Laxeldisandstæðingum fjölgar um helming

Hlutfall þeirra sem eru and­víg lax­eldi í sjó­kvíum við Ísland óx um 50% á síð­ustu tveimur árum, miðað við kann­anir Maskínu.

Sýktir, deyjandi, dauðir Myndbönd Veigu Grétarsdóttur sýna að allir eldislaxarnir í sjókví Arctic Fish voru sýktir af lús og með sár ofan á hausnum. Sumir voru augljóslega deyjandi - eins og laxinn sem liggur á hliðinni fyrir miðri mynd - á meðan aðrir voru dauðir.

Hlutfall þeirra sem eru and­víg lax­eldi í sjó­kvíum við Ísland hefur vaxið um 50% á síð­ustu tveimur árum; farið úr 46% í ágúst­könnun Maskínu 2021 í 69% í könnun sem fyr­ir­tækið fram­kvæmdi í þessum mán­uði. 

Í ágúst 2021 voru 23% svar­enda hlynnt lax­eldi í skjókvíum en það hlut­fall er nú komið niður í 10%. 

Svipuð þróun hefur átt sér stað hvað varðar lax­eldi á landi á Íslandi en mun fleiri eru þó hlynntir því en sjó­kvía­eld­inu eða 47%. 26% svar­enda sögð­ust and­víg lax­eldi á landi í nýj­ustu könnun Maskínu en í ágúst 2021 voru 14% and­víg því. 

Sjálfstæðismenn hlynntastir en þó ekkert svo hlynntir

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins reynd­ust lík­leg­astir til þess að segj­ast hlynntir lax­eldi í sjó­kvíum en samt voru ein­ungis 21% þeirra hlynntir því. Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar reynd­ust hvað and­víg­astir en 85% þeirra sögð­ust and­vígir lax­eldi í sjó­kvíum við Ísland. 

Heim­ildin birti nýverið mynd­bönd frá Veigu Grét­ars­dóttur, kajakræð­ara og nátt­úru­vernd­ar­sinna, sem sýndu lús- og bakt­er­íuétna laxa í sjó­kvíum Arctic Fish í Tálkna­firði. Mynd­böndin vöktu hörð við­brögð. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LBE
    Lára Brynhildur Eiríksdóttir skrifaði
    ÉG get ekki lengur borðað lax.eftir að hafa séð, sérstaklega myndböndin.sem Veiga Grétarsdóttir sendi, og fleiri.komin með upp í kok.
    2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Mikið af afla uppsjávarveiðiskipa fer í laxafóður og lyftir upp verðinu. Hagsmunirnir liggja víða.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár