Ekki mátti horfa í augun á börnunum

Ekkert knús. Engin leik­föng. Börn í rúmum að rugga sér fram og til baka og slá höfð­inu í riml­ana. Starfs­fólk í hvítum sloppum með börn í vöggum og grát­andi for­eldra handan glers. Hundruð barna sem dvöldu á vöggu­stofum Reykja­víkur sættu illri með­ferð. Hér segja fyrr­ver­andi starfs­menn frá reynslu sinni.

Ekki mátti horfa í augun á börnunum
Vöggu­stof­urnar Í fjöl­miðlum birt­ust um og eftir miðja síð­ustu öld stundum myndir frá starf­semi vöggu­stof­anna. Á þeim mátti sjá börnin í fangi starfs­stúlkna en þær lýsa því margar nú, ára­tugum síðar, að þeim hafi verið bannað að gefa sig að börn­unum. Þær ættu að hafa þau sem minnst í fang­inu.

Ekki mátti taka börnin upp og hugga þau. Ekki mátti horfa í augun á börn­unum þegar þeim var gefið að borða og það mátti alls ekki leika við þau. Rík áhersla var á að starfs­menn mynd­uðu ekki augn­sam­band því það myndi valda börn­unum svo mik­illi sorg. Ekki mátti heldur taka sæng­ina af börn­unum í heim­sókn­ar­tíma og starfs­stúlkum sagt að snúa baki í mæð­urnar. 

Þannig lýsir kona sem starf­aði á Vöggu­stof­unni Hlíð­ar­enda í upp­hafi sjö­unda ára­tugar síð­ustu aldar umgengn­is­reglum við börnin sem þar dvöldu. Hún er ein fjöl­margra fyrr­ver­andi starfs­manna sem vöggu­stofu­nefndin svo­kall­aða tók við­töl við vegna rann­sóknar sinnar á starf­semi vöggu­stofa í Reykja­vík. Rann­sókn­ar­tíma­bilið nær yfir um ald­ar­fjórð­ung, allt frá stofnun Vöggu­stof­unnar Hlíð­ar­enda árið 1949 til árs­ins 1973. Á miðju tíma­bili þessu, árið 1963, var Vöggu­stofa Thor­vald­sens­fé­lags­ins stofnuð.

1.083 börn dvöldu á vöggu­stof­unum á þessum tíma. Flest þeirra komu þangað á fyrsta ári, sum beint af fæð­ing­ar­deild­inni. Það barn sem dvaldi styst var þar í tvo daga. Það sem dvaldi þar lengst var þar í tæp fimm ár.

Marg­vís­legar ástæður voru fyrir því að börn voru vistuð á vöggu­stofum sem var úrræði á vegum barna­vernd­ar­nefndar. Veikindi for­eldra eða systk­ina var ein ástæða, óregla sögð önnur. Þá var fátækt nefnd í vist­un­ar­skýrslum barn­anna þrátt fyrir að sam­kvæmt þágild­andi barna­vernd­ar­lögum væri for­taks­laust bann við að taka börn af heim­ilum ein­göngu vegna örbirgðar for­eldra. Þvert á móti bar barna­vernd­ar­nefndum skylda til að aðstoða for­eldra og ráða bót á bág­bornum fjár­hag þeirra. Húsnæðis- og dag­vist­un­ar­vandi var útbreiddur og ein­stæðar mæður áttu sumar hverjar engin úrræði önnur en að sam­þykkja vistun barna sinna á vöggu­stofum.

Skýrsla vöggu­stofu­nefnd­ar­innar, sem sett var á lagg­irnar í fyrra, var kynnt í gær. Er nið­ur­staða umfangs­mik­illar rann­sóknar hennar sú að börn hafi sætt illri með­ferð á Vöggu­stof­unni Hlíð­ar­enda á tíma­bilum yfir árin 1949 til 1963. Þá hafi börn í ýmsum til­vikum einnig sætt illri með­ferð á Vöggu­stofu Thor­vald­sens­fé­lags­ins á tíma­bilum frá 1963 til 1967.

Ræddu við á fjórða tug fyrrverandi starfsmanna

Þar sem sex­tíu ár eru liðin frá því að starf­semi Vöggu­stof­unnar Hlíð­ar­enda lauk tókst nefnd­inni ein­ungis að ræða við sex fyrr­ver­andi starfs­menn sem höfðu heilsu til. Hins vegar voru teknar skýrslur af 27 ein­stak­lingum sem störf­uðu á Vöggu­stofu Thor­vald­sens­fé­lags­ins.

Unnið var á vöktum. Flestar voru að störfum á dag­inn og stundum aðeins ein yfir nótt­ina. 

Reynsla þessa fyrr­ver­andi starfs­fólks er mis­jöfn. Sumum reynd­ist hún þung­bær en öðrum ekki. Yfir­leitt var starfs­fólkið mjög ungt, oft undir tví­tugu, og staldr­aði oft ekki lengi við. Þá er reynsla fólks­ins mjög mis­jöfn eftir því hver gegndi starfi for­stöðu­konu. 

Sögur starfsfólksins

Kona sem starfaði á Vöggustofunni Hlíðarenda árið 1954:

Allt starfið var í mjög föstum skorðum og frekar til­breyt­ing­ar­s­nautt. Börnin fengu nóg að borða en að jafn­aði voru þau mötuð og látin snemma í rúmið.


Kona sem starfaði á Hlíðarenda 1958, þá 17 ára gömul:

Það var sér­stak­lega erfið lífs­reynsla að verða vitni að því að mæður sem áttu börn á Hlíð­ar­enda hafi ein­ungis mátt sjá þau í gegnum rúðu. Mæðurnar stóðu við rúð­una og grétu þar sem þær fengu hvorki að snerta börnin sín né halda á þeim.

Lítill tími gafst í starf­inu til að tengj­ast ákveðnum börnum sér­stak­lega, þar sem verkin sem sinna þurfti voru mörg.

Hún man ekki eftir neinum leik­föngum. Ekkert var á veggjum vöggu­stof­unnar, umhverfið var „ster­il­iserað og allt hvítt“ og starfs­stúlkur klædd­ust hvítum sloppum.


Kona sem starfaði á Hlíðarenda árið 1962:

Börnin fengu pela á morgn­ana og þá mátti ekki halda á þeim heldur aðeins setja bleiu undir pel­ann svo þau gætu sogið. Starfs­stúlkur máttu ein­ungis skipta á börn­unum á ákveðnum tímum en þess á milli máttu þær ekki skipta sér af þeim heldur aðeins láta þau liggja í rúm­inu. Börnin grétu fyrstu dag­ana og vik­urnar eftir að þau komu en starfs­fólk mátti ekki taka þau upp og hugga.

Á heim­sókn­ar­tímum for­eldra var hleypt inn í hollum. For­eldrar horfðu á barn sitt í gegnum gler en barnið var í vögg­unni. Starfs­fólk mátti alls ekki taka þau upp og ekki hugga ef þau grétu. Sum börnin voru aldrei heim­sótt en önnur fengu heim­sókn alla sunnu­daga.

Henni er minn­is­stætt að ein móðir kom í hvern ein­asta heim­sókn­ar­tíma og stóð grát­andi við glugg­ann allan þann tíma sem hún mátti vera. 


Kona sem var í starfsnámi á Hlíðarenda árin 1962 og 1963:

Starfs­konum var sagt að vera helst ekki með börnin mikið í fang­inu. Ef þær tengd­ust ákveðnum börnum og vildu hlúa að þeim og knúsa var það bannað. Var sú ástæða gefin að erf­ið­ara yrði fyrir börnin að fara aftur til for­eldr­anna ef þau fengju hlýju starfs­stúlkna.

Hún var í námi í Fóstru­skól­anum og nem­end­urnir ræddu sín á milli hversu gríð­ar­lega ólík starf­semi vöggu­stofa og leik­skóla væri. Á vöggu­stof­unni var „allt svo lokað og eins og fang­elsi“.

Sjálfri var henni boðin vist fyrir barn sitt á vöggu­stof­unni þar sem hún var ein­stæð og í hús­næð­is­vand­ræðum. Hún afþakk­aði boðið enda gat hún ekki hugsað sér að hafa barnið þarna, þrátt fyrir vand­ræði sín.


Kona sem vann á Hlíðarenda 1963:

Á Hlíð­ar­enda var „þröngt, dimmt og hræði­legt að koma, pissu­lykt af börn­unum, vond lykt almennt.“


Kona sem var í starfsþjálfun á Hlíðarenda 1963:

Vöggu­stofan var rekin eins og spít­ali. Stofa yngstu barn­anna var eins og fæð­ing­ar­deild. Í næstu stofu voru ein­ungis hvít rimla­rúm. Ekkert annað var þar inni, engin leik­föng og ekk­ert á hvítum veggj­unum. Hún fékk þær leið­bein­ingar að ekki mætti halda á börn­unum þegar þeim væri gef­inn peli. Ástæðan var sýkla­hræðsla for­stöðu­kon­unnar. Milli þess sem skipt var á börnum og þeim gef­inn peli voru starfs­stúlk­urnar að pússa glerið því stöðugt þurfti að sótt­hreinsa.

Hún og fleiri nemar Fóstru­skól­ans vöktu athygli kenn­ara sinna á aðbún­aði barn­anna. Nemarnir tóku sig svo saman og keyptu og bjuggu til leik­föng og fengu myndir eftir Mugg um Dimmalimm til að skreyta veggi. Ári síðar mætti hún aftur til starfa og var brugðið að sjá leik­föngin geymd uppi í hillu. Myndir Muggs höfðu verið hengdar fram á gang en ekki þar sem börnin dvöldu í hús­inu.


Kona sem vann á vöggustofu árið 1964:

Hún leit ekki mjög gagn­rýnum augum á starf­semi vöggu­stof­unnar á meðan hún starf­aði þar. En eftir að starfa síðar á leik­skóla hafi hún gert sér grein fyrir því að umhverfi vöggu­stof­unnar var mjög  „ster­ílíserað“. Börnin fengu ekki mikla örvun og það skorti á til­finn­inga­leg tengsl.


Kona sem starfaði á vöggustofu árið 1964:

Náms­dvölin á vöggu­stof­unni var hræði­leg reynsla. Ekki mátti sinna börn­unum nema sam­kvæmt ákveðnu skipu­lagi. Börnin fengu t.d. pela á 4 tíma fresti. Þegar hún kom til starfa rétti for­stöðu­konan henni 6 vikna barn og sagt henni að baða það á 5 mín­útum.

Eldri börnin voru mötuð án þess að það væri augn­sam­band. Maturinn var mauk­aður og lýsi hellt út á hann. 

Börnin lágu að miklu leyti í rúmum sínum og hættu að gera kröfur á fólk í kringum sig. Aðstand­endur máttu aðeins sjá börnin í gegnum gler. Hún man sér­stak­lega eftir einni móður sem fór burtu hágrát­andi vegna þessa.

Miklir for­dómar voru í sam­fé­lag­inu gagn­vart sumum for­eldrum barna á vöggu­stof­unni og almennt var ekki litið á það sem svo að fólk sem missteig sig í líf­inu ætti skilið annað tæki­færi. 


Kona sem var starfsnemi á vöggustofu Thorvaldsensfélagsins árið 1964:

Þegar hún og aðrar náms­stúlkur úr Fóstru­skól­anum komu í starfs­námið neit­uðu þær að klæð­ast hvítum sloppum. Þær þurftu að klæð­ast sloppum en þeir máttu vera rauðir. Almennt var mikil hrein­læt­is­árátta. Mata átti börnin aftan frá til að koma í veg fyrir teng­ingu við börnin. 


Kona sem starfaði á vöggustofu í 4 mánuði árið 1965:

Hún hefur tekið nærri sér gagn­rýni á vöggu­stof­urnar. Umræðan hafi verið ósann­gjörn. Ekki sé rétt að börnin hafi alltaf verið í rúmunum. Börnin hafi verið höfð í fang­inu þegar þeim var gef­inn peli. Ekki sé rétt að for­eldrar hafi bara mátt sjá börnin í gegnum gler.


Kona sem starfaði á vöggustofunni 1966-1968:

Börnin fóru aldrei út. Vel var séð um alla nær­ingu en mat­ur­inn allur stapp­aður sem var óheppi­legt fyrir börn sem voru að nálg­ast tveggja ára aldur. Börnin hafi fengið hafra­graut í morg­un­mat, kássu í hádeg­is­mat, mjólk í kaffi­tím­anum með brauði út í. Kvöld­mat­ur­inn var yfir­leitt ein­hver hrær­ingur.

Milli mat­máls­tíma var skipt á öllum börn­unum og þau sett á koppa, stundum helst til lengi. Pelar barn­anna voru almennt settir upp í rúm til þeirra en börn ekki tekin í fangið þegar þeim var gefið. Starfs­stúlkur voru allar í hvítum sloppum en ef þær fóru í venju­legum fötum inn á deild urðu börnin hrædd þar sem þau voru orðin svo vön slopp­unum.


Kona sem var í starfsþjálfun á vöggustofunni 1967:

Börnunum var gef­inn morg­un­matur á meðan þau sátu á kopp­unum. Sumar starfs­stúlkur tóku börnin upp en ekki allar. Klukkan 5 um dag­inn voru börnin  klædd í galla sem voru bundnir að aftan svo þau kæmust ekki úr þeim. Síðan voru þau sett aftur í rúmin.

Hún seg­ist aldrei gleyma þessum tíma. Fólk hafi vitað að það ætti að halda á börnum og örva þau. Vöggu­stofan hafi hins vegar verið rekin eins og sjúkra­hús.


Kona sem vann á vöggustofunni 1967-1968:

Mikið breytt­ist þegar Ragn­heiður Jóns­dóttir tók við starfi for­stöðu­konu árið 1967. Auður Jóns­dóttir sem áður gegndi starf­inu hætti og sömu­leiðis móðir hennar. Ragn­heiður gaf starfs­konum fyr­ir­mæli um að sitja með börnin þegar þeim væri gef­inn peli. Hún lét opna út í garð og útveg­aði hlífð­ar­föt fyrir öll börnin. Hún keypti borð sem eldri börnin gátu setið við á mat­máls­tímum og lært að borða sjálf af diski með hnífa­pörum. Ragn­heiður hvatti for­eldra til að koma og tengj­ast börn­unum. Dæmi voru um að mæður með börn á brjósti hafi komið tvisvar á dag til að gefa brjóst og halda teng­ingu við barnið. 

Ein­hverjar starfs­stúlkur voru ósáttar við breyt­ing­arnar og hættu.


Kona sem vann á vöggustofunni árið 1967:

Ragn­heiður lagði áherslu á það við starfs­fólkið að börnin á vöggu­stof­unni væru heil­brigð en ekki sjúk­lingar. Eitt barn hafði alltaf legið í rúm­inu sam­kvæmt fyr­ir­mælum fyrr­ver­andi for­stöðu­konu þar sem það væri veikt. Ragn­heiður sagði starfs­fólki að barnið ætti að fara úr rúm­inu og vera á gólf­inu og í fram­hald­inu hafi það bæði lært að skríða og ganga. 


Kona sem vann á vöggustofu árið 1968:

Hana lang­aði helst að gráta er hún kom þangað fyrst. Áherslan var helst á þrif. Gólf voru skúruð tvisvar á dag og mikið notað af sótt­hreinsi­legi. Ungbörn voru í minni rúmum með gleri en eldri börnin votu í hvítum rúmum með mjög háum rimlum. Mest sló hana að sjá börn rugga sér í rúmum og slá höfði sínu í riml­ana. Þau hafi greini­lega skort ást og hlýju.


Kona sem vann á vöggustofunni 1969: 

Starfs­stúlk­urnar reyndu að gera sitt besta og föðm­uðu börnin og reyndu að hugga ef þau grétu. Það var, þrátt fyrir barna­fjöld­ann, ekki mik­ill hávaði á vöggu­stof­unni. Almennt voru börnin rólegri og stillt­ari en eðli­legt gat talist og það skorti á gleð­ina í þeim. 


Karlmaður sem starfaði á vöggustofunni 1970:

Aðstæður voru fábrotnar. Stofn­unin bar þess mjög merki að hún var byggð fyrir fólk í erf­iðri þjóð­fé­lags­stöðu sem lítið var gert fyrir. Horfið hafði verið frá því fyr­ir­komu­lagi að starfs­fólk stæði fyrir aftan börnin þegar þau borð­uðu mat­inn.


Karlmaður sem starfaði á vöggustofunni 1971-1972:

Starfs­fólki var falið að sinna og tengj­ast til­teknum börnum sér­stak­lega og stundum tók það börnin heim með sér.


Starfskona á vöggustofunum árið 1968 og aftur 1972:

Hún sá mik­inn mun á starf­sem­inni frá því hún kom þangað fyrst 1968 og þegar hún hóf þar störf að nýju 1972. Ein­kenn­isslopp­arnir höfðu verið fjar­lægðir. Áherslan var á börnin en minna á þrif. Lesið var fyrir börnin áður en þau fóru að sofa.


Tvær konur sem unnu á vöggustofum á tveimur tímabilum:

Rúm og hurðar voru mál­aðar í litum. Leikföng á borð við púsl og legókubba voru keypt. Borg­ar­yf­ir­völd voru ekki hrifin af þessum breyt­ingum Þor­bjargar Sig­urð­ar­dóttur, hinnar nýju for­stöðu­konu.

Hátta­tíma barn­anna var seinkað en áður hafi hann verið klukkan fimm á dag­inn. Farið var með börnin út í garð og um Laug­ar­dal­inn en einnig í sund­laugar.

Heim­sókn­ar­tímar voru sér­stak­lega erf­iðir og til­finn­inga­þrungnar stundir þegar for­eldrar komu allir á sama tíma og síðan var grátið mikið þegar heim­sókn­ar­tím­anum lauk tveimur klukku­stundum síðar. 


Kona sem vann á vöggustofu með nokkurra ára millibili:

Straum­hvörf höfðu orðið í starf­sem­inni frá árinu 1968 þegar hún kom aftur til starfa árið 1973. Umhverfið hafði tekið stakka­skiptum. Sú stefna var mörkuð að aðskilja ekki systk­ini og að for­eldrar gætu komið á hverju kvöldi til að baða börnin og svæfa þau. 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár