Íbúar Kristjaníu vilja glæpagengin burt

Íbúar Krist­janíu í Kaup­manna­höfn hafa fengið nóg af yfir­gangi glæpa­sam­taka í hverf­inu og vilja upp­ræta starf­semi þeirra. Sam­tök­unum fylgir aukið ofbeldi þar sem tek­ist er á um yfir­ráð vímu­efna­mark­að­ar­ins.

Íbúar Kristjaníu vilja glæpagengin burt
Fríríkið Næstum 52 ár eru síðan að Krist­janía varð til. Nú vilja íbúar breyt­ingar. Mynd: AFP

Stór hluti þeirra ferða­manna sem leggja leið sína til Kaup­manna­hafnar líta við í Krist­janíu. Margir til að líta augum þetta sér­staka sam­fé­lag en sumir til að kaupa varn­ing sem þar er á boðstólum en er vand­fundn­ari ann­ars staðar: vímu­efni. 

Í næsta mán­uði verða 52 ár síðan hópur fólks lagði undir sig fyrr­ver­andi umráða­svæði hers­ins á Krist­jáns­höfn. Á svæð­inu sem er um það bil 34 hekt­arar að stærð voru fjöl­margar bygg­ingar sem höfðu til­heyrt hernum en stóðu nú auðar og ónot­aðar. Hópurinn sem lagði undir sig svæðið gaf því nafnið Krist­janía (Christiania). Í Kaup­manna­höfn var mik­ill skortur á hús­næði og margir til­búnir að setj­ast að á þessu nýja sjálfs­stjórn­ar­svæði, eða í frí­rík­inu, eins og íbú­arnir hafa kosið að kalla svæðið. 

Öðruvísi taktur

„Fríríkið“ Krist­janía var form­lega stofnað 26. sept­em­ber 1971 og tæp­lega eitt þús­und manns sett­ust að á svæð­inu. Hópurinn var fjöl­breyttur en átti það sam­eig­in­legt að vilja þak yfir höf­uðið og frjáls­legra og ann­ars konar sam­fé­lag. Á árunum í kringum 1970 var hassneysla orðin all útbreidd og Krist­janía varð brátt eins­konar dönsk sölu­mið­stöð þess­arar ólög­legu neyslu­vöru. Vitað var að í „frí­rík­inu“ væri auð­velt að verða sér úti um „grasið“ eins og það var kallað. Allt frá upp­hafi voru við­skiptin að mestu leyti tak­mörkuð við eina til­tekna götu „Pusher Street“. 

Fréttir af þessu fyr­ir­bæri, eins og sumir köll­uðu Krist­janíu, bár­ust víða og frá upp­hafi varð svæðið vin­sæll við­komu­staður ferða­manna. Marga fýsti að líta augum þetta sér­stæða sam­fé­lag og það hefur ekki breyst. Á síð­asta ári var Krist­janía fjórði fjöl­sótt­asti við­komu­staður þeirra ferða­manna sem lögðu leið sína til Kaup­manna­hafnar og þannig hefur það verið árum saman. Mann­lífið er skraut­legt og það sama má segja um húsa­gerð­ina á svæð­inu, þar hefur ímynd­un­ar­afl (og kannski fjár­ráð) ráðið meiru en strangar bygg­ing­ar­reglu­gerðir. 

Lengi verið höfuðverkur stjórnmálamanna

Þegar Krist­janía varð til, árið 1971, vissu stjórn­mála­menn vart hvaðan á þá stóð veðrið og hvernig ætti að bregð­ast við. Þannig hefur það reyndar lengst af verið. Það flækti öll mál varð­andi Krist­janíu að svæðið er innan Kaup­manna­hafnar en var í eigu rík­is­ins þegar Krist­janitt­arnir lögðu það undir sig. Árum saman hafa heyrst raddir sem kröfð­ust þess að „hreinsað yrði til“. 

Árið 1989 sam­þykkti danska þingið, Fol­ket­inget, lög, Krist­jan­íu­lögin eins og þau voru kölluð. Þar var að finna ákveðin skil­yrði um notkun svæð­is­ins. Fimmtán árum síðar, 2004, var lög­unum breytt og þar var meðal ann­ars kveðið á um að hús sem byggð hefðu verið án form­legs leyfis, eftir laga­setn­ing­una 1989, skyldu rifin. Friðaðar bygg­ingar, sem voru og eru fjöl­margar, yrðu gerðar upp og end­ur­bættar. Þótt íbúum Krist­janíu þætti ýmis­legt gott í við­bót­ar­lög­unum frá 2004 var annað sem þeim féll miður. Til dæmis það að rífa skyldi íbúð­ar­hús á svæð­inu enda gekk hægt að fram­fylgja þessu laga­á­kvæði.  

Stóra skrefið árið 2012

Í júlí árið 2012 und­ir­rit­uðu full­trúar danska rík­is­ins og íbúa Krist­janíu kaup­samn­ing. Selj­and­inn var danska ríkið og kaup­and­inn var sjóð­ur­inn „Frista­den Christiania“. Samn­ingur þessi var mik­il­vægur fyrir báða aðila. Fyrir ríkið var mik­il­vægt að fá ein­hvern botn í ára­langa óvissu og ljúka deilum um til­veru Krist­janíu. Fyrir kaup­and­ann var samn­ing­ur­inn ekki síður mik­il­vægur, með honum var fram­tíð Krist­janíu tryggð. Í samn­ingnum var kveðið á um að yfir­bragð svæð­is­ins yrði með svip­uðum hætti og verið hafði allt frá upp­hafi. Krist­janittar skuld­bundu sig til að hlíta ýmsum reglum, til dæmis íbúa­skrán­ingu, bygg­ing­ar­reglu­gerðum og almennum skipu­lags­reglum sem gilda í Kaup­manna­höfn. Fyrst reyndi fyrir alvöru á þetta sam­komu­lag árið 2017, þegar nýr reið­hjóla­stígur var lagður þvert yfir hluta Krist­jan­í­u­svæð­is­ins. Þótt Krist­janitt­arnir væru and­snúnir þess­ari fram­kvæmd breytti það engu, stíg­ur­inn kom og þús­undir hjól­reiða­manna fara dag­lega um hann.

Viðbótin

Í sam­komu­lag­inu frá árinu 2012 var ákvæði um að 10 árum síðar skyldi sam­komu­lagið end­ur­skoðað. Vorið 2022 gerði danska ríkið Krist­janitt­unum til­boð, sam­kvæmt því skyldu byggðar leigu­í­búðir á 15 þús­und fer­metra svæði sem til­heyrir Krist­janíu. Íbúð­irnar yrðu leigðar út sam­kvæmt úthlut­un­ar­reglum Kaup­manna­hafn­ar­borgar. Krist­janitt­unum bauðst að kaupa aukið land­svæði ásamt bygg­ingum sem þar voru fyrir. 

Hluta­bréfÞegar íbúar Krist­janíu keyptu svæðið árið 2012 útbjuggu þeir hluta­bréf sem allir gátu keypt. Bréfunum fylgdi ekki atkvæð­is­réttur.

Miklar umræður urðu um málið í þing­inu og margir og langir fundir voru haldnir um málið í Krist­janíu. Á end­anum sam­þykktu íbúar Krist­janíu að ganga að til­boði rík­is­ins. Óljóst er hvenær fram­kvæmdir við bygg­ingu leigu­í­búð­anna hefj­ast. 

Miklir fjármunir skipta um hendur í vímuefnaviðskiptum

Eins getið var um fyrr í þessum pistli varð Krist­janía nán­ast allt frá stofnun helsti sölu­staður hass­ins í Kaup­manna­höfn. Í upp­hafi voru það einkum „smá­kaup­menn“ sem stóðu innan við búð­ar­borðið, ef svo mætti segja, í versl­ana­göt­unni Pusher Street.

Margir runnu á „pen­inga­lykt­ina“ og eins og ýmsir höfðu ótt­ast renndu glæpa­gengin (oft kennd við mót­or­hjól) hýru auga til þess­ara við­skipta. Smám saman tókst þessum gengjum að ná undir sig nær öllum vímu­efna­mark­aðnum í Krist­janíu og hafa ekki látið sér nægja að selja „grasið“ en selja jafn­framt margt sterkara, til dæmis amfetamín. Tilkomu glæpa­gengj­anna í Krist­janíu hefur fylgt ofbeldi og glæpir, og á seinni árum morð. 

Íbúarnir vilja glæpagengin burt

Óánægja og ótti íbúa Krist­janíu vegna ástands­ins í Pusher Street hefur farið vax­andi á síð­ustu árum, en fengið lítið að gert. Lög­reglan hefur sömu­leiðis, að mati íbú­anna, lítið gert til að takast á við vand­ann. Einstaka „rass­íur“ sem gripið hefur verið til hafa litlu sem engu breytt. Íbúarnir hafa fram til þessa ekki verið trú­aðir á að stöðug við­vera lög­reglu myndi nokkru breyta. Nú heyr­ast þó æ fleiri raddir sem krefj­ast þess að lög­reglan láti til sín taka. Lög­reglan segir sífellt meiri hörku ein­kenna „fíkni­efna­heim­inn“.  

Lokuðu Pusher Street 

Aðfara­nótt síð­ast­lið­ins þriðju­dags (8. ágúst) tók hópur Krist­janitta sig saman og lok­aði öllum helstu aðgöngu­leiðum að Pusher Street. Mikil leynd hvíldi yfir und­ir­bún­ingi þess­ara aðgerða, sem um eitt hund­rað manns tóku þátt í. Til verks­ins voru not­aðir stórir vörugámar og stór­eflis stein­steypuklumpar. Þetta vakti mikla athygli og fréttir af aðgerðum íbú­anna birt­ust í öllum dönskum fjöl­miðlum. Ekki síst vegna þess að þetta var í fyrsta skipti sem íbú­arnir létu skoðun sína á ástand­inu í ljós, með svo afger­andi hætti. Lokun Pusher Street stóð ekki lengi því innan örfárra klukku­stunda voru gám­arnir og steypuklump­arnir á bak og burt og við­skiptin héldu áfram eins og áður. 

Aðgerðin táknræn og sýndi hug íbúanna

Þótt lokun Pusher Street hafi ein­ungis varað í nokkrar klukku­stundir var hún ekki til­gangs­laus, að mati þeirra íbúa sem danskir fjöl­miðlar ræddu við. Þeim bar saman um að nauð­syn­legt væri að bregð­ast við sífellt auknu ofbeldi og nauð­syn­legt væri að binda enda á ofbeldið og hrekja glæpa­gengin burt úr Krist­janíu. Einn tals­maður íbú­anna sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að Krist­janía í höndum glæpa­gengja væri ekki sú Krist­janía sem íbú­arnir kærðu sig um. „En við ráðum ekki við þetta ein og óstudd, við verðum að ná eyrum stjórn­mála­mann­anna, og lög­regl­unnar.“

Preben Bang Hen­rik­sen þing­maður Venstre hefur farið fram á að Peter Hum­melgaard dóms­mála­ráð­herra komi á fundi með yfir­mönnum lög­regl­unnar í Kaup­manna­höfn til að fara yfir mál­efni Krist­janíu. Hann sagði í við­tali við danska útvarpið að þótt lög­reglan hefði vak­andi auga með Krist­janíu hrykki það ber­sýni­lega ekki til. „Grennd­ar­stöð lög­regl­unnar, sem væri opin í að minnsta kosti 15 klukku­stundir á viku væri stórt skref í rétta átt“ sagði Preben Bang Hen­rik­sen. Þetta kemur ugg­laust til kasta þings­ins þegar það kemur saman að loknu sum­ar­leyfi. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár