Hagnaðardrifin leigufélög rukka 60 prósent hærri leigu

Hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög rukka 60 pró­sent hærri leigu en óhagn­að­ar­drif­inn félög, sam­kvæmt nýrri töl­fræði Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar, sem byggir á nýum og umfangs­meiri gögnum. Formaður Leigj­enda­sam­tak­ana er ekki hissa.

Hagnaðardrifin leigufélög rukka 60 prósent hærri leigu
Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, Segir að nið­ur­stöð­urnar komi sér ekki á óvart og í takt við grein­ingu Leigj­enda­sam­tak­anna á leigu­mark­að­inum Mynd: Heiða Helgadóttir

Mikill verð­munur er á milli leigu­sala sam­kvæmt nýrri leigu­skrá Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS). Fer­metra­verð í leigu­samn­ingi hjá hagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og ein­stak­lingum er yfir 3.000 krónur.

Á meðan eru bjóða óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög upp á fer­metra sem er undir 2.000 krónum. Fer­metra­verð hús­næðis sem sveit­ar­fé­lög leigja út er rúm­lega 2.500 krónur.

Ný aðferðafræði

Kynn­ing­ar­fundur hjá HMS var haldin í dag þar sem kynnt til sög­unnar upp­færsla á vísi­tölu leigu­verðs sem byggir á gögnum sem safn­ast hafa í nýja leigu­skrá HMS. Áður fyrr var vísi­tala leigu­verðs reiknuð út frá tak­mörk­uðum og á köflum óáreið­an­legum gögnum.

Til dæmis byggði vísi­talan að miklu leyti á gögnum úr þing­lýs­ing­ar­skrá. En HMS hefur um langt skeið barist fyrir því að fá betri gögn og upp­lýs­ingar um leigu­mark­að­inn.  

Undir lok síð­asta árs tóku gildi breyt­ing á húsa­leiglögum sem kveða á um skrán­ingu húsa­leigu­samn­inga. Á kynn­ing­ar­fundi HMS kom fram að um 20.000 leigu­samn­ingar eru skráðir í nýja leigu­skrá HMS.

Sem er um helm­ingi fleiri samn­ingar en þeir voru skráðir voru í leigu­skrá sem fór eftir eldra fyr­ir­komu­lagi. Á fund­inum kom fram að um 60 pró­sent leigu­samn­inga á Íslandi eru skráðir í nýja leigu­skrá HMS. En með til­komu þess­ara nýju gagna getur HMS fylgst betur með verð­lags­þróun á almennum leigu­mark­aði 

Niðurstöðurnar koma ekki á óvart

Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­ana þessar nið­ur­stöður ekki hafa komið sér á óvart. „Þær ríma við þá til­finn­ingu sem við höfum haft,“ segir Guð­mundur. 

Guð­mundur segir að nýja vísi­talan sýni að hús­næð­is­leiga hefur hækkað mikið á unda­förnum árum og nóv­em­ber í fyrra hækk­aði leigan sögu­lega mikið. Þá bendir Guð­mundur á að á sama tíma hefur hægst á verð­hækk­unum á hús­næði.

Nýja vísi­tala borin saman við þá gömlu

Leigan sé í engu sam­ræmi við hús­næð­is­verð, sem „okkur hefur alltaf verið talið í trú um,“ segir Guðmudur. Hann segir hávaxta­skeið og tíma­bil með sögu­lega lágum vöxtum hafa óljós áhrif á leigu­verð. „Eina sem stýrir verð­lagn­inu á leigu­mark­aði er sjálf­taka leigusal­ans,“ segir hann.

„Eina sem stýrir verð­lagn­inu á leigu­mark­aði er sjálf­taka leigusal­ans“
Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­ana

Þá sýnir nýja leigu­vísi­tala HMS vel hvernig hagn­að­ar­drifin fyr­ir­tæki haga sér á leigu­mark­aði að mati Guðmunds. „Við sjáum það best í fram­ferði félags­ins Ölmu sem fer fram algjör­lega óháð aðstæðum á mark­aði að nálg­ast alltaf öll neyð­ar­mörk hjá leigj­endum. Það finnur út úr því hvar þessi mörk liggja og þeir hanga bara þar,“ segir Guð­mundur.

Nýja vísitalan ófullnægjandi

Að öðru leyti kveðst Guð­mundur þó túlka nið­ur­stöður nýrrar launa­vísi­tölu með fyr­ir­vara. „Við erum með 20 þús­und samn­inga sem hafa komið inn frá því í maí. 15 þús­und af þeim samn­ingum eru leigu­fé­lög. Leigu­fé­lögin eru ekki með nema þriðj­ung­inn af mark­að­inum. Það eru ein­ungis fimm þús­und samn­ingar komnir frá ein­stak­lings­leigu­sölum, en þeir eru tveir þriðju af mark­aðnum,“ segir Guð­mundur.  

Þá segir hann Leigj­enda­sam­tökin hafa gagn­rýnt þá stað­reynd að leigu­skráin er aðeins byggð á leigu­samn­ingum frá hagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og ein­stak­lings húsa­leigu. Það vanti félags­lega húsa­leigu og nið­ur­greidda húsa­leigu inn í gagna­safnið. 

„Það er búið að skil­yrða sann­gjarna húsa­leigu, sem kveðið er á um í 37. grein húsa­leigu­laga, við þennan útreikn­ing HMS. Sem reiknar núna bara út frá dýr­ustu húsa­leig­unni,“ segir Guð­mundur.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár