Tómas óskaði sjálfur eftir leyfi frá Landspítalanum

Lækn­ir­inn Tóm­as Guð­bjarts­son fór í leyfi frá störf­um við Land­spít­al­ann að eig­in frum­kvæði. Hann var lækn­ir And­emari­ams Beyene sem lést í kjöl­far plast­barka­ígræðslu ár­ið 2011. Paolo Macchi­ar­ini, sá sem fram­kvæmdi ígræðsl­una, fékk Tóm­as til að halda því fram að aðr­ar með­ferð­ir væru úti­lok­að­ar fyr­ir And­emariam.

Tómas óskaði sjálfur eftir leyfi frá Landspítalanum
Tómas Guð­bjarts­son skurð­læknir á Land­spít­al­anum er við­rið­inn eitt stærsta hneyksl­is­mál nútíma lækna­vís­inda á Vest­ur­löndum. Mynd: KRISTINN INGVARSSON

Tómas Guð­bjarts­son læknir er kom­inn í leyfi frá Land­spít­al­anum. Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Þetta helst á RÚV greindi fyrst frá og var þar haldið fram að brott­hvarf Tómasar frá störfum tengd­ist aðkomu hans að plast­barka­mál­inu. Sögðust umsjón­ar­menn þátt­ar­ins hafa heim­ildir fyrir því að fram­tíð og staða Tómasar væri í skoðun hjá æðstu stjórn­endum Land­spít­al­ans. Ein­hverjir teldu að hann yrði að hætta störfum vegna aðkomu sinnar að plast­barka­ígræðsl­unni á Andemariam Beyene.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar var það Tómas sjálfur sem óskaði þess að fara í leyfi frá störfum. Talsmenn Land­spít­ala sögð­ust ekki geta tjáð sig um málið þegar Heim­ildin hafði sam­band.

Plast­barka­málið er eitt stærsta hneyksl­is­mál síð­ari ára í lækn­is­fræði á Vest­ur­löndum. Í því fólst að skurð­lækn­ir­inn Paolo Macchiarini fram­kvæmdi til­rauna­kenndar aðgerðir þar sem plast­barkar voru græddir í mann­eskjur á einum virtasta spít­ala heims, Karol­inska í Stokk­hólmi. Var það án vís­inda­legra for­sendna, án fyrri próf­ana á dýrum og án sam­þykkis vís­inda­siða­nefndar Sví­þjóðar. Fyrsti plast­bark­inn var græddur í Andemariam Beyene árið 2011.

Aðkoma Tómasar að ígræðslunni

Andemariam, sem kom frá Erítreu, var búsettur á Íslandi og sendur í aðgerð­ina í Svíþjóð í gegnum Land­spít­al­ann. Var hann hald­inn krabba­meini í hálsi sem hafði tekið sig aftur upp. Tómas Guð­bjarts­son var læknir Andemari­ams – sá sem bar ábyrgð á og sá um með­ferð hans. Tómas var þátt­tak­andi í aðgerð­inni árið 2011 og sá sem sá um eft­ir­með­ferð á Íslandi.

Að áeggjan Macchiarinis breytti Tómas til­vísun um sjúk­dóms­á­stand sjúk­lings síns þannig að það liti út fyrir að búið væri að úti­loka allar lækn­is­með­ferðir fyrir hann. Var það til að und­ir­byggja og rétt­læta það að Andemariam geng­ist undir ópróf­aða til­rauna­að­gerð í stað ann­arra með­ferð­ar­úr­ræða.

Ekkja Andemari­ams, Mehrawit Barya­mika­el Tes­faslase, hefur greint frá því að Macchiarini hafi talað mann hennar til og sagt við hann að án aðgerð­ar­innar myndi hann láta lífið. Maðurinn lést, sem og aðrir plast­barka­þegar, eftir að hafa geng­ist undir ígræðsl­una. Dó hann hægum og kvala­fullum dauð­daga en bark­inn virk­aði aldrei sem skyldi.

Ári eftir að Andemariam und­ir­gekkst aðgerð­ina tóku hann, Macchiarini og Tómas Guð­bjarts­son þátt í mál­þingi við Háskóla Íslands. Á þing­inu var aðgerð­inni lýst sem krafta­verki nútíma lækna­vís­inda. Var þessu haldið fram þrátt fyrir að ljóst væri að aðgerðin hefði ekki gengið sem skyldi. Macchiarini hélt í fram­hald­inu áfram að gera sam­bæri­legar aðgerðir á öðru fólki. Var hann í fyrra dæmdur í fang­elsi fyrir að hafa valdið Andemariam og tveimur öðrum sjúk­lingum lík­ams­tjóni með aðgerð­unum. 

Á síð­asta ári bað Land­spít­al­inn Mehrawit afsök­unar fyrir aðkomu sína að mál­inu. Er spít­al­inn eina stofn­unin sem hefur gert það að svo stöddu, en hvorki Karol­inska-sjúkra­húsið né Karol­inska-háskól­inn hafa haft sam­band við ekkju Andemari­ams. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    beint í fangelsi með hann og engar 200kr. þótt farið sé yfir byrjunarreit . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

Uppljóstrarar: „Plastbarkamálið er ennþá opið sár“
FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.
Sjúkratryggingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plastbarkamálinu
GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár