Taugin milli Katrínar og Bjarna og límið í ríkisstjórninni

Ein af þeim spurningum sem vaknað hafa á þessu kjör­tímabili er hvort traust og eða vinarþel Katrínar Jakobs­dóttur og Bjarna Benedikts­sonar sé límið sem heldur ríkis­stjórninni saman í gegnum súrt og sætt. Sögulegt fordæmi er fyrir því að ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins og stjórnmála­aflsins lengst til vinstri á Alþingi hafi verið haldið saman af meðal annars trausti milli formanna flokkanna.

„Við Bjarni erum ekki vinir í þeim skilningi sem vísað er til í fyrir­spurninni – utan vinnu hittumst við fyrst og fremst á viðburðum sem tengjast störfum okkar í ríkis­stjórn. Hins vegar hefur ríkt ágætis traust á milli okkar formanna stjórnar­flokkanna,“ segir forsætis­ráðherra, Katrín Jakobs­dóttir, aðspurð um eðli sambands þeirra Bjarna Benedikts­sonar, utan­ríkis­ráðherra og formanns Sjálfstæðis­flokksins.

Heimildinni lék hugur á að vita hvers eðlis samskipti þeirra eru og hversu miklu máli þau skipta til að halda ríkis­stjórn flokka þeirra og Fram­sóknar saman. Er vinar­þelið og eða traustið á milli formanna Sjálfstæðis­flokksins og Vinstri grænna límið í ríkis­stjórninni?

„Okkar á milli hefur því mynd­ast gott trún­að­ar­sam­band sem hefur hjálpað til við að takast á við þau verk­efni sem við mætum í okkar starfi.“
Katrín Jak­obs­dóttir
for­sæt­is­ráð­herra

Eitt af því sem Heimildin spurði Katrínu að var hvort þau …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Það er eitt að málamiðla, annað að málamiðla sig til ANDSK......hér liggur fyrring Katrínar Jak og hennar fylgifiska sem ennþá styðja xV-flokkinn í skoðanakönnunum, hvar er nýja-stjórnarskráin, breytingar á fiskveiðistjórn í þágu almennings, að bankakerfið sé í eignarhaldi þjóðarinnar/ríkisins.
    2
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Sumir eru til sölu og kosta bara eina tölu. Maður spyr sig, skyldi vera búið að lofa henni feitu djobbi? Ömurlegasti forsætisráðherra allra tíma nema í augum forréttindastéttarinnar, sú stétt dýrkar hana. Hver hefði trúað því að auðmönnum fjölgar í stjórnartíð Katrínar en fátækt eykst. Það eru tölulegar staðreyndir en ekki mín skoðun.
    Skoðun mín á Katrínu Jakobsdóttur er að hún geti varla verið með réttu ráði, vel gefin og falleg kona geti rekist í pólitík með últra hægri hundum. segir mér að annaðhvort er hún heillum horfin eða siðblind.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

BDV-ríkisstjórnin

ÚttektBDV-ríkisstjórnin

Nýtt úrræði fyrir eldri borgara nýtist helst vel stæðum körlum

Tæplega 30% einstaklinga sem fá elli­lífeyri í dag frá Trygginga­stofnun ríkisins mæta skilyrðum um sveigjanlega töku elli­lífeyris sem félags- og jafnréttis­ráðherra samþykkti á síðustu dögum síðasta árs. Hagsmuna­aðillar eru ósáttir við kjör aldraðra og að ráðist sé í svona sértækar aðgerðir á meðan að almennir elli­lífeyris­þegar geta ekki þegið mikil laun.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár