Sprunga í gegnum Grindavík

Myndir sýna sprungu sem liggur í gegnum Grindavík. „Stór og löng sprunga hefur opnast á nokkrum stöðum í og við Grindavík vegna kviku­innskotsins.“

Í hópnum Eldfjalla- og náttúruvár­hópur Suður­lands voru rétt í þessu birtar myndir sem sýna sprungu sem liggur í gegnum Grindavík. 

„Stór og löng sprunga hefur opnast á nokkrum stöðum í og við Grindavík vegna kviku­innskotsins.“

Myndirnar tók Ingibergur Þórir Jónasson, Grind­víkingur, á föstudag klukkan 16.30 við suðvestur­horn Grinda­víkur „og sýna skugga­lega þróun innan bæjar­markanna. Tilvist sprungunnar var áður vel þekkt af stað­kunnugum og hún nefnd Stamp­hólsgjá. Sprungan virðst nú hafa gliðnað verulega og jarðvegur fallið ofan í hana,“ segir í færslunni. 

„Þegar horft er í átt til bæjarins sést hvernig sprungan stefnir beint í gegnum miðjan bæinn. Þar hverfa ummerki sprungunnar inn undir mannvirki, en af því litla myndefni sem borist hefur úr bænum um helgina er ljóst að mikið tjón hefur hlotist af þessum sprungu­hreyfingum.“

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja nætur­langt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því

Frá og með morgun­deginum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyrir­tækjum í Grindavík heimilt að fara í bæinn og dvelja þar nætur­langt. Í nýlegri frétta­tilkynningu lögreglu­stjórans á Suðurnesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að innviðir bæjarins séu í lamasessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjósanlegur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár