Mynd: Golli

Baráttan þarf að halda áfram - Myndaþáttur frá kvennaverkfalli

Krafan í kjöl­far kvenna­verk­falls­ins er að van­mat á „svoköll­uðum“ kvenna­störfum sé leið­rétt, að karlar taki ábyrgð á ólaun­uðum heim­il­is­störfum og að konur og kvár njóti öryggis og frelsis frá ofbeldi og áreitni. Þetta er meðal þess sem var sam­þykkt á úti­fund­inum á Arn­ar­hóli. Áhrifa­konur í jafn­rétt­is­bar­átt­unni segja nauð­syn­legt að fylgja þessum kröfum eftir og þar skipti áherslur stjórn­valda sköpum.

Talið er að um sjö­tíu til hund­rað þús­und manns, aðal­lega konur, hafi tekið þátt í úti­fundi á Arn­ar­hóli þann 24. októ­ber þegar boðað var til kvenna­verk­falls. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1975 sem konur, og nú líka kvár, voru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf í heilan sól­ar­hring.

Ýmsar kröfur voru sam­þykktar á fund­inum og ljóst að þeim þarf að fylgja eftir. Áherslan í ár var ekki aðeins á að útrýma launa­mis­rétti kynj­anna heldur einnig á kyn­bundið ofbeldi og þriðju vakt­ina, ólaun­aða vinnu í tengslum við heim­ili og fjöl­skyldu, sem að miklu leyti lendir á konum. 

Mögnuð stemning á útifundinum

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir tók þátt í kvenna­verk­fall­inu og mætti á Arnarhól. „Mér fannst stemn­ingin vera ótrú­lega mögnuð og langt umfram það sem maður gat búist við,“ segir hún. Ingi­björg Sólrún hefur borið marga titla á ferl­inum en hún hefur alltaf lagt áherslu á jafn­rétti. Hún var til að mynda þing­kona Kvenna­list­ans, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, svæð­is­stjóri UN Women í Istanbúl og yfir­maður lýð­ræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu.

„Það þarf öfl­uga for­ystu af hálfu þeirra sem ráða í stjórn­ar­ráð­inu“
Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir

„Það er mik­il­vægt að fylgja kröfum fund­ar­ins eftir gagn­vart stétt­ar­fé­lög­unum og í kjara­samn­ingum. Það er mik­il­vægur vett­vangur til að ná fram launa­jafn­rétti, og eðli­legu og sann­gjörnu mati á hefð­bundnum kvenna­störfum. Síðan er það skóla­kerfið og mennta­kerfið. Það er ekki síst mik­il­vægt að auka fræðslu, til að mynda um kyn­bundið ofbeldi. Síðan þurfa ýmsar stofn­anir að taka til hjá sér, ekki síst þegar kemur að dóms­kerf­inu. Það þarf öfl­uga for­ystu af hálfu þeirra sem ráða í stjórn­ar­ráð­inu,“ segir Ingi­björg Sólrún. 

Grunnur velferðarkerfisins mannaður konum

Kristín Ást­geirs­dóttir er einnig fyrr­ver­andi þing­kona Kvenna­list­ans, hún hefur líka verið fram­kvæmda­stýra Jafn­rétt­is­stofu og er ein þeirra sem komu að skipu­lagn­ingu kvenna­verk­falls­ins í ár. 

„Nú þarf að fara yfir þær kröfur sem þarna voru settar fram, for­gangs­raða og skerpa fók­us­inn. Það þarf að fylgja eftir þessum kröfum gagn­vart rík­is­vald­inu, sveit­ar­fé­lögum og/eða vinnu­mark­aðnum eftir því sem við á,“ segir hún. 

Kristín leggur áherslu á að end­ur­meta þurfi virði svo­kall­aðra kvenna­starfa. „Mér finnst það vera stór­mál. Það er gríð­ar­legt álag á þessum stéttum og mann­ekla. Hér er ég að tala um bæði heil­brigð­is­kerfið og mennta­kerfið. Það er skortur á sjúkra­liðum og hjúkr­un­ar­fræð­ingum. Þessar stéttir mynda vel­ferð­ar­kerfið sem er grunn­ur­inn að því að þjóð­fé­lagið okkar gangi,“ segir hún. 

Því næst nefnir hún mik­il­vægi stór­auk­inna aðgerða gegn kyn­bundnu ofbeldi. „Með fókus á ger­endur. Allt þetta klá­m­á­horf hefur áhrif á strák­ana. Það þarf að kenna þeim hvar mörkin liggja,“ segir hún. 

Margt enn óunnið frá 1975

Gerður Stein­þórs­dóttir er ein af þeim sem komu að skipu­lagn­ingu kvenna­frí­dags­ins 1975 en það ár var Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna helgað mál­efnum kvenna. Talið er að um 25 þús­und konur hafi þá komið saman í miðbæ Reykja­víkur. 

„Að sumu leyti eru þetta sömu vanda­mál“
Gerður Stein­þórs­dóttir

Gerður segir margt enn óunnið, þrátt fyrir þann tíma sem lið­inn er síðan, eða 48 ár. „Að sumu leyti eru þetta sömu vanda­mál. Það hefur gengið hægt að ná launa­jafn­rétti. Mér finnst þessi lág­launa­stefna þegar kemur að kvenna­störfum vera hneyksli. Mér finnst skömm að því að fólk, aðal­lega konur, vinni fullan vinnu­dag án þess að geta lifað af laun­unum,“ segir hún. 

Gerður upp­lifði sam­stöðu á úti­fund­inum en líka reiði. „Það er komið upp óþol. Krafan er að þetta gamla karla­veldi víki. Það er líka krafa að karl­menn taki meiri þátt inni á heim­il­inu, taki meiri ábyrgð á þriðju vakt­inni. Mér finnst vera spenna í sam­fé­lag­inu,“ segir hún.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvennaverkfall

Slíta samstarfi vegna kvennaverkfallsins: „Stríðir gegn gildum“
InnlentKvennaverkfall

Slíta sam­starfi vegna kvenna­verk­falls­ins: „Stríðir gegn gildum“

Kvenna­verk­fall hefur áhrif á bóka­út­gáfu. Knatt­spyrnu­versl­un­inn Heima­völl­ur­inn hefur ákveðið að slíta sam­starfi við Pennann/Eymunds­son en til stóð að halda útgáfu­hóf í til að fagna útgáfu bókar sem Sveindís Jane Jóns­dóttir, lands­liðs­kona í knatt­spyrnu, skrif­aði. Ástæða fyrir sam­starfs­slit­unum er að sögn Heim­vall­ar­ins afstaða Pennans/Eymunds­son á verk­falls­degi kvenna og kvára þann 24. októ­ber. „Til stóð að Heima­völl­ur­inn myndi halda útgáfu­hóf í dag...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár