Dvalarleyfishafar senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis

Móðir og þrjú börn hafa fengið samþykkta fjölskyldu­sameiningu á Íslandi en sitja enn föst á Gaza. Fjölskyldu­faðirinn er dvalar­leyfishafi á Íslandi. Lögfræðingur fjöl­skyldunnar hefur sent inn kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Er þar haldið fram að íslenska ríkið fari á mis við laga­ákvæði og alþjóðlegar skuld­bindingar með aðgerða­leysi sínu við að forða fólki frá stríðs­hrjáðum svæðum á Gaza.

Rafah
Rafah enn bíða margir dval­ar­leyf­is­hafar á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar á Íslandi þess að kom­ast frá Gaza. Mynd: AFP

Lögmaður palestínskrar fjöl­skyldu, sem fengið hefur samþykkt dvalar­leyfi á grund­velli fjölskyldu­sameiningar, hefur sent kvörtun til umboðs­manns Alþingis vegna athafna­leysis stjórn­valda að fylgja eftir fjölskyldu­sameiningu þeirra. Segir í kvörtuninni að máls­meðferð stjórn­valda sé í ósamræmi við lög og brotið sé á grundvallar­réttindum fjöl­skyldunnar.

Fjölskyldu­faðirinn er palestínskur ríkis­borgari sem hefur fengið dvalar­leyfi á Íslandi. Fjöl­skylda hans, kona og þrjú börn, eru enn föst á Gaza. Fjöl­skyldan sá sig knúna til að bera fram kvörtun „í ljósi verulegra tafa á úrlausn sinna mála hingað til og þeirra hagsmuna sem eru undir.“

Stjórnvöldum beri að afhenda gögn til egypskra landamærayfirvalda

Fjöl­skyldan veit ekki til þess að stjórn­völd hafi gefið landamæra­yfirvöldum í Egypta­landi upplýsingar um þau þeirra sem föst eru á Gaza. Í kvörtuninni segir að það hvíli á íslenskum stjórn­völdum að koma því áleiðis til landamæra­yfirvalda í Egypta­landi að fjöl­skyldan hafi dvalar­leyfi á Íslandi og að íslensk stjórn­völd taki ábyrgð á …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásta Jensen skrifaði
    Væri ekki.nær að nota lögmannskostnaðinn við að ná í fólkið sjálfur?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mannorð sjálfboða­liða

Stofnandi og forseti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dvalar­leyfishöfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­samlega sturlað“ að fylgjast með ráðherrum í ríkis­stjórn Íslands, stofnunum og þingfólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálfboða­liðar séu að brjóta af sér „og jafnvel fremja lögbrot í viðleitni okkar til að koma fólki undan þjóðernis­hreinsunum.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár