Fyrirtæki eiganda Fiskeldis Austfjarða seldi skemmdan eldislax til manneldis

Sölu­fyr­ir­tæki í eigu stærsta hlut­hafa Fisk­eldis Aust­fjarða, Måsøval, seldi skemmdan eld­is­lax um ára­bil til við­skipta­vina sinna. Um var að ræða fisk sem hefði átt að farga eða nota í dýra­fóður. Norska mat­væla­stofn­unin rann­sakar nú málið en ekki liggur fyrir hver við­ur­lögin verða.

Fyrirtæki eiganda Fiskeldis Austfjarða seldi skemmdan eldislax til manneldis
Dæmi um lax sem ekki er hæfur til mann­eldis Ekki má selja sárugan lax eða skað­aðan til mann­eldis og ber að farga fiski sem er ekki heill eða nota hann í dýra­fóður. Þetta hefur dótt­ur­fé­lag stærsta hlut­hafa Fisk­eldis Aust­fjarða gert í Noregi. Myndin sýnir lúsétna eld­is­laxa í sjó­kví Arctic Fish í haust. Myndin teng­ist efni frétt­ar­innar ekki með beinum hætti. Mynd: Veiga Grétarsdóttir

Norskt sölu­fyr­ir­tæki í eigu stærsta hlut­hafa Fisk­eldis Aust­fjarða hefur orðið upp­víst að því að hafa selt skemmdan sjó­kvía­eld­is­lax til mann­eldis. Um er að ræða fisk sem hefði átt að farga eða nota í dýra­fóður. Norska mat­væla­stofn­unin rann­sakar nú málið en það er á frum­stigi miðað við orð stofn­un­ar­innar í norskum fjöl­miðlum. 

Stærsti hlut­hafi Fisk­eldis Aust­fjarða heitir Måsøval en dótt­ur­fé­lagið sem seldi skemmda lax­inn heitir Pure Norwegian Seafood. Måsøval á 65 pró­sent í sölu­fyr­ir­tæk­inu og 40 pró­senta hlut í Fiskeldi Aust­fjarða eða Ice Fish Farm. Fyr­ir­tækið stundar lax­eldi á Aust­fjörðum og hefur verið að vinna að því meðal ann­ars að hefja sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði. 

Í til­kynn­ingu frá Måsøval til norsku kaup­hall­ar­innar í gær segir fyr­ir­tækið um málið: „Rann­sóknin sýnir í stuttu máli að PNS [Pure Norwegian Seafood] hefur í mörg …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Matthildur Jóhannsdóttir skrifaði
    Mér verður óglatt. Á ég að hætta að fara á Sushi veitingastaði. ? Ég hef verið fastakúni. 😜
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár