Nýtt mat: Búast má við fyrirvaralausu gosi, jafnvel sprengigosi

Auknar líkur eru á eld­gosi nærri Grinda­vík og mögu­legt að það verði sprengigos með til­heyr­andi ösku­falli, sam­kvæmt upp­færðu mati vís­inda­manna og almanna­varna. Kvika nálg­ast enn yfir­borðið og var aðeins 800 metrum frá yfir­borð­inu vestan við Grinda­vík í morgun.

Nýtt mat: Búast má við fyrirvaralausu gosi, jafnvel sprengigosi
Frá upp­lýs­inga­fundi almanna­varna Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna, og Fannar Jónsson, bæj­ar­stjóri í Grinda­vík, á fundi Almanna­varna. Mynd: Gollli

Allir við­bragðs­að­ilar hafa verið kall­aðir frá Grinda­vík, eftir að nýtt mat vís­inda­manna sýndi aukna hættu á svæð­inu. Kvika var á aðeins 800 metra dýpi skammt vestan við Grinda­vík í morgun og hefur að lík­indum færst enn nær yfir­borð­inu.

Ekki verður hægt að treysta á að gos­órói mælist í und­an­fara eld­goss, sem nú er metið enn lík­legra en áður sam­kvæmt nýjasta mati eftir stöðu­fund vís­inda­manna á Veð­ur­stofu Íslands, Háskóla Íslands og almanna­varna klukkan 18 í dag.

„Líkur á eld­gosi á hafs­botni hafa einnig auk­ist og búa þarf sig undir mögu­leika á sprengigosi,“ segir í til­kynn­ingu Nátt­úru­vaktar Veð­ur­stofu Íslands sem barst rétt í þessu. Fyrr í dag hafði Veð­ur­stofan sagt sprengigos ólík­legt. Verði sprengigos er lík­legt að mikið ösku­fall verði og geti náð í tuga kíló­metra fjar­lægð. Spáð er aust­an­áttum næstu daga og því myndi ösku­dreif­ing liggja frá öðrum byggðum.

Tekið er fram í stöðu­færslu Veð­ur­stof­unnar að byggt er á 12 klukku­stunda gömlum gervi­hnatta­myndum og að kvikan sé lík­lega nær yfir­borð­inu en kemur fram í mat­inu.

„Kviku­gang­ur­inn er um 15 km langur og kvikan liggur á um 800 m dýpi þar sem hún er grynnst ... Auknar líkur eru einnig á að kvika geti komið upp á hafs­botni,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Sprengigos sem þessi geta haft í för með sér svokölluð gust­hlaup, sem eru eld­heit gjósku­ský sem ferð­ast með jörð­inni í allt að tvo kíló­metra. Samkvæmt mati Þor­valdar Þórð­ar­sonar jarð­eðl­is­fræð­ings í sam­tali við mbl.is er ekki lík­legt að sprengigos yrði afl­mikið á þessum stað, eins og reyndin getur orðið í Heklu, Öræfajökli eða Eyja­fjalla­jökli. 

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá Nátt­úru­vakt Veð­ur­stofu Íslands í heild sinni:

„Líkön sýna 15 km langan kviku­gang sem liggur rétt norð­vestan Grinda­víkur. Vegna mik­illar spennu­los­unar á svæð­inu er ekki hægt að gera ráð fyrir að gos­órói mælist áður en eld­gos hefst.

Kviku­gangur við Grinda­víkNýtt mat vís­inda­manna er að kviku­gang­ur­inn sé 15 kíló­metra langur, en áður var hann met­inn 12 kíló­metrar. Kvikan var aðeins um 800 metrum frá yfir­borð­inu skammt vestan við Grinda­vík, sem er við sjó, eins og sést á kort­inu.

Klukkan 18 lauk stöðu­fundi vís­inda­manna á Veð­ur­stofu Íslands og Háskóla Íslands og Almanna­varna þar sem farið var yfir túlkun á nýj­ustu gögnum sem borist hafa frá því á hádegi í dag. Unnin voru líkön út frá gervi­tungla­myndum og GPS mæl­ingum. Líkön sýna að umfang kviku­gangs­ins er veru­legt og kvika er að nálg­ast yfir­borð. Gang­ur­inn nær frá Kálf­fells­heiði í norðri og liggur rétt vestan Grinda­víkur og í sjó fram í suð­vestur stefnu. Kviku­gang­ur­inn er um 15 km langur og kvikan liggur á um 800 m dýpi þar sem hún er grynnst. Það skal tekið fram að lík­önin byggja á gervi­tungla­gögnum sem eru um 12 klukku­stunda gömul og því þarf að gera ráð fyrir að kvikan hafi færst nær yfir­borði en 800 m. Út frá þessu má álykta að veru­legar líkur eru á að kvika nái að brjóta sér leið til yfir­borðs. Auknar líkur eru einnig á að kvika geti komið upp á hafs­botni.

Dregið hefur mikið úr jarð­skjálfta­virkni eftir hádegi í dag. Talið er að megin ástæða þess sé mikil spennu­losun á svæð­inu vegna jarð­skjálfta gær­dags­ins og aflög­unar vegna kviku­gangs­ins. Vegna spennu­los­un­ar­innar er lík­legt að kvikan eigi greiða leið til yfir­borðs og því er ekki hægt að gera ráð fyrir því að gos­órói sjá­ist á mælum áður en eld­gos hefst.

Byggt á túlkun nýj­ustu gagna hefur Veð­ur­stofan sent til­mæli til almanna­varna að líkur á eld­gosi hafi auk­ist frá því í morgun og að eld­gos geti haf­ist hvenær sem er á næstu dögum. Líkön benda einnig til þess að kvika geti komið upp á syðri enda kviku­gangs­ins rétt utan Grinda­víkur. Líkur á eld­gosi á hafs­botni hafa einnig auk­ist og búa þarf sig undir mögu­leika á sprengigosi. Hættu­svæði hefur verið skil­greint út frá legu kviku­gangs­ins.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár