Ljós­mæður Bjark­ar­innar Bjóða konum á að upp­lifa vald­efl­andi fæð­ingar. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Sú ákvörðun sem kona tekur fyrir sig, er næsta góða ákvörðun í hennar ferli“

Aukið rými hefur skap­ast fyrir konur til að taka stjórn á eigin lík­ama eftir sam­fé­lags­um­ræðu síð­ustu ára og finnur ljós­móðir fæð­ing­ar­heim­il­is­ins Bjark­ar­innar fyrir auk­inni vald­efl­ingu kvenna í sínu starfi. Tótla I. Sæmunds­dóttir, fræðslu­stýra Sam­tak­anna '78, segir konur vera mis­mun­andi en reynsla fjög­urra við­mæl­enda Heim­ild­ar­innar stað­festir að svo sé.

Hvað er að vera kona? Það fer eftir því hverja þú spyrð. Konur eru eins fjöl­breyttar og þær eru margar. Á sama tíma og svarið veltur á hverri og einni, er óhjá­kvæmi­legt að horfast í augu við þá stað­reynd að sam­fé­lags­legur þrýst­ingur um atferli og útlit veitir konum tak­markað svig­rúm til að stíga fyrir utan hið hefð­bundna form kven­leika. Krafan um að vera glæsi­lega kraft­mikil en á sama tíma blíð, nátt­úru­leg og góð getur verið yfir­þyrm­andi.

Sumar konur gefa skít í þessar kröfur og fara sínar eigin leiðir, brjóta gler­þök og grisja áður óyf­ir­stíg­an­legan og alltof háan arfa karl­mennsk­unnar. Flestar eru lík­lega ein­hvers staðar í miðj­unni, falla inn í normið en neita að gang­ast við því að fullu. Fyrir sumar er kven­leik­inn tengdur lík­am­legum atburðum og horm­óna­starf­semi, þær verða konur þegar þeim blæðir í fyrsta sinn, kynn­ast tíða­hring sínum eða eign­ast barn. Aðrar upp­götva kven­leika sinn í gegnum félags­legar aðstæður og innri skynjun. Engin ein leið er í átt að kyn­vit­und. 

Sjálfstæð og fjölhæf

Rosanne Kats frá Ísrael sólar sig í miðbæ Reykja­víkur en hún er á ferða­lagi um landið. „Að vera kona fyrir mér merkir að vera sjálf­stæð og fjöl­hæf. Það er getan til þess að vera móðir, maki, vin­kona og á atvinnu­mark­aði. Að njóta lífs­ins sam­kvæm sjálfri þér ásamt því að upp­lifa heilan skala af styrk­leikum og til­finn­ingum,“ segir Rosanne. Hún nýtur sam­veru­stunda með vinum, áhuga­málum og að sinna vinnu sinni. Þannig öðl­ast hún kraft og orku til að takast á við lífið. Rosanne finnur ekki fyrir þrýst­ingi frá sam­fé­lag­inu vegna þess „að í nútíma­sam­fé­lagi get ég valið hver ég er og það er rétt, satt og lög­mætt val“. 

Rosanne KatsLeggur mikið upp úr sjálf­stæði.

Yrsa Þöll Gylfa­dóttir situr í sól­inni á Aust­ur­velli og skrifar í bók. Hún seg­ist ekki lifa mikið öðru­vísi lífi en mað­ur­inn hennar. Þegar hún heyrir orðið kona hugsar hún um að það sé helm­ingur mann­kyns þó að orð­inu fylgi „alls konar merk­ing­ar­auki sem er klisju­kenndur“. Sam­fé­lags­þrýst­ingur birt­ist í útlits­kröfum að hennar mati „þó maður reyni að streit­ast á móti mörgum þeirra, að þá eru þær auð­vitað til staðar. Ég finn meira og meira fyrir því núna þegar ég sé að elsta barnið mitt er að sigla inn í ung­lings­árin. Það er alveg ótrú­lega merki­legt hvað maður tekur eftir því hjá þeim hvað síast inn. Alls konar kröfur um að vera fal­leg og að taka þátt í að skreyta sig.“ Aðspurð seg­ist hún ekki velta sér mikið upp úr horm­óna­starf­semi lík­am­ans. „Ég hef ann­að­hvort verið í afneitun gagn­vart þeim eða verið treg að pikka upp ein­hver merki.“ 

Yrsa Þöll Gylfa­dóttirSegir kröf­urnar um að vera fal­leg byrja snemma.

Leitar svara við kyni sínu

Þegar Hilke Lina Ilse Jakob er beðin um að nefna þær til­finn­ingar sem hún tengir við orðið kona segir hún: „Þá er ég bara ég. Get ekki sagt neitt annað.“ Hilke Lina kann­ast ekki við sam­fé­lags­þrýst­ing vegna þess að hún er kona. „Nei, ekki neitt. Ég er að vinna sem leið­sögu­maður og þetta gengur bara allt sinn lif­andi gang.“ Fyrir hana skipta hormón ekki máli. „Ég bara kíki ekki á þetta. Ég borða það sem mér finnst gott og labba. Það er aðal­málið.“ 

Hilke Line Iilse JakobSegist ekki upp­lifa sam­fé­lags­þrýst­ing.

„Ég er enn þá svo­lítið að fikra mig áfram um kyn­með­vit­und hjá mér. Þannig að ég sé mig meira bara sem ein­stak­ling,“ segir Margrét Ósk Arn­ar­dóttir og bætir við að hún sé „ekki alveg komin með svar við því“ hvernig við finnum út úr því hver við erum. Margrét segir þrýst­ing vera til staðar frá sam­fé­lag­inu um að svara spurn­ing­unni og skil­greina sig sam­kvæmt kyni. „Já, það er mikil pressa að falla inn og vera á ákveð­inn hátt. Ef maður er ekki á ákveð­inn hátt er maður óör­uggur með sig. Það getur verið mjög óþægi­legt.“ Sjálf hefur Margrét upp­lifað það að vera óör­ugg í eigin skinni og tengir orðið kona við að þurfa að „vera á ein­hvern ákveð­inn hátt og að maður sé ekki nóg til þess að ná því“.

Margrét Ósk Arn­ars­dóttirEr enn að finna út úr því hver hún er.

„Það er partur af mér sem ég væri sátt við ef það væri ekki ætl­unin að vera kven­leg. Ef maður er kven­legur þá þarf maður að vera á ákveð­inn hátt og ef maður er það ekki þá er maður óör­ugg­ari með þá parta heldur en ef þú værir bara ein­stak­lingur sem er alls konar.“ Margréti finnst hún hafa meiri til­finn­ingar en fólk í kringum sig og lítur á það sem „gott en það getur verið svo­lítið ein­angr­andi af því að fólk er ekki voða dug­legt að sýna sínar eigin til­finn­ingar. Þá er maður svo­lítið einn í því.“

Að finna kyn­vit­und sína er blanda af innri og ytri þáttum segir Margrét og nefnir að það sé þrýst­ingur á að vera ákveðin týpa af konu. „Ég er alveg sátt við lík­amann minn og mér finnst hann fínn eins og hann er, hvað hann gerir og hvernig honum líður. En þegar ég set það í kass­ann í að vera kven­leg að þá kemur óör­yggi. En ef hann má bara vera eins og hann er þá er hann góður.“ 

Mismunandi konur

„Ég held að við séum allar mjög mis­mun­andi konur,“ segir Tótla I. Sæmunds­dóttir, fræðslu­stýra Sam­tak­anna '78. „Það sem er talað um að sé hinseg­in­leiki er allt sem er utan við þessar stöðl­uðu félags­legu hug­myndir um  kyn­vit­und, kynein­kenni, kyn­hneigð og kyntján­ingu. Í fyrsta lagi er það kyn­vit­undin, sem er hvernig við upp­lifum kyn inni í okkur. Í öðru lagi  kynein­kenni sem er þetta líf­fræði­lega kyn, hvernig lík­am­inn og líf­fræðin virka. Í þriðja lagi er það kyn­hneigð, hverjum maður lað­ast að og í fjórða lagi er það kyntján­ing, hvernig við tjáum kyn út á við.“ 

Tótla I. Sæmunds­dóttirSegir orð­ræðu á sam­fé­lags­miðlum áhyggju­efni fyrir hinsegin fólk.

Tótla segir mik­il­vægt að fólk beri virð­ingu fyrir hvort öðru og sýni skiln­ing, en á und­an­förnum árum hefur verið aft­ur­för er varðar við­horf ung­menna til hinsegin fólks. Þar spilar margt inn í, til dæmis for­dóma­fullt efni á sam­fé­lags­miðlum og tak­mörkuð laga­leg rétt­indi hinsegin fólks hjá öðrum Vest­ur­landa­þjóðum. Þetta stuðlar að upp­lýs­inga­óreiðu sem Samtökin '78 eyða miklu púðri í að sporna gegn. „Við erum að sjá mót­stöðu og for­dóma gagn­vart trans­fólki aukast mjög hratt. Ég held að það sé af því að við erum að sjá fyrstu kyn­slóð­ina alast upp opið og frjálst. Þetta er eitt­hvert við­bragð við því. Með auknum sýni­leika og rétt­indum kemur aukin mót­staða.“ 

Unnið hefur verið að fræðslu hjá þjón­ustu­stofn­unum í sam­vinnu við Samtökin '78 til að koma í veg fyrir að hinsegin skjól­stæð­ingar lendi í óheppi­legum aðstæðum sökum van­þekk­ingar. „Áskor­anir líkt og að mökum hinsegin fólks sé vísað í burtu vegna þess að gert er ráð fyrir að um sé að ræða vin­konur eða systur. Þetta er ekki endi­lega sprottið upp af ill­girni eða vondum til­finn­ingum heldur þekk­ing­ar­leysi og ekki gert ráð fyrir hinsegin fólki í kerf­inu.“ 

Hjá Sam­tök­unum '78 er hægt að sækja gjald­frjálsa ráð­gjöf og leggur Tótla áherslu á að allir geti leitað sér aðstoðar og að næg þekk­ing sé til staðar á mála­flokknum. „Það sem er flókið við þetta er að það treysta ekki allir kerf­inu og þarna þarf að vera rými þar sem fólk veit að það er þekk­ing til staðar á þeirra mála­flokki og þeim verður tekið opnum örmum.“ 

Kvenleiki í aðalhlutverki

Á síð­ustu árum hefur jafn­rétti kynja og vald­efl­ing kvenna verið nokkuð áber­andi, til að mynda með #metoo, #freethenipple og fjöl­breyti­leikaum­ræðu. Sunna María Schram, ljós­móðir á fæð­ing­ar­heim­il­inu Björk­inni, seg­ist finna fyrir áhrifum þess­arar umræðu á óléttar konur. Í Björk­inni býðst þeim konum sem ganga eðli­lega lengd með­göngu með eitt barn að upp­lifa vald­efl­andi fæð­ingu. 

 „Konur eru að eign­ast fæð­ing­arnar sínar aftur. Það hefur svo­lítið verið lenskan síð­ustu ár að lækn­is­fræði­lega mód­elið hefur verið að taka fæð­ingar út úr höndum kvenna og segja þeim að þær séu ekki nógu vel hann­aðar til að ganga með börn. En þetta er að snú­ast við. Konur eru orðnar með­vit­aðri um að þetta er engin til­viljun hvernig með­gangan og fæð­ingin eru, að þær hljóti bara að vera hluti af okkar eðli­lega ferli.“ 

Sunna María SchramFinnur fyrir vald­efl­ingu óléttra kvenna í kjöl­far sam­fé­lags­um­ræðu síð­ustu ára.

Að sögn Sunnu Maríu snýst vald­efl­andi fæð­ing um val, að sá aðili sem gangi með barnið sæki sér vald í gegnum valið um það hvernig fæð­ingin fari fram. „Þær sjá fyrir sér að þetta sé eðli­legt ferli,“ segir Sunna María um þær konur sem velja að fæða hjá Björk­inni. Hún telur flestar konur þar til­heyra einum af tveimur hópum. Annar hóp­ur­inn sam­anstendur af vel upp­lýstum konum sem hafa kynnt sér starf­semi kven­lík­am­ans og ferli fæð­ingar vel. „Þess vegna velja þær að koma hingað, til að hafa meira um það að segja hvernig fæð­ingin þeirra er. Svo er það hinn hóp­ur­inn, konur sem eru fjöl­byrjur, hafa fætt áður og eru með erf­iða fæð­ing­ar­reynslu innan kerf­is­ins. Þær eru þar af leið­andi að velja að stíga út fyrir kerfið til þess að upp­lifa meiri stjórn og aukið vald.“ 

Valdið sem Sunna María á við kemur fyrst og fremst frá kon­unni sjálfri og fyrir margar er það fem­inísk afstaða að treysta eigin lík­ama í ferl­inu, sé það mögu­leiki. Í grunn­inn gengur hug­mynda­fræði Bjark­ar­innar út á að sú ákvörðun sem kona tekur fyrir sig, er næsta góða ákvörðun í hennar ferli. Ef hún vill færa sig yfir á spít­ala er það góð ákvörðun. „Það er aldrei þannig að konan hafi hent inn hand­klæð­inu og henni mis­tek­ist, heldur er þetta næsta góða ákvörðun í hennar ferli. Það er aldrei ávinn­ingur fyrir okkur að berj­ast fyrir hug­sjón ef hún er farin að stang­ast á við það sem konan hefur val um eða þörf fyrir,“ segir Sunna María. 

Baðkar Bjark­ar­innarHug­mynda­fræðin gengur út á að hver og ein velji hvað er best fyrir sig.

Áður starf­aði Sunna María sem lista­kona og stund­aði meist­ara­nám í mynd­list en þegar að hún fæddi sín eigin börn breytt­ist eitt­hvað innra með henni. Fæð­ing­ar­ferlið og hlut­verk ljós­mæðra í því heill­aði lista­kon­una sem skráði sig í kjöl­farið í hjúkr­un­ar­fræði og svo ljós­móð­ur­fræði. Þann dag sem Heim­ildin hitti Sunnu Maríu var hún á bak­vakt ef fæð­ing skyldi fara af stað og lýsti ljós­móð­ur­hlut­verk­inu sem ein­stöku. „Það er algjör­lega magnað og það eru for­rétt­indi að fá að sjá hrá­leik­ann í fólki. Það er ekki rými fyrir for­dóma eða skoð­anir. Það er ein­stakt að kom­ast svona nálægt fólki og að fá að vera stuðn­ingur. Í hvert skipti sem maður fer í gegnum fæð­ingu kemur kippur í hjartað.“ 

„Það er aldrei ávinn­ingur fyrir okkur að berj­ast fyrir hug­sjón ef hún er farin að stang­ast á við það sem konan hefur val um eða þörf fyrir“
Sunna María Schram

Einfalda málið

Áhersla er lögð á að kynn­ast kon­unni í ferl­inu með sam­felldri þjón­ustu hjá Björk­inni. Aðspurð segir Sunna María að oft opn­ist nýr heimur fyrir ungum mæðrum á fyrstu með­göngu þegar þær átta sig á hvað er í vændum en algengt er að þær sem leiti í Björkina hafi áhuga á mál­efnum kvenna. „Við erum oft að hitta konur í kringum viku 20. Þá eru þær búnar að vera í fimm mán­uði að með­taka það sem er að ger­ast og breyt­ing­una í vændum,“ segir Sunna María. 

„Nú erum við að flestu leyti í líf­inu að horfa aftur til ein­fald­leik­ans. Hvað eru nátt­úran og lík­am­inn að segja okkur?“ Sunna María segir aukn­ingu í rann­sóknum á nátt­úru­legum fæð­ingum sem veita upp­lýs­ingar um hvað það er gagn­legt fyrir lík­amann að fá öryggi og rými í fæð­ingu styðja við hug­mynda­fræði Bjark­ar­innar. „Fæð­ing­ar­horm­ónin eru rosa­lega flókin og það getur verið trufl­andi að fara inn á stofnun.“ 

„Fæð­ing­ar­horm­ónin eru rosa­lega flókin og það getur verið trufl­andi að fara inn á stofnun“

„Því meira sem við sleppum tök­unum af þessu ferli, sitjum á hönd­unum okkar og leyfum því að flæða, því betur gengur það ef allt er eðli­legt. Við erum að reyna að skapa heim­il­is­legar aðstæður fyrir konur,“ segir Sunna María en fæðst hafa 422 börn á fæð­ing­ar­heim­il­inu frá því að það var opnað í maí 2017, þar að auki hafa ljós­mæð­urnar sem þar vinna tekið á móti 298 börnum í heima­fæð­ingum. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár