Öryggisráðstafanir ráðherra hafa verið auknar undanfarna mánuði

Aukin öryggis­gæsla á ferðalagi Sjálfstæðis­flokksins skýrist af auknum öryggis­töfunum fyrir ráðherra allra flokka ríkis­stjórnarinnar. Embætti ríkis­lögreglu­stjóra segir að í einhverjum tilvikum hafi sérsveitar­menn verið við öryggis­gæslu.

Hringferð
Hring­ferð örygg­is­gæsla fyrir ráð­herra var meiri en áður hefur tíðkast á hring­ferð Sjálf­stæð­is­flokks­ins um landið í vik­unni. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Aukin öryggis­gæsla lögreglu í hringferð Sjálfstæðis­flokksins í vikunni var vegna viðveru ráðherra í ríkis­stjórninni. Auknar ráðstafanir eru ekki bundnar við ráðherra Sjálfstæðis­flokksins. 

Þetta kemur fram í skriflegu svari embættis ríkis­lögreglu­stjóra við spurningum Heimildarinnar. „Undan­farna mánuði hafa ráðherrar þurft að sæta auknum öryggis­ráðstöfunum lögreglu. Sjaldgæft er að ráðherrum hér á landi sé fylgt af lögreglu­mönnum,“ segir þar. 

Fengu ekki fylgd allan hringinn

Í gær greindi mbl.is frá því að lögreglan fylgdi Sjálfstæðis­flokknum á ferðalag hans til að tryggja öryggi ráðherra og þingmanna. Hefur þetta ekki tíðkast áður. Miðillinn hafði þetta eftir Hildi Sverris­dóttur, þing­flokks­formanni Sjálfstæðis­flokksins.

Embætti ríkis­lögreglu­stjóra segir að Sjálfstæðis­flokknum hafi ekki verið fylgt allan hringinn í kringum landið. „Á nokkrum viðkomu­stöðum ferðarinnar voru almennir lögreglu­menn með aukna öryggis­gæslu á fundastað og í einhverjum tilvikum voru sérsveitar­menn við öryggis­gæslu.“

Samkvæmt lögreglu­lögum beri lögreglu að tryggja öryggi æðstu ráðamanna. Undan­farin ár hafi það verkefni vaxið í …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Það verður að passa upp á þessa glæpamenn sem starfa hjá löggjafanum og geta tekið glæpamenn í lögreglubúningum sérþjálfaða í líkamsmeiðingum á leigu fyrir vini sýna í samtökum atvinnulifsins þetta eru fyrirmenni lands og þjóðar eða þannig ríkissaksóknari máls.nr.003-2008-25 og málsnr. 200810-1259-brefal.66
    0
  • trausti þórðarson skrifaði
    Þetta lið slettir skyri,glimmeri og jafnvel snjóboltum.
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Endurspeiglar það samfélagið að Bjarna-bandið þurfi sérstaka vernd?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár