Hvalárvirkjun, Krýsuvík og Eldvörp í forgangi hjá HS Orku

HS Orka er að „fjár­festa veru­lega í auk­inni orku­öflun,“ segir Birna Lár­us­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins. Hval­ár­virkjun á Ströndum, sem harð­lega var deilt um á sínum tíma, er þar ofar­lega á blaði.

Hvalárvirkjun, Krýsuvík og Eldvörp í forgangi hjá HS Orku
Til jök­uls Með Hval­ár­virkjun yrði stöðu­vötnum á Ófeigs­fjarð­ar­heiði breytt í lón og rennsli þriggja áa virkjað. Frá heið­inni sést vel til Dranga­jök­uls. Helst er horft til þess að tengja virkj­un­ina við tengi­punkt í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Sá er ekki til staðar í dag en á teikni­borð­inu. Mynd: Golli

HS Orka vinnur að nokkrum stækk­un­ar­verk­efnum á núverndi virkj­un­ar­svæðum sínum sem gætu skilað yfir 100 MW inn á flutn­ings­kerfi raf­orku. Jafn­framt er unnið að þremur nýjum verk­efnum, virkj­un­ar­kostum sem allir eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar. Þar er um að ræða einn kost í vatns­afli, Hval­ár­virkjun í Árnes­hreppi, og tvo jarð­varma­kosti, annan við Eldvörp á Reykja­nesi og hinn á Krýsu­vík­ur­svæð­inu.

Tvö orku­frek verk­efni sem áformuð eru á Reykja­nesi hafa nýverið verið kynnt til sög­unnar og í báðum til­vikum hefur verið samið við HS Orku um afhend­ingu á raf­orku. Annað er metan- og vetn­is­fram­leiðsla Norður PTX Reykja­nes. Í umhverf­is­skýrslu segir að orkan, 56 MW, muni koma frá Reykja­nes­virkjun. Hin fram­kvæmdin sem um ræðir er land­eldi Samherja sem þyrfti 16 MW. Bæði verk­efnin miða að því að flytja fram­leiðslu­vöru sína að lang­mestu leyti úr landi.

„Verk­efnin eru ekki af þeirri stærð eða með slíkar tíma­setn­ingar að nauð­syn­legt sé að virkja sér­stak­lega fyrir þau,“ segir Birna Lár­us­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi HS Orku, í skrif­legum svörum við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. „Hins vegar hefur og er HS Orka að fjár­festa veru­lega í auk­inni orku­öflun.“

Engin þess­ara fjár­fest­inga sé eyrna­merkt sér­stökum við­skipta­vinum en upp­sett fram­leiðslu­geta í þeim sé af sömu stærð­argráðu og til dæmis þessir við­skipta­vinir myndu þurfa.

Stækkanir tveggja virkjana

Reykja­nes­virkjun var nýverið stækkuð og var við­bótin tekin í notkun í árs­byrjun 2023. Með henni jókst fram­leiðslu­geta virkj­un­ar­innar úr 100 MW í 130 MW.

Þá standa fram­kvæmdir nú yfir við stækkun og end­ur­bætur á orku­ver­inu í Svarts­engi. Að fram­kvæmdum loknum er áætlað að fram­leiðslu­geta Svarts­engis auk­ist um tæp­lega þriðj­ung. „Í fram­kvæmd­inni felst að eldri fram­leiðslu­ein­ingar verða teknar út og ný fram­leiðslu­ein­ing sett í stað­inn, sem mun bæta nýt­ingu auð­lind­ar­innar og auka fram­leiðslu­getu vers­ins upp í 85 MW,“ segir Birna.

Upp­lýs­inga­full­trúiBirna Lár­us­dóttir.

„Það mun taka 5-10 ár að ná fullri orku­af­hend­ingu til Norður PTX Reykja­nes og land­eldis Samherja fisk­eldis á Reykja­nesi,“ heldur hún áfram. „Við gerum ráð fyrir þessu magni í okkar áætl­unum og sköpum ráð­rúm til afhend­ingar eftir því sem fram­leiðsla okkar þró­ast sam­hliða eðli­legum hreyf­ingum við­skipta­vina á mark­aði.“

Innan næstu tíu ára gætu þró­un­ar­verk­efni HS Orku kom­ist til fram­kvæmda og skilað yfir 100 MW inn á flutn­ings­kerfið, að sögn Birnu. Þar er um að ræða stækk­un­ar­verkerk­efni á núver­andi virkj­un­ar­svæðum auk verk­efna í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar sem HS Orka vinnur að: Eldvörp, Krýsuvík og Hval­ár­virkjun.

Orkan í Eldvörpum ofmetin

Rann­sóknir í Eld­vörpum benda til þess að svæðið sé mjög tengt jarð­hita­svæð­inu í Svarts­engi, segir Birna. „Því höfum við miðað vinnu okkar að und­an­förnu við að svæðið verði í raun nýtt frá virkj­un­inni í Svarts­engi.“

GígaröðEldvörp eru tæp­lega 10 kíló­metra löng gíga­röð um 4 kíló­metrum suð­vestan við Bláa lónið og Svarts­engi. Vatns­geymir Eldvarpa og Svarts­engis er hinn sami.

Ekki liggi fyrir hversu mikil aukn­ing í fram­leiðslu­getu gæti fylgt því svæði en í ramma­á­ætlun sé miðað við 50 MW. „Rann­sóknir okkar, sem þó eru stutt á veg komnar, benda til þess að það sé ofmetið,“ segir Birna.

HS Orka er með rann­sókn­ar­leyfi á Krýsu­vík­ur­svæð­inu og und­ir­býr rann­sóknir á grund­velli vilja­yf­ir­lýs­ingar milli HS Orku og Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar sem und­ir­rituð var haustið 2022. „Virkjun í Krýsuvík er ekki síst ætluð til hús­hit­unar en skortur á heitu vatni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er fyr­ir­sjá­an­legur í náinni fram­tíð.“

Orkan úr Hvalárvirkjun á almennan markað

Vest­ur­Verk, sem HS Orka á um 80 pró­sent eign­ar­hlut í, er með nokkra virkj­un­ar­kosti á sínu teikni­borði og af þeim er Hval­ár­virkjun í Árnes­hreppi lengst komin að sögn Birnu. Hún bendir á að þessi orku­kostur sé í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar og sé hugs­aður fyrir almennan markað „og til að bæta afhend­ingar­ör­yggi raf­orku á Vest­fjörðum“.

Virkj­un­ar­kost­ur­inn Hval­ár­virkjun var sett­ur í ork­u­nýt­ing­ar­flokk ramm­a­áætl­un­ar árið 2013 og gert ráð fyr­ir hon­um í aðal­skipu­lagi Árnes­hrepps ári síðar. Þegar hef­ur farið fram mat á um­hverf­isá­hrif­um.

Í víð­ernum Vest­fjarðaYfir­lit­skort af nágrenni fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar.

Hval­ár­virkjun yrði reist í eyði­firð­inum Ófeigs­firði í Árnes­hreppi á Ströndum. Rennsli þriggja áa á Ófeigs­fjarðar­heiði yrði virkjað: Hvalár, Rjúkanda og Ey­vind­ar­fjarð­arár. Gert hefur verið ráð fyr­ir að afl virkj­un­ar­inn­ar yrði 55 MW og orku­fram­leiðslan um 320 gíga­vatt­stund­ir (GWh) á ári.

Byggðar yrðu fimm stífl­ur við heiðar­vötn til að mynda þrjú miðlun­ar­lón. Sú hæsta yrði 33 metr­ar. Lón­in yrðu tóm að vori og myndu, að því er fram kom í áliti Skipu­lags­stofn­unar á umhverf­is­mat­skýrslu um fram­kvæmd­ina árið 2017, í fyrsta lagi fyll­ast í byrj­un júlí. Rennsli allra ánna myndi minnka veru­lega á köfl­um og þar með rennsli um foss­ana Drynj­anda og Rjúkanda.

Fram­kvæmt yrði á óbyggðu víð­erni og telur Skipu­lags­stofn­un að virkj­unin myndi skerða víð­áttu­mesta sam­fellda óbyggða víð­erni á Vest­fjörðum um að minnsta kosti 200 fer­kíló­metra eða um 13%.

Nýtur verndarSamkvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum njóta fossar á borð við Drynj­anda í Hvalá sér­stakrar verndar. Þeim má ekki raska nema að brýna nauð­syn beri til.

Að sögn Birnu er nú áfram unnið að hönnun virkj­un­ar­innar og árlegar rann­sóknir gerðar á vatna­sviði hennar. Umhverf­is­mati lauk árið 2017 með fyrr­greindu áliti Skipu­lags­stofn­unar og segir Birna að úrbætur hafi verið gerðar á hönnun í sam­ræmi við ábend­ingar.

Virkj­un­in yrði langt frá meg­in­flutn­ings­kerfi raf­orku og enn hefur ekki verið fast­sett hvernig hún yrði tengd því. Hug­myndir hafa verið uppi um að reisa nýjan tengi­punkt í Ísa­fjarð­ar­djúpi og yrði þá farið með raf­magnið um 30 kíló­metra leið frá virkjun yfir Ófeigs­fjarð­ar­heið­ina. Þaðan færi það svo um aðra heiði inn á meg­in­flutn­ings­kerfið í gegnum Vest­ur­línu.

Birna segir að und­ir­bún­ingur tengilagnar standi nú yfir og að skipu­lags­mál og umhverf­is­mat vegna hennar sé að mestu á könnu Lands­nets. 

Gert er ráð fyrir virkj­un­inni á aðal­skipu­lagi Árnes­hrepps en gera þyrfti „lít­ils­háttar breyt­ingar á skipu­lag­inu vegna fyr­ir­hug­aðra vinnu­búða og fleira sam­hliða skipu­lags­málum Lands­nets,“ segir í svörum Birnu.

Deilur sem klufu sveitina

Harð­vít­ugar deilur stóðu um Hval­ár­virkjun á sínum tíma, ekki síst í sveit­inni þar sem hún er fyr­ir­huguð. Hug­myndin klauf lítið sam­fé­lag, íbúa Árnes­hrepps, fámenn­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins, og enn hefur ekki gróið um heilt.

Síðustu vend­ingar í þeim deilum fóru fyrir dóm­stóla en þær snéru að landa­merkjum jarða á hinu áform­aða virkj­un­ar­svæði. Þar hafði betur ítalskur barón og eig­endur Ófeigs­fjarðar, sem sömdu við Vest­ur­Verk um vatns­rétt­indi vegna virkj­un­ar­á­for­manna fyrir mörgum árum.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    Það eru oftast erlendir aðilar sem sækjast eftir ódýrri íslenskri orku fyrir fyrirtæki sín og eru með íslenska bakhjarla eins og er í sjókvíalaxeldinu. Landráðamenn. 😡
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Það er kominn tími að við grípum til aðgerða. Ætlum við að láta letina vinna með gróðapungunum sem víla það ekki fyrir sér að ráðast að nátturu Íslands?

    Hvað getum við gert? Komið ríkisstjórninni frá, hún vinnur að því að rýja okkur inn að skinni, þannig að afkomendur okkar munu engin bjargráð hafa frekar en Afríkuríkin.

    Mig langar svo að segja margt ljótt, en sit á mér. Get alveg skilið Palestínsku þjóðina. Þið sem ekki vitið það, þá voru það Ísraelar sem stálu af þeim landiu í skjóli Biblíunar.

    Látið ekki letina stjórna ykkjur, þetta er grafalvarlegt mál.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Mér finnst Hvalárvirkjunaráformin svívirðileg svo ekki sé meira til orða tekið.
    Að fleygja auðlindunum okkar fyrir svín er rétta orðið yfir ykkur.
    Landslagið þarna er ómetanlegt eins g það er.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessi árátta að virkja meira en þörf er á er óskiljanleg. Við sjálf notum einungis 20% raforkunnar sem við framleiðum, hin 80% fara í stóriðjuna sem því miður er nátengd hergagnaiðnaðinum einkum í BNA. Þetta er okkur til vansa að sumir samborgarar vilji fórna íslenskri náttúru og fleygja auðlindum okkar fyrir svín.
    Það þarf að hægja á þessari þróun enda er engin þörf á fyrir venjulegt fólk á Íslandi að virkja meira.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár