Samfélagslegt tjón af samráði skipafélaganna metið á 62 milljarða

Kostn­aður íslensks sam­fé­lags vegna ólög­legs sam­ráðs Eimskips og Samskipa er met­inn 62 millj­arðar króna í nýrri grein­ingu Analytica. Stærstur hlut­inn er sagður hafa lent á neyt­endum vegna hærri kostn­aðar á inn­fluttum vörum og þeim sem skulda verð­tryggð lán. „Dýrkeypt og hrika­leg aðför að neyt­endum,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

Samfélagslegt tjón af samráði skipafélaganna metið á 62 milljarða
Helstu per­sónur og leik­endur í sam­ráðs­máli Samskips og Eimskipa. Samstarf þeirra kost­aði fyr­ir­tækin alls tæpa sex millj­arða króna. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Ólöglegt sam­ráð skipa­fé­lag­anna Eimskips og Samskipa kost­aði íslenskt sam­fé­lag 62 millj­arða króna, sam­kvæmt grein­ingu sem Analytica vann fyrir Félag atvinnu­rek­enda, Neyt­enda­sam­tökin og VR. Stærstur hluti kostn­að­ar­ins lenti á neyt­endum sem þurftu að greiða hærra verða fyrir inn­fluttar vörur en þeir hefðu ella þurft. Áhrif sam­ráðs­ins á verð­tryggð lán lands­manna voru líka veru­leg, sam­kvæmt grein­ing­unni, og kost­aði sam­fé­lagið 17,4 millj­arða króna. 

„Þetta er dýr­keypt og hrika­leg aðför að neyt­endum, sem ekki má end­ur­taka,“ er haft eftir Breka Karls­syni, for­manni Neyt­enda­sam­tak­anna, í frétta­til­kynn­ingu. Í sömu til­kynn­ingu er haft eftir Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, að nið­ur­stöð­urnar séu mik­il­vægt inn­legg í kjara­við­ræður „[Ö]flugt sam­keppn­is­eft­ir­lit er ein for­senda þess að við semjum til rétt­látrar fram­tíðar.“

Eimskip hefur und­ir­geng­ist sátt vegna sam­ráðs­ins og greitt 1,5 millj­arð króna í sátt­ar­greiðslu. Í sátt­inni felst við­ur­kenn­ing að hið ólög­lega sam­ráð hafi raun­veru­lega átt sér stað. Stjórn­endur Samskipa hafa hins vegar þvert á móti hafnað öllu sam­ráði og mót­mælt …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Koma þessum andskotum bak við lás og slá! Lengi.
    0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Það er ekki bara bankakerfið sem fór í rúst. Það er allt sem þessir menn koma nálægt.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

Lykilmaður í samráði víkur ekki úr stjórn lífeyrissjóðs
FréttirSamráð skipafélaga

Lyk­il­maður í sam­ráði víkur ekki úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, sem lýst er sem arki­tekt og lyk­il­manni í sam­ráðs­brotum fyr­ir­tæk­is­ins í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hann var skip­aður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lög­brotin. SA með skipan hans til skoð­unar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár