Arctic Fish á að greiða kostnaðinn við veiðar á eldislöxunum

Guðni Magnús Eiríks­son, sviðs­stjóri hjá Fiski­stofu, segir alveg ljóst í lögum að það er Arctic Fish sem á að borga fyrir rekka­f­ar­ana. For­stjóri Arctic Fish, Stein Ove Tveiten, vill ekki svara því beint hvort fyr­ir­tækið ætli að greiða fyrir rekka­f­ar­ana.

Arctic Fish á að greiða kostnaðinn við veiðar á eldislöxunum
Kaf­ar­arnir við veiðar á Vest­fjörðum Hér sjást kaf­ar­arnir úr fyrsta teym­inu sem kom hingað til lands frá Noregi í síð­ustu viku. Þarna eru þeir við veiðar í Langa­dalsá á Vest­fjörðum. Nýtt teymi er nú komið til lands­ins og hefur það hafið veiðar í ám á norð­vest­ur­hluta lands­ins. . Mynd: Sigurður Þorvaldsson

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish á að greiða allan kostnað vegna veiða norskra rekka­f­ara á eld­is­löxum sem sluppu úr kví fyr­ir­tæk­is­ins í Pat­reks­firði í ágúst. Þetta kemur fram í lögum um fisk­eldi og er alveg skýrt, segir Guðni Magnús Eiríks­son, starfs­maður Fiski­stofu. Í umfjöllun fjöl­miðla um greiðslu kostn­að­ar­ins við rekköf­un­ina hefur verið nokkuð á reiki hver það er sem á að greiða fyrir hreins­un­ina á eld­is­löx­unum, Fiski­stofa og þar með íslenska ríkið og skatt­greið­endur eða Arctic Fish.

„Það myndi koma mér og mörgum öðrum mjög mikið á óvart.“
Guðni Magnús Eiríks­son,
sviðs­stjóri á lax- og sil­ungs­veiðisviði Fiski­stofu

Guðni Magnús segir að Fiski­stofa greiði kostn­að­inn og inn­heimti hann svo frá Arctic Fish. „Þessi aðgerð er gerð á for­sendum Fiski­stofu og stjórnað af Fiski­stofu og við greiðum fyrir þessa þjón­ustu. En við munum inn­heimta þennan kostnað af eld­is­fyr­ir­tækjum sam­kvæmt lögum.“ Hann segir að það væri mjög skrítið ef Arctic Fish myndi skor­ast undan að greiða þennan kostnað þar sem fyr­ir­tækið hafi sjálft stungið upp á þess­ara leið, að nota rekka­f­ara, til að hreinsa upp eld­is­laxa í íslenskum ám. „Það myndi koma mér og mörgum öðrum mjög mikið á óvart.“

Aðspurður um hvort Arctic Fish muni ekki sann­ar­lega greiða þennan kostnað við rekköf­un­ina segir Stein Ove Tveiten. „Við munum eigum í beinum sam­skiptum við Fiski­stofu um þetta.“ Hann svarar spurn­ing­unni því ekki með beinum hætti þegar leitað er eftir svari. Stein Ove fæst ekki til að útskýra nánar hvað hann á við þegar eftir því er leitað. 

Segir skýrt að Arctic Fish eigi að borgaGuðni Magnús Eiríks­son, sviðs­stjóri á lax- og sil­ungs­veiðisviði Fiski­stofu, segir alveg skýrt að Arctic Fish eigi að greiða fyrir hreins­un­ina eftir slysa­slepp­ing­una.

Skýr ákvæði í lögum og starfsleyfi 

Í lögum um fisk­eldi segir meðal ann­ars orð­rétt um skyldu lax­eld­is­fyr­ir­tækja til að greiða kostnað við að veiða eld­is­laxa sem sleppa: „Allan kostnað Fiski­stofu og ann­arra stjórn­valda vegna nauð­syn­legra aðgerða sam­kvæmt þess­ari grein skal rekstr­ar­leyf­is­hafi [eða skrán­ing­ar­skyldur aðili skv. 5. gr.] 2) greiða.“

Í starfs­leyfi Arctic Fish í Pat­reks­firði segir svo meðal ann­ars orð­rétt: „Verði óhapp eða annað atvik sem getur haft í för með sér losun meng­andi efna út í umhverfið skal þegar í stað grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir útbreiðslu meng­un­ar­efna og til að fyr­ir­byggja að mengun valdi skaða á umhverf­inu. Rekstr­ar­að­ila ber að hreinsa þá mengun sem kann að verða við óhöpp eða önnur atvik, á sinn kostnað.“

Nýtt teymi rekkafara við veiðar á norðvesturhorninu

Nýtt teymi af norskum rekköf­urum er komið til lands­ins, segir Guðni. Þeir hafa verið við veiðar í Víði­dalsá í Húna­vatns­sýslu í dag og verða áfram  á Norð­vest­ur­landi næstu daga, þar sem tals­vert hefur veiðst af eld­is­löxum. Þeir munu meðal ann­ars fara í Mið­fjarð­ará, Hrúta­fjarð­ará og Vatns­dalsá.

Fyrsta teymi rekka­f­ara sem hingað kom var við veiðar í síð­ustu viku og veiddu þeir 31 eld­is­lax á þremur dögum. 

Mögulegt að fleiri rekkafarar komi

Kostn­að­ur­inn við þessi fyrstu tvö teymi rekka­f­ara sem komið hafa hingað til lands­ins er á annan tug millj­óna króna, segir Guðni. Nakvæm kostn­að­ar­tala liggur ekki fyrir. 

Hann segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort fleiri teymi kaf­ara muni koma hingað til lands­ins eftir að þetta annað teymi lýkur störfum. „Það liggur ekk­ert fyrir um það en það kann að vera. Þetta fer eftir árangri við veið­arnar og fréttum um hvort eld­is­lax­inn er að ganga. Það er ekki hægt að slá neinu  föstu um það. En við erum að horfa á það að það getur komið að gagni að gríða til aðgerða áður en hrygn­ing­ar­tím­inn kemur. Hann er upp úr miðjum októ­ber og fram í nóv­em­ber. Þannig að það er sá tími sem við erum að horfa á. Þetta verður bara metið eftir árangri úr þess­ari aðgerð sem núna stendur yfir.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár