Formaður Samfylkingarinnar: „Við erum auðvitað tilbúin í kosningar“

Sam­fylk­ingin er til­búin í kosn­ingar að sögn Kristrúnar Frosta­dóttur, for­manns flokks­ins. Ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar um afsögn var rétt að hennar mati og telur hún ekk­ert annað í stöð­unni en að setja áfram­hald­andi sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka á ís.

<span>Formaður Samfylkingarinnar: </span>„Við erum auðvitað tilbúin í kosningar“
Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar „Í mínum huga er þetta ein­falt mál. Hann braut hæf­is­reglur,“ segir Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis um van­hæfi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Sam­fylk­ingin er til­búin í kosn­ingar. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þetta var rétt ákvörðun hjá Bjarna í þetta skiptið, að axla ábyrgð,“ segir Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði af sér sem ráð­herra á blaða­manna­fundi í morgun. Umboðs­maður Alþingis hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni var ekki hæfur til að selja föður sínum, Benedikt Sveins­syni, hluti í Íslands­banka á síð­asta ári.

„Það var alveg rétt sem hann lét hafa eftir sér að honum var ekki kleift lengur að sinna sínum verk­efnum,“ segir Kristrún. Áður hafði Bjarni sagt að hann hafi aldrei hafa hug­að að van­hæfi sínu við sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í Ís­lands­banka þrátt fyr­ir að fað­ir hans væri með­al kaup­enda. Á opn­um fundi í fjár­laga­nefnd um söl­una í apríl í fyrra sagði hann lög­skýr­ing­ar um van­hæfi sitt sam­kvæmt stjórn­sýslu­lög­um frá­leit­ar.

Enn önnur niðurstaðan um ábótavant útboð

„Í mínum huga er þetta ein­falt mál. Hann braut hæf­is­reglur. Hann bar fyrir sig, sem var mjög fyr­ir­sjá­an­legt, að fyr­ir­komu­lag söl­unnar hafi verið með þeim hætti að hann hefði ekki getað vitað hver var að kaupa. Þá var auð­vitað fyr­ir­komu­lag söl­unnar ekk full­nægj­andi, vegna þess að hann getur ekki sagt sig frá hæf­is­reglum. Þetta er enn önnur nið­ur­staðan sem sýnir að utan­um­haldið um þetta útboð var veru­lega ábóta­vant,“ segir Kristrún. 

Afsögn Bjarna eru mikil tíma­mót að sögn Kristrúnar. „Maðurinn hefur verið fjár­mála­ráð­herra nær óslitið í að verða ára­tug.“ Af hverju hann tekur þessa ákvörðun nú segir Kristrún hægt að skýra með upp­söfn­uðum nið­ur­stöðum af þeim úttektum sem fram­kvæmdar hafa verið um sölu­ferlið. 

„Þetta er enn önnur nið­ur­staðan sem sýnir að utan­um­haldið um þetta útboð var veru­lega ábóta­vant“

Í úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar kom fram að jafn­ræðis hafi ekki verið gætt í útboð­inu. „Svo fáum við nið­ur­stöðu FME þar sem kemur fram að þetta útboð hafi verið á eins konar sjálf­stýr­ingu. Og núna erum við að fá nið­ur­stöðu frá umboðs­manni sem snýr sér­stak­lega að hæfi ráð­herra í útboð­inu. Ég veit auð­vitað ekki hvað fer í gegnum huga ráð­herra en ég get rétt ímyndað mér að upp­safnað þá hljóti þetta að hafa tals­verð áhrif og að hann hafi ein­fald­lega upp­lifað að hann gæti ekki staðið undir þessu hlut­verki í fram­hald­inu,“ segir Kristrún.

„Hann er að hætta á þeim for­sendum að honum sé ekki kleift að sinna sínum verk­efnum lengur og ég held að rík­is­stjórnin í heild sinni þurfi að svara þeirri spurn­ingu hvort henni sé í raun kleift að sinna þeim verk­efnum sem nú liggja fyrir og skipta fólkið í land­inu mestu máli.

Þá er okkur í Sam­fylk­ing­unni mest umhugað um stöð­una í efna­hags­málum og stóru vel­ferð­ar­málum. Ég veit auð­vitað ekki frekar en almenn­ingur í land­inu þau munu taka, við þurfum að bregð­ast við því eftir sem dag­ur­inn þró­ast.“

Vill setja söluna á ís

„Við erum auð­vitað til­búin í kosn­ingar, en það er ekki í okkar höndum,“ segir Kristrún. 

Gert er ráð fyrir frek­ari sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar. Kristrún segir að áform um frek­ari sölu hljóti að verða sett á ís. 

„Mér var brugðið þegar ég sá að það var gert ráð fyrir í núver­andi fjár­laga­frum­varpi að það yrði klárað að selja Íslands­banka. Það voru ekki for­sendur til þess í upp­hafi vetrar, þær eru svo sann­ar­lega ekki til staðar núna. Að mínu mati er ekki búið að skapa frið um áfram­hald­andi sölu þó Bjarni Bene­dikts­son hafi stigið til hliðar. Það er ýmis­legt annað sem þarf að skoða í þessu sam­hengi en það hlýtur að vera að áfram­hald­andi sala verði sett á ís.“  

Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar mun funda og fara yfir stöð­una áður en þing­fundur hefst klukkan 13:30. Aðspurð við hverju megi búast á þing­fundi segir Kristrún að það fari eftir þróun mála næstu mín­út­urnar hrein­lega.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Auðvitað. Kerfið stendur óbreytt, allir I raðneytinu halda sínu. Bjarni fer. Og haldið þið virkilega að eitthvað hafi breyst? Nýr flokkur komi svífandi á skýi syngjandi sálma ? Aumkvert að sjá að skúbb og mannaskipti eru nóg. Kerfið mun valta áfram
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
Að selja banka í góðri trú og armslengd
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.
Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár