66 ár frá fyrstu heim­sókn­inni til Ísland Yvon Chouinard sést hér í bar­átt­unni við smá­lax í Haf­fjarð­ará á Íslandi. Hann hefur komið hingað til lands reglu­lega frá árinu 1958. Mynd: Malinda Chouinard

„Þetta er stríð og við teljum okkur geta unnið það“

Yvon Chouinard, stofn­andi fata­fram­leið­and­ans Pata­gonia, ræðir um ára­tuga tengsl sín við Ísland og bar­átt­una gegn sjó­kvía­eldi á eld­is­laxi hér á landi. Pata­gonia frum­sýndi nýverið mynd um sjó­kvía­eldið á Íslandi. Yvon er bjart­sýnn á að sjó­kvía­eldið verði bannað á Íslandi þar sem íslenskir kjós­endur séu vel upp­lýstir og taki mark á vís­indum.

„Ég hef unnið að því að reyna að bjarga villta lax­inum í heim­inum í mjög mörg ár. Ég hef verið flugu­veiði­maður í næstum því 80 ár og hef veitt á Íslandi, Rúss­landi, Kanada og víðar. Ég elska lax­inn og það er hluti af mark­miðum Pata­gonia að leggja okkar af mörkum til að reyna að bjarga jörð­inni og öllu sem til­heyrir henni,“ segir Yvon Chouinard, stofn­andi banda­ríska fata­fyr­ir­tæk­is­ins Pata­gonia, aðspurður um heim­ilda­þátt um sjó­kvía­eldi á Íslandi sem fyr­ir­tækið gerði og frum­sýndi í byrjun febr­úar. Yvon veitti Heim­ild­inni við­tal í kjöl­farið á frum­sýn­ing­unni, til að setja gerð mynd­ar­innar í sam­hengi. 

Yvon er orð­inn 85 ára gam­all og hefur komið reglu­lega til Íslands frá árinu 1958, þegar hann var rúm­lega tví­tugur. „Sjó­kvía­eldið á Íslandi er næsti rök­rétti stað­ur­inn til að berj­ast á. Þetta er stríð og við teljum okkur geta unnið það,“ segir hann um bar­átt­una gegn sjó­kvía­eld­inu í …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár