Hverjir vilja verða næsti forseti?

Þrír hafa til­kynnt um fram­boð sín til for­seta Íslands. Það eru þeir Ástþór Magn­ús­son, Arnar Þór Jónsson og Axel Pétur Axelsson. Aðrir segj­ast íhuga fram­boð. Á síð­ast­liðnum dögum hefur lif­andi umræða skap­ast um það hverjir gætu sómað sér vel á Bessa­stöðum. Kosn­ing­arnar munu fara fram í sumar.

Hverjir vilja verða næsti forseti?
Til­kynn­ing Í gær til­kynntu tveir um fram­boð sín til for­seta Íslands. Mynd: Golli

Eftir að for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, til­kynnti á nýárs­dag að hann myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri hafa þó nokkrir sýnt því áhuga að verða arf­takar hans. Frétta­miðlar hafa líkt stöð­unni við sam­kvæm­is­leik. Nokkur fram­boð hafa þegar verið kynnt og margir verið nefndir sem mögu­legir eða eft­ir­sókn­ar­verðir fram­bjóð­endur. 

Ástþór, Arnar Þór og Axel hafa tilkynnt framboð sín

Í gær, 3. jan­úar, til­kynnti athafna­mað­ur­inn Ástþór Magn­ús­son á fram­boðs­síðu sinni að hann myndi bjóða sig aftur fram til emb­ætt­is­ins. Er þetta í fimmta sinn síðan árið 1996 sem hann býður sig fram.

Fram­bjóð­andiÁstþór bauð sig fram árin 1996, 2004 og 2016. Árin 2000 og 2012 voru fram­boð hans dæmd ógild. Það fyrra vegna of fárra með­mæl­enda, seinna vegna þess að ekki fékkst lög­boðið vott­orð yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Á kosn­inga­vef sínum varar Ástþór við mögu­legri yfir­vof­andi heims­styrj­öld í ljósi þeirra stríðs­á­taka sem nú …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Það er ekki Öll komin Fram enn. Þjoðin hefur ekki viljað Aðila fra Valhöll a Bessastaði
    Það kom i Ljos er Kristjan Eldjarn var kosin með Mikklum meirihluta.
    Er ekki komin timi a Konu i þetta sinn--- Nuverandi Forseti a Glæstan feril að Baki.
    Kristrún Frostadóttir, lifti Krötum a hærra Plan eins og Laxnes sagði eitt sinn.
    Þa var Utfararstjori krata a leið niður.
    Sjalfstæðisflokkur atti aðeins einu sinni att Forseta a Bessastöðum 1944 til 1952
    Yfir honum kvildi Dökkur skuggi. Nei vonandi fær Blaa Höndin ekki það Embætti.
    Kristrún Frostadóttir Þessi Glæsilega Kona mindi SOMA SER VEL ÞAR:
    0
    • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
      Kristrún verður upptekin við hreinsunarstörf á Alþingi
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár