Hiti í fólki á íbúafundi fyrir Grindvíkinga: „Geturðu ekki svarað spurningunni?“

Fyrsti íbúa­fundur íbúa Grinda­víkur hófst í dag klukkan fimm. Þetta er fyrsti íbúa­fund­ur­inn frá því að rýma þurfti bæinn í kjöl­far eld­goss­ins sem hófst sunnu­dag­inn.

Hiti í fólki á íbúafundi fyrir Grindvíkinga: „Geturðu ekki svarað spurningunni?“
Íbúa­fundur íbúa Grinda­víkur Fund­ur­inn hófst klukkan fimm í dag. Mynd: Golli

Íbúa­fundur íbúa Grinda­vík­ur­bæjar í Laug­ar­dals­höll hófst klukkan fimm í dag. Þetta er fyrsti íbúa­fund­ur­inn frá því að rýma þurfti bæinn í kjöl­far eld­goss­ins sem hófst sunnu­dag­inn. 

Til máls taka Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, Kristín Jóns­dóttir, deild­ar­stjóri Veð­ur­stofu Íslands, Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjóri Suð­ur­nesjum, og Ingi­björg Lilja Ómars­dóttir, fag­stjóri hjá almanna­vörnum og stjórn­andi þjón­ustu­mið­stöðvar í Toll­hús­inu. Fund­ar­stjóri er Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri Grinda­víkur.

Að ræðum þeirra loknum tekur við pall­borðsum­ræð. Þar munu Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttr, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra, Magnús Tumi Guð­munds­son, pró­fessor í jarð­eðl­is­fræði, Hulda Ragn­heiður Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingar Íslands, Ari Guð­munds­son, verk­efna­stjóri vegna bygg­ingar varn­ar­garða og sviðs­stjóra hjá Verkís, Sólberg S. Bjarna­son, deild­ar­stjóri almanna­varna og Páll Erland, for­stjóri HS Veitna.

Fundur settur

Fund­ur­inn hófst með því að Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri Grinda­víkur, las upp kveðju frá for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­essyni. For­set­inn sendi hlýjar kveðjur til þeirra sem sækja íbú­ar­fund­inn. Sjálfur er hann staddur í Vest­mann­eyjum. Í kveðj­unni kall­aði for­seti Íslands eftir nýjum heim­ilum fyrir Grind­vík­inga, „heim­ili eru svo mikil kjöl­festa í dag­legu lífi“, segir for­seti Íslands.

For­sæt­is­ráð­herra tók því næst til máls en í ræðu hennar kom fram að enn sem komið er, hefði hún ekki öll svör á reiðum höndum. Katrín lof­aði þó að stjórnin myndi leggja allt á sig til að koma með svörin um leið og hægt væri. Til að mynda verði afkomu­trygg­ing fyr­ir­tækja kynnt fljót­lega. Þá sagði Katrín að hús­næð­is­stuðn­ingur verði fram­lengdur út júní, sem og launa­greiðslur starfs­fólks fyr­ir­tækja í Grinda­vík.

Eins sagði hún að 70 íbúðir verði keyptar í næstu viku til að tryggja hús­næði fyrir Grind­vík­inga.

„Eins lík­legt að við séum á upp­hafs­árum umbrota“
Kristín Jóns­dóttir, deild­ar­stjóri Veð­ur­stofu Íslands,
fór yfir sviðs­myndir og spár um jarð­hrær­ingar á svæð­inu í grennd við Grinda­vík.

Kristín Jóns­dóttir, deild­ar­stjóri Veð­ur­stofu Íslands, tók næst til máls og fór yfir sviðs­myndir og spár um jarð­hrær­ingar í grennd við Grinda­vík á næstu 20 árum. Þar kom meðal ann­ars fram að búast megi við end­ur­teknum gosum við Sund­hnúka­sprung­una.

Mikil óvissa er varð­andi lengd þess­ara umbrota, hvort von sé á einu löngu gos eða nokkrum minni. Kristín sagði að miðað við sög­una á Reykja­nesskag­anum sé jafn lík­legt að við séum stödd á upp­hafs­árum umbrota sem geta spannað nokkur ár og jafn­vel ára­tugi.

Spurningar úr sal

Mikill hiti er í fólki miðað við spurn­ingar úr sal. Bryndís Gunn­laugs­dóttir, íbúi í Grinda­vík, tók til máls og sagði að erf­ið­asti dagur í lífi hennar frá 10. nóv­em­ber hefði verið dag­ur­inn þegar eld­gos­inu lauk og hún sá að húsið hennar var ekki brunnið.

„Vegna þess að ef húsið mitt hefði brunnið, hefði ég fengið fjár­hags­legt sjálf­stæði, ég hefði fengið vissu og ég hefði getað byggt upp nýtt heim­ili og þessi snara sem er utan um mig væri farin,“ sagði Bryndís og kjöl­farið stóðu allir upp í salnum og klöpp­uðu fyrir henni. 

Íbúi í Grinda­víkBryndís Gunn­laugs­dóttir upp­skar lófatak eftir kraft­mikla lýs­ingu á sinni upp­lifun af ástand­inu.

Í svari við spurn­ingu úr sal sagði Katrín Jak­obs­dóttir að miðað sé „við að hægt verði búa í Grinda­vík“. Í kjöl­farið mátti heyr­ast kallað úr salnum: „Geturðu ekki svarað spurn­ing­unni?“ 

Í ræðu sinni sagð­ist Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir fjár­mála­ráð­herra óska þess að rík­is­stjórnin geti svarað öllum spurn­ingum Grind­vík­inga. Hún sagð­ist skilja pirr­ing íbúa Grinda­vík yfir loðnum svörum stjórn­mála­manna. Hins vegar geti hún ekki veitt svör að þessu sinni. Málið verði að vinna af yfir­vegun. 

„Því miður hef ég engar góðar fréttir að færa“
Magnús Tumi Guð­munds­son, pró­fessor í jarð­eðl­is­fræði,
svarar spurn­ingum úr sal

Magnús Tumi Guð­munds­son jarð­fræð­ingur sagði að atburða­rásin veki enga gleði hjá neinum. Það sé alveg ljóst að kvikan nái undir Grinda­vík. Hann tók undir með Kristínu varð­andi að eldsum­brot geti haldið áfram í tölu­vert langan tíma. Miðað við núver­andi aðstæður telji hann ekki skyn­sam­legt að búa í Grinda­vík.

„Ég vil ekki fara að búa í bæ sem er byggður á sandi“
Val­gerður Jenný­ar­dóttir, for­maður félags­mála­nefndar í Grind­ar­vík,
tekur undir með Bryndísi.

Val­gerður Jenný­ar­dóttir, for­maður félags­mála­nefndar í Grinda­vík­urbæ, hefur búið í Grinda­vík í 25 ár. Hún stóð upp á fund­inum og sagð­ist vilja vera borguð út. Hún benti á að huga þurfi að þörfum barn­anna, sér­stak­lega börnum á leik­skóla­aldri. Þá tók hún undir með Bryndísi og sagð­ist ekki fara aftur til Grinda­víkur fyrr en það verði öruggt. 

Beint streymi af íbúa­fund­inum má sjá hér:

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Úrræði stjórnvalda er, að fara inn á nú þegar mjög aðþrengdan húsnæðismarkað og kaupa upp íbúðir. Allir geta séð hvaða afleiðingar það mun hafa.
    Raunveruleg lausn - sem ríkið ætti auðvitað að hafa bolmagn fyrir - er að byggja upp nýtt húsnæði eða flytja inn einingahús eins og gert var eftir gosið í Vestmannaeyjum.
    Best væri auðvitað að finna hentugt svæði à öruggum stað og byggja þar upp byggð fyrir Grindvíkinga sem margir hverjir vilja gjarnan halda sínu samfélagi lifandi.
    En það er eitthvað sem þyrfti að ákveða í nánu samstarfi við Grindvíkinga sjálfa.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár