„Örvænting og óreiða í gangi“ – „Sorglegt“ að ekki megi sækja dýrin

„Hlustið á vís­inda­fólk,“ segir sjálf­boða­liði hjá Dýrfinnu og beinir orðum sínum til yfir­valda. „Ef vís­inda­fólk er að láta vita að það gæti verið gluggi þá þarf að nýta þann glugga til að aðstoða dýrin. Okkur ber skylda til þess að hjálpa dýr­unum.“

„Örvænting og óreiða í gangi“ – „Sorglegt“ að ekki megi sækja dýrin
Vel búin Hanna Evensen, rekstr­ar­stjóri Katt­holts, er við einn lok­un­ar­póst­inn að Grinda­vík, til­búin að fara inn í bæinn að sækja dýr sem þar urðu eftir. Mynd: Golli

„Þetta eru bara ótrú­lega sorg­legar aðgerðir,“ segir Sandra Ósk Jóhanns­dóttir, sjálf­boða­liði hjá Dýrfinnu, um að lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hafi aðeins veitt íbúum eins lít­ils hverfis, Þór­kötlu­staða­hverfis, sem stendur austan við Grinda­vík, leyfi til að fara inn á svæðið. Dýrfinna og fjöldi ann­arra dýra­vernd­un­ar­sam­taka hefur sett saman nokkur teymi fólks sem er til­búið að fara inn í bæinn og sækja dýr sem þar urðu eftir er bær­inn var rýmdur á föstu­dags­kvöldið.

Ekki liggur fyrir hvort eða hvenær mögu­legt verður að fara í sams­konar leið­angra í önnur hverfi. Í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stof­unni um hádegi kom fram að það væri mat vís­inda­manna, eftir stöðu­fund í morgun, að svig­rúm væri til tíma­bund­inna aðgerða til að sækja nauð­synjar í Grinda­vík og nágrenni. Það er hins vegar ekki á valdi vís­inda­mann­anna að taka end­an­lega ákvörðun um hvort fólki sé hleypt inn á lok­unar- og rým­ing­ar­svæði heldur lög­reglu­stjóra. Og hans ákvörðun liggur nú fyrir.

„Við erum ekki alveg að skilja alla þessa upp­lýs­inga­óreiðu sem er til staðar,“ segir Sandra. Til­kynn­ing Veð­ur­stof­unnar hafi borið með sér að fólk gæti kom­ist inn á svæðið, margir hafi lagt af stað í þeim til­gangi að sækja dýrin sín en komið að harð­læstum lok­un­ar­póstum. Hún segir ákvörðun lög­reglu­stjór­ans stang­ast á við mat vís­inda­manna og að það sé sorg­legt ef hægt hefði verið að fara aðrar leiðir. „Það þyrfti í raun að hlusta á vís­inda­fólk og hafa aðgerðir í sam­ræmi við ábend­ingar þess. Ef það er gluggi þá á fólk að geta sótt dýrin sín.“

Tugir katta auk kan­ína, hamstra, hænsna, dúfna og fleiri dýra lok­uð­ust inni í Grinda­vík í kjölfar rým­ing­anna. Margir íbúar höfðu farið úr bænum áður en til þeirra kom, og séð til þess að dýrin hefði nóg að bíta og brenna til skamms tíma, enda ætlun allra að snúa fljótt aftur heim. Ákvörðun um rým­ingu var tekin með stuttum fyr­ir­vara og margir kettir úti og ekki náð­ist að finna þá í tæka tíð.

Að minnsta kosti 62 kettir

„Við vinnum að sam­eig­in­legu mark­miði, öll dýra­vernd­un­ar­sam­tök sem er annt um dýr, að fara inn í Grinda­vík og sækja dýr sem eig­endur geta ekki sótt sjálfir,“ sagði Hanna Evensen, rekstr­ar­stjóri Katt­holts, við ljós­mynd­ara og blaða­mann Heim­ild­ar­innar, þar sem hún var stödd við einn lok­un­ar­póst­inn að Grinda­vík.

For­gangskortiðDýra­vernd­ar­sam­tök hafa útbúið for­gangskort sem sýnir hvar kettir eru í bænum sem eru ýmist læstir inni, lík­lega úti eða að verða matar- og drykkj­ar­lausir.

Hópar frá sam­tök­unum voru staddir við alla lok­un­ar­pósta að bænum, í bílum fullum af búrum, felli­búrum og „alls konar tækjum og bún­aði til að sækja þessi dýr“. Hún sagði full­trúa sam­tak­anna vera að bíða eftir „fyrsta tæki­færi“ til að kom­ast inn. Að minnsta kosti 62 kettir eru í Grinda­vík að sögn Hönnu. Hún telur mjög lík­legt að mörg dýr­anna séu skelfd eftir alla jarð­skjálft­ana og því séu teymin búin róandi spreyjum. Allir í hóp­unum séu með mikla og langa reynslu af því að hand­sama hrædd dýr.

Hanna var með þrjú búr í fang­inu er blaða­maður ræddi við hana „því ég gat ekki borið fleiri“. 

Ótrúlega sárt

„Við erum búin að fá ótrú­lega margar hring­ingar núna frá fólki sem er að reyna að kom­ast inn á svæðið og ná í dýrin sín en fá bara neitun sem er ótrú­lega sárt fyrir þau,“ segir Sandra um stöð­una sem upp er komin. „Þannig að það er ekki mögu­leiki núna fyrir fólk að sækja dýrin sín. Þannig að það er örvænt­ing og óreiða í gangi.“

Sjálf­boða­liðiSandra Ósk Jóhanns­dóttir er sjál­boða­liði hjá Dýrfinnu.

Dýrfinna hafði frum­kvæði að því í gær að óska eftir upp­lýs­ingum frá Grind­vík­ingum um dýr sem ekki tókst að taka með er bær­inn var rýmdur. Gríð­ar­lega margir höfðu sam­band og hafa sam­tökin útbúið ítar­lega lista og kort yfir hvar dýr bæj­ar­ins eru. „Þau dýr sem eru í for­gangi hjá okkur eru þau sem eru læst inni og þau sem eru matar- og vatns­lítil,“ segir Sandra. Ef teymi sam­tak­anna fengju að fara inn á svæðið myndu þau fyrst fara á þau heim­ili. Settir hafa verið á lagg­irnar nokkrir aðgerð­ar­hópar sem gætu á skömmum tíma farið um ákveðin fyrir fram skil­greind svæði og safnað dýr­unum. Einn hópur myndi svo sér­stak­lega ein­beita sér að því að fanga dýr sem eru úti.

Lítið hugað að dýrum

Tæp þrjú ár eru síðan að fyrsta gosið á Reykja­nesi varð frá upp­hafi þrett­ándu aldar. Ljóst var þá þegar, að mati vís­inda­manna, að gos­tíma­bil, með eld­gosum og hléum, væri hafið. Sú hefur verið raunin og þrjú gos orðið á skömmum tíma. Þá hefur langt og mikið skjálfta­tíma­bil nú staðið yfir vikum saman og land­ris verið óvenju mikið við fjallið Þorbjörn. Við­bragðs­á­ætl­anir voru smíð­aðar en aldrei var haft sam­band við Dýrfinnu, sam­taka sem þekkt eru fyrir góð störf við að finna týnd dýr, vegna þeirra. „Við höfum ekki séð neitt um nein dýr í nokkrum rým­ing­ar­á­ætl­unum,“ segir Sandra. „Þetta er mikið áhyggju­efni, sér­stak­lega fyrir fram­tíð­ina. Við erum núna komin á nýtt gos­tíma­bil og það þarf að gera ráð fyrir dýr­unum. Það hefur greini­lega ekki verið gert núna sem er mjög mikið áhyggju­efni.“ Vegna þessa sé mjög þungt hljóðið í félags­mönnum allra helstu dýra­vernd­un­ar­sam­taka Íslands.

Lifandi dýr mikilvægari en hlutir

Í til­kynn­ingu frá almanna­vörnum eftir hádegi, þar sem ákvörðun lög­reglu­stjór­ans var tíunduð, var tekið fram að íbúar Þór­kötlu­staða­hverfis fengju að fara inn á svæðið en ein­göngu til að sækja „gælu­dýr og ómissandi eigur“. Áður hefur oft­ast aðeins verið talað um að sækja nauð­synjar og verð­mæti í til­kynn­ingum og við­tölum við yfir­völd. „Það hlýtur að segja sig svo­lítið sjáft að lif­andi dýr er mik­il­væg­ara en hlutir sem hægt er að end­ur­nýja,“ segir Sandra með áherslu. „Það er ekki hægt að bera saman dauða hluti og líf­verur.“

Skilaboð Söndru til yfir­valda eru skýr: „Hlustið á vís­inda­fólk. Ef vís­inda­fólk er að láta vita að það gæti verið gluggi þá þarf að nýta þá glugga til að aðstoða dýrin. Okkur ber skylda til þess að hjálpa dýr­unum.“

 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Erna Hákonar skrifaði
    Sorgleg þessi þrjóska. Hér er góðhjarta fólk að bjóðast til að fara inn til að bjarga dýrunum og þau hefðu öll getað verið komin á öruggan stað núþegar. Er engin samviska hjá löggunni? Bjargið dýrunum.
    0
  • LBE
    Lára Brynhildur Eiríksdóttir skrifaði
    Sorglegt að Lögreglustjóri leyfi ekki fólki að ná í dýrin sín, er það of mikið vesen fyrir hann að standa í því. Of mikið álag? Ræður hann ekki við verkefnið??
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár