Arnarlax skráð á markað á föstudag eftir átakavikur um laxeldi

Lax­eld­is­fyr­ir­tæið Arnarlax gaf það út fyrir mán­uði síðan að félagið yrði skráð á markað í haust og verður af því á föstu­dag­inn kemur. Síðan þá hefur eytt stærsta slys sem hefur átt sér stað í sjó­kvía­eldi á Íslandi verið í hámæli.

Arnarlax skráð á markað á föstudag eftir átakavikur um laxeldi
Við­skipti hefj­ast á föstu­dag Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax verður skráð á markað á föstu­dag­inn. Björn Hembre er for­stjóri Arnarlax og Stein Ove Tveiten er for­stjóri Arctic Fish en miklar umræður hafa verið um lax­eldi hér á landi á liðnum vikum.

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax verður skráð á First North-hluta­bréfa­mark­að­inn á föstu­dag­inn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Kauphöll Íslands.

For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Björn Hembre, gaf það út í for­síðu­við­tali við Við­skipta­blaðið þann 25. ágúst síð­ast­lið­inn að Arnarlax yrði skráð á First North-mark­að­inn hér á landi nú í haust. Fyr­ir­tækið hefur verið skráð á markað í Noregi frá því árið 2020 og verður nú skráð í báðum lönd­unum. 

Eftir þessa til­kynn­ingu Arnarlax í lok ágúst hefur eitt stærsta slys sem hefur átt sér stað í sjó­kvía­eldi á Íslandi verið nær dag­legt umfjöll­un­ar­efni í fjöl­miðlum. Þetta er slysa­slepp­ingin á um 3500 eld­is­löxum hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish á Pat­reks­firði en stang­veiði­menn hafa verið að veiða eld­is­laxa frá fyr­ir­tæk­inu í ám á Íslandi síð­ast­liðnar vikur. Auk þess hafa kaf­arar frá Noregi sem fluttir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár