SA segist ekki mega reka Pálmar sem neitar að hætta

Samtök atvinnu­lífsins telja sér óheimilt að víkja Pálmari Óla Magnússyni fulltrúa úr stjórnar­formanns­stóli lífeyris­sjóðsins Birtu og hafa óskað eftir því að FME endur­skoði hæfi hans eftir að Samkeppnis­eftirlitið lýsti honum sem lykil­manni í ólöglegu samráði skipa­félaganna. Pálmar hefur sjálfur neitað að víkja.

Neitar að hætta
Neitar að hætta Pálmar Óli Magn­ús­son ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli Birtu Líf­eyr­is­sjóðs, jafn­vel þótt laun­þegar í sjóðnum hafi skorað á hann að gera það og Samtök Atvinnu­lífs­ins, sem skip­uðu hann í stjórn­ina, virð­ist ekki treysta honum lengur, en beri fyrir sig að mega ekki víkja honum.

Samtök atvinnu­lífsins (SA) hafa frá því 6. september síðastliðinn „haft til skoðunar“ hvort nýjar upplýsingar um þátt Pálmars Óla Magnússonar í stór­felldum samkeppnis­brotum skipa­félaganna hefðu áhrif á setu hans í stjórn lífeyris­sjóðsins Birtu. Pálmar situr þar og gegnir formennsku stjórnar, sem fulltrúi SA.

Niður­staðan virðist sú að SA geti ekki hróflað við sínum eigin fulltrúa í stjórninni á milli aðalfunda lífeyris­sjóðsins á meðan hann neitar sjálfur að víkja sæti. SA hefur því óskað eftir því að Fjármála­eftirlitið meti hæfi Pálmars til setu í stjórninni.

„Fjár­mála­eft­ir­litið hefur verið upp­lýst og brýnt er að eft­ir­litið hraði sínu mati“
Svar fram­kvæmda­stjóra SA
við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um stöðu Pálmars Óla Magn­ús­sonar sem full­trúa SA í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins Birtu.

Pálmar Óli, sem í dag starfar sem framkvæmda­stjóri hrein­gerninga­fyrir­tækisins Daga ehf,. er fyrr­verandi framkvæmda­stjóri og síðar forstjóri Samskipa, og sagður lykil­maður í …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

FréttirSamráð skipafélaga

Lykil­maður í samráði víkur ekki úr stjórn lífeyris­sjóðs

Fyrr­verandi forstjóri Samskipa, Pálmar Óli Magnússon, sem lýst er sem arkitekt og lykil­manni í samráðs­brotum fyrir­tækisins í úrskurði Samkeppnis­eftirlitsins, ætlar ekki að víkja úr stjórnar­formanns­stóli eins stærsta lífeyris­sjóðs landsins. Hann var skipaður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lögbrotin. SA með skipan hans til skoðunar.

Mest lesið undanfarið ár