hélt að það væri alveg búið að sverja að hér yrðu ekki börn á göt­unni,“ segir Sema Erla Serdaroglu, for­maður hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris um mál Precious Lorrence og dóttur hennar Söruh sem voru á þriðju­dag sviptar allri þjón­ustu og sendar úr hús­næði rík­is­lög­reglu­stjóra í Bæj­ar­hrauni, að sögn Precious, Morgane Priet-Mahéo, hjá Rétti barna á flótta, og Semu. 

Mæðgurnar áttu ekki í nein hús að venda svo þær leit­uðu til Solaris. Fulltrúi sam­tak­anna bók­aði fyrir þær hót­el­her­bergi til bráða­birgða svo mæðgurnar þyrftu ekki að sofa á göt­unni. 

Þær geta ekki sótt í neyð­ar­skýli Rauða kross­ins því þar er ein­ungis tekið á móti full­orðnu fólki en almennt á ríkið ekki að þjón­ustu­svipta hæl­is­leit­endur ef börn eru í spil­inu. 

Það hefur þó verið gert við Precious og Söruh, sem er eins og hálfs árs gömul. Vert er að taka fram að mál þeirra er ekki ein­falt hæl­is­mál og er ekki skýrt hvort Precious sé skil­greind þannig að hún sé inni í hæl­is­kerf­inu eður ei.

Komu aftur þrátt fyrir þriggja ára bann

Heim­ildin fjall­aði ítar­lega um mál mæðgn­anna í síð­asta tölu­blaði en þær eru upp­runa­lega frá Nígeríu. Þær flúðu hingað frá Ítalíu með föður Söruh en var hafnað um hæli og vísað frá landi í lög­reglu­fylgd 28. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þau fengu þriggja ára end­ur­komu­bann til Íslands. 

Samt komust mæðgurnar, án föð­ur­ins, aftur hingað til lands 30. jan­úar. Precious segir að það hafi verið vegna þess að hún hafi alls ekki getað hugsað sér að fara út af flug­vell­inum. Hún seg­ist hafa verið neydd í vændi á Ítalíu og var hrædd um að konan sem neyddi hana í vændið myndi finna hana í Róm. Eins og fram kom í umfjöllun Heim­ild­ar­innar í síð­ustu viku er nokkuð um að níger­ískar konur sem hingað leita eftir dvöl á Ítalíu hafi verið neydd­ar út í vændi þar og vilja ekki snúa aft­ur, því þær vita hvað bíð­ur þeirra.

Precious lagði inn hæl­is­um­sókn skömmu eftir að þær mæðgur komu hingað en umsókn­inni var hafnað innan nokk­urra daga. Hún seg­ist þó hafa fengið að dvelja í hús­næði rík­is­lög­reglu­stjóra Í Bæj­ar­hrauni, hús­næði sem sam­tökin Réttur barna á flótta hafa gagn­rýnt harð­lega að barna­fjöl­skyldur séu hýstar í. 

Precious er sem stendur ekki með virka hæl­is­um­sókn í kerf­inu og er því ekki skýrt hvort hún falli inn í kerfi hæl­is­leit­enda eður ei. Mögulega gæti staða hennar flokk­ast undir sér­staka stöðu útlend­ings og er Morgane Priet-Mahéo hjá Rétti barna á flótta nú að kanna hvort Reykja­vík­ur­borg geti aðstoðað hana á þeim grund­velli.

Eigi ekki að fá þjónustu í ólögmætri dvöl

Í svari upp­lýs­inga­full­trúa stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um stöðu mann­eskju sem kemur hingað þrátt fyrir end­ur­komu­bann og er hafnað segir:

„Fólk í þess­ari stöðu er hér í ólög­mætri dvöl og fær þar af leið­andi ekki þjón­ustu á meðan það dvelur hér á landi. Við­kom­andi er á eigin vegum.“

Getur mann­eskja í slíkri stöðu leitað í ein­hver úrræði á vegum hins opin­bera? 

 

„Sveit­ar­fé­lögin veita útlend­ingum í sér­stakri aðstöðu aðstoð,“ segir í svari frá upp­lýs­inga­full­trú­ans, Marínar Þórs­dóttur. Hún segir að að við­ur­lög við end­ur­komu þrátt fyrir end­ur­komu­bann séu sú að fólki sé vísað úr landi. 

„Það er hlut­verk lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum eða ÚTL að frá­vísa fólki. Dæmi eru um að fólk fari í gæslu­varð­hald, þá dvelja aðrir á eigin vegum þar til fólk fer af land­inu.“

Þrátt fyrir þessi svör stoð­deild­ar­innar seg­ist Precious hafa fengið þjón­ustu, bæði í hús­næð­inu í Bæj­ar­hrauni og með viku­legri fram­færslu. Hún segir að nú sé búið að stöðva þá fram­færslu og að þeim Söruh hafi verið vísað úr Bæj­ar­hrauni þegar hún neit­aði að yfir­gefa Ísland á eigin spýtur. 

Ósátt„Það er for­kast­an­legt að setja fólk í þessa stöðu,“ segir Sema Erla.

Gefi skýra mynd af hryllingnum

Sema Erla segir að sú stað­reynd að Precious sé enn hér þrátt fyrir hús­næðis- og fram­færslu­leysi gefi skýra mynd „af hryll­ingnum sem bíður hennar á Ítalíu og jafn­vel í Nígeríu ef hún verður send frá Ítalíu þaðan.“

„Það er for­kast­an­legt að setja fólk í þessa stöðu. Ég held að það að hún grípi til þessa örþrifa­ráðs segi okkur nógu mikið um stöð­una,“ segir Sema Erla. 

Í sumar var útlend­inga­lögum breytt með þeim hætti að hæl­is­leit­endur sem neita að yfir­gefa Ísland af sjálfs­dáðum voru sviptir bæði þjón­ustu og hús­næði um 30 dögum eftir að þeir fengu end­an­lega synjun. Aftur á móti segir í lög­unum að ekki sé heim­ilt að fella niður rétt­indi barna og for­eldra þeirra.

Er þetta í fyrsta sinn sem þið aðstoðið móður með barn eftir að þessar breyt­ingar voru gerðar um þjón­ustu­svipt­ingu? 

„Því hefur ítrekað verið hótað, að svipta for­eldra þjón­ustu og setja börn á göt­una en það hefur yfir­leitt verið hægt að koma í veg fyrir það á loka­metr­unum. Þetta er alla­vega eina dæmið sem ég veit um akkúrat núna þar sem er barn í þess­ari stöðu á göt­unni,“ segir Sema. 

Hún gagn­rýnir íslensk stjórn­völd fyrir að vísa móður og barni á göt­una, sér­stak­lega þar sem ráð­herrar hafi áður sagt að slíkt ætti ekki að eiga sér stað. 

„Stjórn­völd eru að ganga á bak orða sinna [...]. Þetta er ekk­ert annað en enn ein birt­ing­ar­mynd þessa kerf­is­bundna ras­isma hjá þess­ari rík­is­stjórn þar sem þetta bein­ist alltaf gegn fólki frá Mið­aust­ur­löndum og Afríku. Það er átak­an­legt að horfa upp á þetta aftur og aftur, þetta er bara hryll­ingur.“

MæðgurSöruh líður vel, þrátt fyrir allt, segir Precious.

Segir stjórnvöld stefna Precious í hættu

Precious og Söruh var upp­haf­lega neitað um vernd vegna þess að þær höfðu dval­ar­leyfi á Ítalíu. Sema telur ekki skýrt hvort Precious yrði jafn­vel vísað frá Ítalíu og til Nígeríu –  ef henni er vísað héðan til Ítalíu.

„Ítalir vilja ekki lengur taka á móti Dyfl­inn­ar­málum – ein­fald­lega vegna þess að kerfið ræður ekki við það,“ segir Sema. Hún telur að yfir­völd á Ítalíu myndu ekki endi­lega grípa Precious þar úti. 

„Hún hefur greini­lega hvorki vernd né stuðn­ings­net á Ítalíu svo hún mun vera neydd út í frekara man­sal hvort sem það er á Ítalíu eða Nígeríu. Það er ekk­ert leynd­ar­mál hver staða þess­ara níger­ísku kvenna er á Ítalíu,“ segir Sema. „Fólk þarf að grípa til örþrifa­ráða. Við erum í raun að stefna henni í hættu líka með þess­ari fram­komu.“

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Þessi framkoma við móður og ungt barn í neyð er íslenskum stjórnvöldum til háborinnar skammar.
    1
  • Bjarni Þór Þórarinsson skrifaði
    Í forríku landi líðst þessi grimmd... Hjartalaust í svokölluðu kristnu samfélagi, sleggjusamfélag hinna hörðu... ekki í mínu nafni.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár