Fjölskylda frá Grindavík bregður búi í sjöunda sinn

Róbert Paul Scala og fimm manna fjöl­skylda hans flutti nýverið úr Airbnb-íbúð í Njarðvík sem fjöl­skyldan hefur búið í um þrjár vikur. Þetta er í sjö­unda sinn sem að fjöl­skyldan neyð­ist til þess að flytja og mikil óvissa ríkir um það hvert fjöl­skyldan muni halda næst. Róbert sagð­ist engin svör hafa fengið frá Bríeti leigu­fé­lagi um hugs­an­legt hús­næði fyrir sig og fjöl­skyldu sína

Fjölskylda frá Grindavík bregður búi í sjöunda sinn
Róbert Paul Scala og fjöl­skylda hafa verið á hrak­hólum frá því að rýma þurfti Grinda­vík í fyrra­haust Mynd: Aðsent

„Þetta er svaka­legt ástand og maður er bara alveg að gef­ast upp“ sagði Róbert Paul Scala, leigu­bíls­stjóri og fyrrum íbúi Grinda­víkur í sam­tali við Heim­ild­ina. Hann og fjöl­skylda hans standa nú flutn­ingum og leita að var­an­legu hús­næði á Suð­ur­nesjum. Fjöl­skyldan er nú að flytja í sjö­unda sinn frá því að rýma þurfti Grinda­vík fyrst í nóv­em­ber í fyrra.  

Eig­in­kona Róberts, Sigríður Helga Guð­munds­dóttir, vakti athygli á erf­iðri stöðu fjöl­skyld­unnar í Facebook-færslu þar sem hún aug­lýsti eftir hús­næði fyrir sig og fjöl­skyldu sína. Í færsl­unni greindi Sigríður frá því að ekki sé von á því að kom­ast að í íbúð hjá Bríet leigu­fé­lagi fyrr en í fyrsta lagi í mars. Í milli­tíð­inni sé fjöl­skyldan hús­næð­is­laus og óviss með hvað fram­tíðin ber í skauti sér.

Fimm manna fjölskylda með hund og kött

Róbert og Sigríður búa saman ásamt þremur börnum sínum sem eru aldr­inum 17 til 21 árs. Ung­mennin stunda nám við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja. Því þarf vænt­an­legt hús­næði að vera stað­sett á Suð­ur­nesjum til þess að þau geti haldið námi sínu áfram þar. Þá fylgja fjöl­skyld­unni einnig hundur og köttur. 

Þegar blaða­maður Heim­ild­ar­innar náði tali af Róberti voru hann og fjöl­skylda hans í óða önn að tæma Airbnb íbúð í Njarðvík sem fjöl­skyldan hefur búið í tæp­lega þrjár vikur.

En fjöl­skyld­unni bauðst að flytja á Hótel Ásbrú, við Kefla­vík­ur­flug­völl, þar sem þau fá að vera í nokkra daga á meðan þau leita sér að var­an­legu hús­næði. Ljóst er að fjöl­skyldan muni því brátt þurfa að flytja í átt­unda sinn og jafn­vel oftar áður en að þeim tekst að finna sér við­un­andi húsa­kost.    

Í sam­tali við Heim­ild­ina kvaðst Róbert ekki vita hvað taki við næst. Fjöl­skyldan hafi enn sem komið ekki fengið svör eða upp­lýs­ingar frá Bríeti leigu­fé­lagi og lítið heyrt frá öðrum leigu­sölum.  

Hafa flutt sjö sinnum frá fyrstu rýmingu

Spurður hvar fjöl­skyldan hefur búið und­an­farna mán­uði sagði Róbert að fyrst hafi fjöl­skyldan skipt sér í tvö hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þegar rýma þurfti bæinn í nóv­em­ber í fyrra.

Róbert og eldri sonur hans hafi búið hjá elsta syni Róberts í íbúð við Kirkju­sand. Á meðan hafi eig­in­kona hans og yngri börnin tvö flakkað á milli íbúða í Kópavogi og Breið­holt­inu áður en þau ákváðu að flytja aftur heim til Grinda­víkur þegar það var leyft á sínum tíma.

Heimili fjöl­skyld­unar er hverf­inu Norð­ur­hóp sem er skammt frá hraun­inu sem fór yfir nokkur hús nyrst í hverf­inu Efrahóp í Grinda­vík.

„svo vorum við búin að vera þar í sex daga þegar við þurftum að yfir­gefa það aftur. Þá fluttum við upp á Ásbrú á hótel og vorum þar í fjóra daga og þaðan fluttum við hingað í Njarðvík í Airbnb og núna þurfum við að fara og við vitum ekki neitt,“ sagði Róbert. 

Í sam­tal­inu kom fram að félags­þjón­usta Grinda­vík­ur­bæjar hafi útvegað fjöl­skyld­unni Airbnb-íbúð­ina í Njarðvík. „Það er Grinda­vík­ur­bær sem er að grípa okkur en ekki rík­is­stjórnin. Þeir eru að reyna passa upp á okkur, eins og þeir geta,“ sagði Róbert

Ósáttur við stjórnvöld

„Ég er bara orð­inn upp­gef­inn. Maður er búinn að vinna sig upp eftir hrunið í þokka­leg mál og svo bara púff! Allt farið fyrir bí,“ sagði Róbert. Erfitt sé að finna hús­næði sem henti stórri fjöl­skyldu og leyfi gælu­dýra­hald. 

„Það er miklu erf­ið­ara að finna eitt­hvað svo­leiðis þegar maður er með þetta full­orðin börn, en maður bara hendir þeim ekk­ert út. Maður reynir að hjálpa þeim í gegnum skól­ann svo þau þurfi ekki að taka þessi náms­lán, sem eru bara kæf­andi í fram­tíð­inni,“ sagði Róbert.

Þá taldi Róbert við­brögð rík­is­stjórn­ar­innar við neyð Grind­vík­inga vera í skötu­líki. Í sam­tal­inu velti Róbert fyrir sér seina­gangi stjórn­valda sem hann taldi að hljóti að vera að ásettu ráði. „Ég held þau séu bara að þreyta Grind­vík­inga út svo að allir selji bara á gjafa­verð til rík­is­ins,“ sagði Róbert.

Í síð­asta mán­uði til­kynnti rík­is­stjórnin aðgerða­pakka til þess að bregð­ast við stöðu Grind­vík­inga sem breytt­ist skyndi­lega í kjöl­far eld­goss­ins sem hófst 14. jan­úar. Á blaða­manna­fundi sem haldin var 22. jan­úar sögð­ust ráð­herrar meðal ann­ars ætla kaupa fleiri íbúðir í gegnum óhagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lögin Bríet og Bjarg.

Bæta átti við 50 íbúðum við þær rúm­lega 70 sem rík­is­stjórnin hafði nú þegar skipu­lagt að kaupa í gegnum leigu­fé­lögin. Yfirlýst mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar var meðal ann­ars að eyða óviss­unni sem Grind­vík­ingar höfðu hingað til einir setið uppi með.     

Ekkert heyrst í stjórnarandstöðunni  

Þessi fyr­ir­heit hafa þó ekki skilað sér til Róberts og fjöl­skyldu hans og taldi Róbert ráða­menn skorta skiln­ing á stöðu Grind­vík­inga. Þá sagð­ist Róbert einnig vera ósáttur með þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unar sem honum þykir hafa lítið tjáð sig og haft sig frammi um mál­efni Grinda­vík­inga und­an­farið.

„Manni finnst nú eins og stjórn­ar­and­staðan mætti öskra og æpa og berja í borðið og svona af því það gengur ekki neitt. En það heyr­ist ekki neitt í þeim,“ sagði Róbert sem veltir fyrir sér hvort það þurfi ekki ein­fald­lega að stofna nýjan flokk sem veiti stjórn­völdum aðhald í þessum efnum. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár