Laxeldisandstæðingum fjölgar um helming

Hlutfall þeirra sem eru andvíg laxeldi í sjókvíum við Ísland óx um 50% á síðustu tveimur árum, miðað við kannanir Maskínu.

Sýktir, deyjandi, dauðir Myndbönd Veigu Grétarsdóttur sýna að allir eldislaxarnir í sjókví Arctic Fish voru sýktir af lús og með sár ofan á hausnum. Sumir voru augljóslega deyjandi - eins og laxinn sem liggur á hliðinni fyrir miðri mynd - á meðan aðrir voru dauðir.

Hlutfall þeirra sem eru andvíg laxeldi í sjókvíum við Ísland hefur vaxið um 50% á síðustu tveimur árum; farið úr 46% í ágúst­könnun Maskínu 2021 í 69% í könnun sem fyrir­tækið framkvæmdi í þessum mánuði. 

Í ágúst 2021 voru 23% svarenda hlynnt laxeldi í skjókvíum en það hlutfall er nú komið niður í 10%. 

Svipuð þróun hefur átt sér stað hvað varðar laxeldi á landi á Íslandi en mun fleiri eru þó hlynntir því en sjókvíaeldinu eða 47%. 26% svarenda sögðust andvíg laxeldi á landi í nýjustu könnun Maskínu en í ágúst 2021 voru 14% andvíg því. 

Sjálfstæðismenn hlynntastir en þó ekkert svo hlynntir

Kjósendur Sjálfstæðis­flokksins reyndust líklegastir til þess að segjast hlynntir laxeldi í sjókvíum en samt voru einungis 21% þeirra hlynntir því. Kjósendur Samfylkingarinnar reyndust hvað andvígastir en 85% þeirra sögðust andvígir laxeldi í sjókvíum við Ísland. 

Heimildin birti nýverið myndbönd frá Veigu Grétars­dóttur, kajak­ræðara og náttúru­verndar­sinna, sem sýndu lús- og bakteríu­étna laxa í sjókvíum Arctic Fish í Tálkna­firði. Mynd­böndin vöktu hörð viðbrögð. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LBE
    Lára Brynhildur Eiríksdóttir skrifaði
    ÉG get ekki lengur borðað lax.eftir að hafa séð, sérstaklega myndböndin.sem Veiga Grétarsdóttir sendi, og fleiri.komin með upp í kok.
    2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Mikið af afla uppsjávarveiðiskipa fer í laxafóður og lyftir upp verðinu. Hagsmunirnir liggja víða.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár