Fréttastjóri RÚV: „Við biðjum Grindvíkinga afsökunar“

Frétta­ljós­mynd­ari RÚV reyndi að kom­ast inn í yfir­gefið hús í Grinda­vík og virt­ist leita að hús­lyklum þegar ljóst var að úti­dyrnar voru læstar. „Þetta er klár­lega álits­hnekkir,“ segir Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, frétta­stjóri RÚV. Enn sé óljóst hver beri ábyrgð á að þetta átti sér stað.

Fréttastjóri RÚV: „Við biðjum Grindvíkinga afsökunar“

„Þetta er sann­ar­lega starfs­maður RÚV og okkur finnst þetta ótrú­lega leið­in­legt. Við hörmum þetta mjög,“ segir Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, frétta­stjóri RÚV. 

Myndband úr örygg­is­mynda­vél hjá hús­eig­anda í Grinda­vík sem þurfti að yfir­gefa heim­ili sitt sýnir að ljós­mynd­ari RÚV reynir að kom­ast inn í læst húsið og virð­ist leita að lyklum í blóma­potti eftir að hann kemst að raun um að úti­dyrnar eru læstar. 

Hús­eig­and­inn deildi mynd­band­inu á Facebook fyrir um klukku­stund og hefur það vakið gríð­ar­lega athygli. Hún skrifar með færsl­unni: „Nú er ég reið😡 þetta er ekki í lagi, frétta­menn hafa ekki leyfi til að fara inná heim­ilið mitt! RUV skammist ykkar, set inn mynd­band þið eigið að láta heim­ilin okkar vera í Grinda­vík­ur­bær. Grind­vík­ingar, kíkið á mynda­vél­arnar og sjáið hvort frétta­menn eru að reyna að kom­ast inn.“

Heiðar Örn segir þetta ekki dæmi um vinnu­brögð sem RÚV ástundi. „Við erum búin að yfir­fara vinnu­ferla, búin að tala við ljós­mynd­ara og búin að tala við hús­eig­anda og biðja hana afsök­unar.“

En hver ber ábyrgð?

„Við erum ekki búin að fara yfir það, allan fer­il­inn frá a til ö og ræða við alla. Við eigum eftir að fara betur yfir allt málið.“

Spurður hvaða áhrif þetta hafi fyrir RÚV segir Heiðar Örn: „Þetta er klár­lega álits­hnekkir.“

Uppfært klukkan. 16:08 með til­kynn­ingu sem Heiðar Örn sendi frá sér:

Starfs­maður RÚV sást í dag á örygg­is­mynda­vél reyna að kom­ast inn í yfir­gefið hús og leita að lyklum að læstum dyrum. Frétta­stofa RÚV harmar þetta atvik og biður íbúa húss­ins og alla Grind­vík­inga inni­legrar afsök­unar á því. Frétta­menn RÚV hafa kapp­kostað að fjalla um atburð­ina í Grinda­vík af virð­ingu fyrir íbúum og eigum þeirra, og vinnu­brögðin sem sjást á mynd­skeið­inu eru ekki í anda vinnu­reglna eða þess anda sem frétta­stofan starfar í. Við höfum rekið atvikið til mis­skiln­ings og óða­gots á vett­vangi, en munum í kjöl­farið fara yfir verk­ferla okkar og vinnu­reglur og brýna fyrir öllum þeim sem fara á vett­vang að virða einka­líf og eigur Grind­vík­inga, og valda þeim ekki meiri óþæg­indum eða sorg en þeir upp­lifa fyrir.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • FÖÁ
    Fjölnir Örn Ársælsson skrifaði
    Hvernig er það núna þegar öllum er skylt að yfirgefa heimilin sín. Og ef einnhver blaðamaður og eða þjófur færi inní hús og tæki eigur ófrjálsri hendi. Æti ríkið ekki að taka alla ábyrgð á sig í staðin á meðan fólk getur ekki varið eigur sínar sjálft?
    0
  • Brynja Kjartansdóttir skrifaði
    Takk
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár