Böðuð vatni Lög­reglan í Haag spraut­aði vatni á mót­mæl­endur sem tengj­ast hreyf­ing­unni Extinction Rebellion til að reyna að leysa sam­kom­una upp. Táragasi var einnig beitt að sögn tals­manna hreyf­ing­ar­innar. Mynd: EPA

Hreyfing með óteljandi andlit

Þau hafa hlekkjað sig við einka­þotur. Farið í setu­verk­fall á hrað­brautum. Brotið glugga í banka og reynt að raska vél­rænum takti iðandi stór­borga. Verið hand­tekin í hund­raða vís. En þegar neyð­ar­á­stand skap­ast getur þurft að brjóta glerið, segja þau. Láta í sér heyra. Ekki vera bara stillt, prúð og hlýðin. Og neyðin vofir yfir með sívax­andi lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum.

Uppi varð fótur og fit á flug­velli í Genf í síð­ustu viku. Hópur fólks hafði kom­ist inn á völl­inn og hlekkjað sig við einka­þotu. Þau voru hin róleg­ustu en rösk­uðu heldur betur ró starfs­manna vall­ar­ins sem reyndu í ofboði að draga þau af vett­vangi og hringdu svo í lög­regl­una sem tókst að fjar­lægja hóp­inn.

Hann sam­an­stóð af ein­stak­lingum úr ýmsum áttum, sem eiga það þó sam­eig­in­legt að vera aktí­vistar sem eru að berj­ast með ýmsum ráðum við að opna augu stjórn­mála­manna og almenn­ings fyrir yfir­vof­andi hættu.

Til­gangur gjörn­ings­ins, sem hefur verið end­ur­tek­inn á fleiri flug­völlum í Evrópu, var að vekja athygli á eft­ir­far­andi: Á sama tíma og lofts­lags­váin vofir yfir kaupir rík­asta pró­sent jarð­ar­búa sér einka­þotur sem aldrei fyrr. Einka­þotur „brenna fram­tíð okkar“ og „drepa plánet­una“, stóð á við­vör­un­ar­miðum, sam­bæri­legum þeim sem skylt er að setja á tóbaks­vörur, sem þau límdu á einka­þot­una.

Einka­þotur eru tvö­falt fleiri …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Síðan um 1950 hafa vísindin viðurkennt að athafnir manna munu auka hita loftlags.
    Um og eftir 1980 ætti almenningurinn einnig að hafa fengið vitneskju um það.
    1992 var mikil ráðstefna í Rio de Janeiro þar sem allir lofuðu að stemma stigu við hækkandi hita veðurfars.
    2023: það er blásið CO2 út í andrúmsloftið eins og aldrei fyrr.
    Er einhver hissa á að þeir sem þurfa að súpa seiðið eru reiðir?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár