Í fangi móður sinnar Precious segir að allt sem hún gerir sé fyrir dóttur sína, Söruh. Fyrir hana verði hún að finna öryggi. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Flúði vændi en verður send út í annað sinn: „Ég vil að hún viti að ég reyndi allt“

Níger­ískar konur sem hingað leita eftir dvöl á Ítalíu hafa í mörgum til­vikum verið neyddar út í vændi þar og vilja ekki snúa aftur, því þær vita hvað bíður þeirra. Ein kvenn­anna kom aftur til Íslands örfáum dögum eftir að hún fékk end­ur­komu­bann til þriggja ára, því hún sá enga aðra leið út.

Precious Lorrence sat með 16 mán­aða dóttur sína Söruh á hörðu gólfi flug­vallar í Róm. Þær voru þyrstar og svangar. Sarah grét með ekka. „Gætir þú keypt fyrir okkur flug­miða til Íslands?“ spurði hún þau sem gengu hjá. Sumir lét­ust ekki heyra í þeim eða brostu dauf­lega til mæðgn­anna. Aðrir létu þær fá einn og einn seðil eða klink.

Tveimur dögum áður, þann 28. jan­úar, hafði mæðg­unum og föður Söruh verið vísað frá Íslandi og til Ítalíu í lög­reglu­fylgd. Þau höfðu fengið þriggja ára end­ur­komu­bann til Íslands þar sem þau höfðu neitað að fara frá land­inu. Faðirinn yfir­gaf mæðgurnar á vell­inum. Ekki svo langt frá, ann­ars staðar í Róm, leit­aði kona Precious. Kona sem Precious ótt­að­ist að gæti neytt hana aftur í vændi og jafn­vel tekið Söruh af henni.

Precious var örvænt­ing­ar­full og hún sá sér enga und­an­komu­leið nema þá að kom­ast aftur til Íslands, eina lands­ins sem …

Kjósa
49
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinunn Harðardóttir skrifaði
    Hrikalega sorglegt! Ég vildi óska þess að þeir sem stjórna landinu kæmu vel fram við allar manneskjur, sama hvar þær fæðast eða hver uppruni þeirra er. Hvernig er hægt að horfa upppá neyð fólks og henda því úr landi?
    2
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Eru þetta kynþáttafordómar? Þessi kona þarf á vernd að halda og mun verða góður Íslendingur
    1
  • Elsa Þorbjörg Árnadóttir skrifaði
    Undarlegt að hræsnararnir segi svo...hvers vegna eru karlarnir komnir á undan.
    1
  • B
    Böðvar skrifaði
    Þetta eru skelfilegar aðstæður hjá móður og barni. Er hugsanlegt að það vanti vinnandi hendur á einhverja gróðrarstöð til að tína túmata, agúrkur rða pakrikur. Vita Bændasamtökin um vöntun einhversstaðar hjá góðu fóolki.
    4
    • Björgvin Þór Þórhallsson skrifaði
      Það vantar fullt af fólki í alls konar störf. Þetta er bara mannvonska.
      11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár