Mynd: Unsplash

„Fólk með Downs heilkenni getur lifað innihaldsríku lífi“

Fyrr á þessu ári var talið að síðasta barnið með Downs-heilkenni væri fætt á Íslandi en þá hafði ekkert barn með heilkennið fæðst í rúm tvö ár. Síðan þá hafa hins vegar tvær stúlkur fæðst með Downs-heilkenni. Sérfræðingar segja þrýst á verðandi mæður að fara í skimanir á meðgöngu og að rang­hugmyndir ríki um líf með auka­litninginn.

„Fólk með Downs-heilkenni getur lifað innihalds­ríku lífi eins og allir aðrir,“ segir Ingólfur Einarsson, barna­læknir og sviðs­stjóri hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð. Skortur sé á almennri þekkingu á Downs-heilkenni í samfélaginu. „Þegar fjallað er um einstaklinga með Downs-heilkenni er yfirleitt einblínt á neikvæðu hliðarnar og á hvers konar stuðning og þjónustu þeir þurfa á að halda.“ 

Á alþjóð­legum degi Downs-heilkennisins í ár, 21. mars, var fjallað um áhyggjur fólks yfir því að síðasta barnið með Downs-heilkennið væri fætt á Íslandi. Ekkert barn með heilkennið hafði þá fæðst hér á landi í rúm tvö ár. Ástæðan eru fóstur­skimanir þar sem skimað er eftir litninga­frávikinu sem er Downs-heilkennið. Þessar skimanir eru kynntar sem val en ýmsir verðandi foreldrar upplifa að þeim hafi nánast verið ýtt af fólki í heilbrigðis­kerfinu að ekki bara fara í skimun heldur í fram­haldinu að láta rjúfa þungunina ef barnið kemur til með að vera með Downs-heilkennið. Tvær …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Líf með Downs

Mest lesið undanfarið ár