18% 10 til 17 ára drengja fengu ADHD lyf: Barninu breytt en ekki aðstæðunum

Þétt­setnar skóla­stofur, mikil skjá­notkun og úrræða­leysi eru á meðal þess sem talið er liggja að baki veru­legri ADHD-lyfja­notkun drengja á Íslandi. Lyf eru oftar en ekki svarið við grein­ingu hér­lendis en Norð­ur­löndin bjóða börn­unum sínum frekar önnur úrræði. Börn geta þurft að bíða allt að ár eftir ADHD grein­ingu og á þeim tíma getur ástandið versnað.

<span>18% 10 til 17 ára drengja fengu ADHD lyf: </span> Barninu breytt en ekki aðstæðunum
Geðhjálp „Það er bara rugl að þetta mik­ill fjöldi barna á Íslandi miðað við önnur lönd þurfi svona mikið af þessum lyfjum. Það gengur ekki upp,“ segir Grímur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Um 18% pró­sent drengja á aldr­inum 10 til 17 ára fengu ADHD lyf í fyrra, sam­kvæmt Talna­brunni Land­læknis. Á síð­ustu árum hefur verið skrifað mun oftar upp á lyfin hér en á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Grímur Atlason, fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar segir lyfja­notk­un­ina allt of mikla og að sam­fé­lagið þurfi að breyt­ast, ekki börnin. 

„Þetta sýnir í raun­inni hvernig skóla­kerfið, hvernig við sem for­eldrar, bara allir, höfum farið í þá átt að ef barn fún­kerar ekki ein­hverra hluta vegna í ein­hverjum aðstæðum breytum við ekki aðstæð­unum heldur barn­inu. Það er bara mjög vond þróun,“ segir Grímur. 

Þrýst á að börn fái greiningu

Anna Sigríður Páls­dóttir, yfir­læknir Geð­heilsu­m­ið­stöðvar barna, segir að þetta háa hlut­fall drengja komi tví­mæla­laust ekki allt frá þeirri mið­stöð, en hún sinnir m.a. ADHD grein­ingum og með­ferð fyrir börn. Slíkar grein­ingar fara einnig fram á Barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­ala (BUGL) og á einka­stofum sál­fræð­inga og geð­lækna.

…
Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnlaugur H. Jónsson skrifaði
    Vandamálið er skóli án aðgreiningar sem hefur verið útfærður þannig að börn með mjög mismunandi þarfir eru sett í sömu stofu. Ef þau samsama sig ekki 40 mínútna hreyfingarleysi eru þau sett í greiningu og á lyf í stað þess að setja þau í sér bekk við hæfi þar sem hreyfing er stærri þáttur í námi. Hef hvatt til þess að örlög rítalínbarna séu könnuð samanborið við ofvirk börn sem ekki eru sett á lyf.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Þétt­setn­ar skóla­stof­ur"
    Hvenær verður skólastofa þéttsetin? Á 6. áratugnum voru 30 í bekk normið.
    Þeir sem áttu erfitt með að læra að lesa voru látnir eiga sig, lærðu auðvitað
    ekkert í öðrum fögum. "Lesblinda" var þá óþekkt hugtak.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár