Orku­mála­stjóri „Það er meiri og meiri þrýst­ingur,“ segir Halla Hrund Loga­dóttir spurð hvort verið sé að selja almenn­ing út af orku­borð­inu. Mynd: Anton Brink/Orkustofnun

„Munum aldrei mæta allri orkuþörf allra“

Ef ekki verða sett lög um for­gang almenn­ings að orku verður honum smám saman þrýst út af orku­borð­inu og þá stundum ofan í olíu­tunnu. Því þótt borðið svigni vissu­lega af end­ur­nýj­an­legri orku verður það alltaf tak­markað að stærð. Nú þegar eft­ir­spurnin hefur marg­fald­ast og salan auk­ist er gott að hugsa um „orku­skort hverra“ og þá stað­reynd að almenn­ingur notar aðeins um 5 pró­sent raf­orkunnar, segir Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri. „Því þetta verður alltaf val – hversu mikið þú ætlir að selja og í hvað.“

„Það er mik­il­vægt, óháð virkj­ana­fram­kvæmdum, að það sé haldið áfram að efla inn­við­ina á Vest­fjörðum,“ segir Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri í sam­tali við Heim­ild­ina. Þótt mikið hafi áunn­ist búi svæðið enn við lak­ara orku­ör­yggi en flestir lands­hlutar. Aðeins ein hálfrar aldar gömul meg­in­flutn­ings­lína liggur inn á Vest­firði og þótt for­svars­menn Orkubús Vest­fjarða séu „auð­vitað ekki mót­fallnir því“ að hún verði styrkt eða tvö­földuð, líkt og Elías Jón­atans­son orku­bús­stjóri orð­aði það við Heim­ild­ina nýverið, telja þeir lausn­ina fremur fel­ast í því að byggja fleiri virkj­anir á Vest­fjörðum. 

Halla Hrund bendir á að annar kost­ur­inn þurfi ekki að úti­loka hinn. En, „ef afhend­ingar­ör­yggi er ekki bætt með fram­leiðslu á svæð­inu mun það þrýsta á öfl­ugri teng­ingar við meg­in­flutn­ings­kerfið. Ef ný orku­vinnsla verður á svæð­inu getur það seinkað eða dregið úr þörf fyrir sterk­ari teng­ingar.“

…
Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár