Slysaslepping Arctic Fish: Grunur um brot svo eldislaxinn varð kynþroska

Mat­væla­stofnun rann­sakar nú hvort Arctic Fish hafi brotið gegn skil­yrði í starfs­leyfi með því að við­hafa ekki ljósa­stýr­ingu í lax­eld­is­kví sinni. Göt komu á kvína og sluppu um 3.500 eld­is­laxar út. Grunur er um að hátt hlut­fall eld­is­lax­anna hafi verið kyn­þroska sem skýrir af hverju þeir leita upp í ár hér á landi í miklum mæli.

Slysaslepping Arctic Fish: Grunur um brot svo eldislaxinn varð kynþroska
Ljósa­stýr­ingu kann að hafa verið ábóta­vant Ljósa­stýr­ingu í kví Arctic Fish kann að hafa verið ábóta­vant og haft þær afleið­ingar að eld­is­lax­inn í kvínni varð kyn­þroska. Stein Ove Tveiten er for­stjóri Arctic Fish. Mynd: Heimildin / Tómas

Vís­bend­ingar eru um að lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish hafi mis­farið með ljósa­stýr­ingu í sjó­kví í Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði, sem göt komu á í sumar, sem leiddu til þess að fisk­ur­inn varð kyn­þroska. Þetta segir Karl Steinar Ósk­ars­son, deild­ar­stjóri fisk­eldis hjá Mat­væla­stofnun. Stofn­unin rann­sakar nú þetta atriði. Alls 3.500 fiskar sluppu út úr kvínni og hafa lax­arnir verið að veið­ast í ám víða um land. 

„Við erum að rann­saka málið en það er svo­lítið erfitt að tjá sig um þetta á þess­ari stundu. Þetta er spurn­ing um hvort ljósa­stýr­ing hafi ekki verið við­höfð seinni vet­ur­inn sem fisk­ur­inn var alinn. Það er skil­yrði í rekstr­ar­leyfi að þeir eigi að við­hafa ljósa­stýr­ingu frá 20. sept­em­ber til 20. mars,“ segir Karl Steinar.

Tekið skal fram að slíkt brot á ákvæðum rekstr­ar­leyfis er hins vegar ekki brot á lögum um fisk­eldi. 

„Það er skil­yrði í rekstr­ar­leyfi að þeir eigi að við­hafa ljósa­stýr­ingu frá 20. sept­em­ber …
Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,Þetta er spurning um hvort ljósastýring hafi ekki verið viðhöfð seinni veturinn sem fiskurinn var alinn. Það er skilyrði í rekstrarleyfi að þeir eigi að viðhafa ljósastýringu frá 20. september til 20. mars,“ segir Karl Steinar."

    ,,Tekið skal fram að slíkt brot á ákvæðum rekstrarleyfis er hins vegar ekki brot á lögum um fiskeldi. "

    Hvers vegna er verið að hafa eftirlit ef brot hefur engar afleiðingar ?
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Hvenær er nóg komið og rekstrarleyfið afturkallað?
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    ☻g hvað verður gert ?
    Slegið létt á puttana ☻g fyrirtækið látið borga tittlingaskíts sekt, sem verður svo dæmd ólögmæt og ríkið (þjóðin) gerð skaðabótaskild ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár