Umhverfisstofnun stöðvaði framkvæmdir við landfyllinguna

Sveit­ar­fé­lagið Ölfus afl­aði ekki til­skil­inna leyfa til að hefja umdeildar fram­kvæmdir við land­fyll­ingu í Þor­láks­höfn. Elliði Vign­is­son segir sveit­ar­fé­lagið aldrei hafa gefið fram­kvæmda­leyfi.

Umhverfisstofnun stöðvaði framkvæmdir við landfyllinguna
Fram­kvæmdir hófust án leyfa Umhverf­is­stofnun segir að fram­kvæmdir við land­fyll­ing­una í Þor­láks­höfn hafi haf­ist án til­skil­inna leyfa. Elliði Vign­is­son er bæj­ar­stjóri í Ölfusi.

Sveit­ar­fé­lagið Ölfus afl­aði ekki til­skil­inna leyfa til að hefja gerð land­fyll­ingar og dýpk­un­ar­fram­kvæmda í Þor­láks­höfn áður en haf­ist var handa. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð frá Umhverf­is­stofnun frá 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem ákveðið var að stöðva fram­kvæmdir við land­fyll­ing­una og dýpk­un­ina á þessum for­sendum. Fram­kvæmdir við land­fyll­ing­una hafa verið umdeildar, meðal ann­ars vegna gagn­rýni frá Brim­bretta­fé­lagi Íslands sem telur að hún eyði­leggi öld­una við strönd­ina í Þor­láks­höfn. 

Í fund­ar­gerð­inni segir orð­rétt um þetta: „Umhverf­is­stofnun boð­aði til fund­ar­ins til að fylgja eftir ábend­ingu um að fram­kvæmdir væru hafnar án til­skil­inna leyfa. [...] Dýpk­un­ar­fram­kvæmdir eru hafnar og sam­kvæmt full­trúum sveit­ar­fé­lags­ins er unnið að því að ljúka við breyt­ingu á skipu­lagi og áætlað að sækja um til­skilin leyfi í kjöl­farið.“

Í fund­ar­gerð Umhverf­is­stofn­unar kemur fram að sveit­ar­fé­lagið Ölfuss þurfi að afla umræddra leyfa áður en …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Ég hélt að Ingi Freyr myndi upplýsa hver það var sem fyrirskipaði framkvæmdirnar sem komust í fréttir s.l. haust. Úr fréttum RUV 8.okt s.l. Viðtal við Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, bæjarfulltrúa í Ölfusi

    „Þegar ég kem þarna að er mér bara reglulega brugðið að sjá að það er byrjað á þessu. Og meðan ég er þarna kemur að vörubíll sem ætlar að sturta meira hlassi þarna niður og ég stöðva hann og geri honum grein fyrir því að það sé í raun og veru ekki búið að veita leyfi fyrir þessu. Hann segir mér þá að honum hafi verið sagt að það mætti byrja að setja niður þarna efni en svo yrði þetta samþykkt á fundi síðar í vikunni,“ segir Ása.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Æi - bara misskilningur. Má hlæja?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðarmenn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.
Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Stóriðja og land­eldi takast á í eitr­uðu andrums­lofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.
Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár