Veðurstofan segir „ólíklegt“ að gos hefjist undir hafsbotni utan Grindavíkur

Sér­fræð­ingar Veð­ur­stof­unnar segja að sam­kvæmt gervi­tungla­gögnum síðan í gær­kvöldi, hafi dýpi niður á topp kviku­gangs­ins norður af Grinda­vík verið áætlað um 1,5 km. „Líkur á eld­gosi á næst­unni verða að telj­ast veru­legar,“ segir í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands. Talið er „ólík­legt“ að gos fari af stað undir hafs­botni.

Veðurstofan segir „ólíklegt“ að gos hefjist undir hafsbotni utan Grindavíkur
Grinda­vík Bærinn var rýmdur seint í gær­kvöldi, eftir að ljóst þótti að kviku­gangur næði undir bæinn.

Veð­ur­stofa Íslands segir að líkur á eld­gosi á næst­unni verði að telj­ast veru­legar, en þar eru sér­fræð­ingar nú að vinna úr þeim gögnum sem borist hafa í gær­kvöldi og í nótt.

Samkvæmt „allra fyrstu lík­an­reikn­ingum“ sem byggja á gervi­tungla­myndum frá því í gær­kvöldi, var dýpið niður á topp kviku­gangs­ins norðan Grinda­víkur áætlað um 1,5 kíló­metrar.

„Ólíklegt“ að kvika komi upp á hafsbotni

Veð­ur­stofan segir að sam­kvæmt GPS gögnum sé hraði aflög­un­ar­innar „marg­faldur á við það sem mælst hefur í umbrot­unum á Reykja­nesskaga“ og að út frá þeim mæl­ingum og gervi­tungla­myndum „virð­ist stærð kviku­gangs­ins og kvikuflæðið honum tengdum vera marg­falt á við það sem áður hefur mælst í umbrot­unum á Reykja­nesskaga síð­ustu ár.“

Mögu­leik­inn á sprengigosi á hafs­botni, sem væri allt ann­ars eðlis en hraun­gos á landi, hefur verið til umræðu eftir að ljóst þótti að kviku­gang­ur­inn væri búinn að teygja sig undir hafs­botn­inn. Veð­ur­stofan segir „ólík­legt“ að kvikan komi upp á hafs­botni.

„Þótt líkön bendi til þess að kviku­gang­ur­inn teygi sig út í sjó suður af Grinda­vík, þá er ólík­legt að kvika komi upp á hafs­botni, ef horft er til gossög­unnar á þessu svæði auk þess sem gliðnun þar er mun minni en við mið­bik sprung­unnar við Sund­hnjúka­gíga,“ segir í til­kynn­ingu Veð­ur­stof­unnar. 

Til­kynn­ing Veð­ur­stofu Íslands í heild sinni:

Um 800 skjálftar hafa mælst á umbrota­svæð­inu frá því á mið­nætti. Aðeins hefur dregið úr skjálfta­virkn­inni síð­ustu klukku­tím­ana, sem mælist þó ennþá mikil. Mesta skjálfta­virknin síð­ustu klukku­stund­irnar hefur verið við suð­vestur enda gangs­ins nærri Grinda­vík.

Verið er að vinna úr þeim gögnum sem borist hafa í gær­kvöldi og nótt. Mark­miðið er að átta sig betur á umfangi kviku­hreyf­ing­anna sem mælst hafa. Gögnin benda til þess að kviku­gang­ur­inn nái frá Stóra-Skógs­felli í norðri og suður fyrir Grinda­vík­urbæ út í sjó. Samkvæmt allra fyrstu lík­an­reikn­ingum, byggt á gervi­tungla­gögnum síðan í gær­kvöldi, var dýpi niður á topp kviku­gangs­ins norður af Grinda­vík áætlað um 1,5 km. Út frá nýj­ustu GPS gögnum er hraði aflög­un­ar­innar marg­faldur á við það sem mælst hefur í umbrot­unum á Reykja­nesskaga. Út frá þeim mæl­ingum og gervi­tungla­myndum virð­ist stærð kviku­gangs­ins og kvikuflæðið honum tengdum vera marg­falt á við það sem áður hefur mælst í umbrot­unum á Reykja­nesskaga síð­ustu ár. Þótt líkön bendi til þess að kviku­gang­ur­inn teygi sig út í sjó suður af Grinda­vík, þá er ólík­legt að kvika komi upp á hafs­botni, ef horft er til gossög­unnar á þessu svæði auk þess sem gliðnun þar er mun minni en við mið­bik sprung­unnar við Sund­hnjúka­gíga.

Vís­inda­menn funda reglu­lega til að túlka þau gögn sem aflað er. Búist er við nýjum aflög­un­ar­gögnum síðar í dag sem gefur skýr­ari mynd af þróun atburða­rás­ar­innar. Blaða­manna­fundur verður hald­inn í hús­næði almanna­varna kl. 12 í dag þar sem farið verður betur yfir stöðu mála og mögu­legar sviðs­myndir.

Líkur á eld­gosi á næst­unni verða að telj­ast veru­legar.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár