Sátti kveður sáttur: „Komið gott“

Aðal­steinn Leifsson segir ekk­ert eitt umfram annað valda því að hann hafi ákveðið að láta af emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara. Verk­efnin hafi verið krefj­andi und­an­farin þrjú og hann telji komið gott. Oft og tíðum hafi vinnan verið allan sól­ar­hring­inn svo vikum skipti.

Sátti kveður sáttur: „Komið gott“
Aðal­steinn Leifsson Rík­is­sátta­semj­ari seg­ist hafa gætt þess vand­lega að tjá sig ekki um vald­heim­ildir emb­ætt­is­ins, því þá sé „maður kom­inn í póli­tík og það skemmir ein­fald­lega fyrir verk­efn­inu, sem er sátta­miðlun.“ Mynd: RÚV

Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari segir við Heim­ild­ina að það sé ekk­ert eitt umfram annað sem valdi því að hann hefur ákveðið að láta af emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara, heldur hafi und­an­farin ár ein­fald­lega verið mjög krefj­andi og hann telji komið gott, eftir rúm þrjú ár sem rík­is­sátta­semj­ari.

„Und­an­farin ár hafa verið mjög krefj­andi, en að sama skapi árang­urs­rík, það hefur alltaf tek­ist að finna lend­ingar og lausnir í mörgum þungum erf­iðum kjara­deilum. Eftir að hafa verið vak­inn og sof­inn yfir þessu verk­efni núna í nokkur ár finnst mér komið gott og kveð þetta starf, ánægður með árang­ur­inn og þakk­látur fyrir allt það góða fólk sem ég hef kynnst. En um leið langar mig að snúa mér að nýjum verk­efnum,“ segir Aðal­steinn við Heim­ild­ina.

„Það var ég sem átti frum­kvæðið að þessu og er sáttur og ánægður bæði með far­inn veg og það sem framundan er,“ bætir hann við.

Aðspurður segir hann ekk­ert eitt valda þess­ari ákvörðun. Nú sé bara „komið gott“ og tíma­punkt­ur­inn til að láta af störfum sé ákjós­an­legur, en und­ir­bún­ingur sé að hefj­ast í Karp­hús­inu fyrir næstu stóru kjara­lotu á almennum vinnu­mark­aði. 

„Þú veist hvernig það hefur verið, það hefur verið mikil tog­streita á vinnu­mark­aði og margar þungar og erf­iðar kjara­deilur og það hefur verið mikil vinna að finna leið­ina að lausn­inni sem oft og tíðum hefur verið þyrnum stráð. Ég er mjög sáttur með að þessi vinna hefur gengið vel og tek­ist, en að sama skapi hefur þetta verið oft og tíðum vinna allan sól­ar­hring­inn svo vikum skiptir,“ segir Aðal­steinn.

Hann seg­ist áfram verða til staðar fyrir sátta­semj­ara­emb­ættið og hjálpa til með þau mál sem þegar eru til staðar hjá emb­ætt­inu, að allir bolt­ast hald­ist á lofti og þau sem þangað leita fái góða þjón­ustu og sam­fellu. 

Ástráður Har­alds­son hér­aðs­dóm­ari tekur við emb­ætti sátta­semj­ara á morgun tíma­bundið. „Ég verð til staðar fyrir hann eins og hann telur henta,“ segir Aðal­steinn.

Hefur gætt þess að tala ekki um valdheimildir embættisins

Spurður beint að því hvort sú ákvörðun Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, að fresta fyr­ir­hug­aðri laga­setn­ingu sem sögð var eiga að miða að því að tryggja heim­ildir rík­is­sátta­semj­ara til að leggja fram miðl­un­ar­til­lögu í kjara­deilum, svarar Aðal­steinn neit­andi og bætir við að hann telji ekki rétt að tjá sig um skoðun sína á heim­ildum emb­ætt­is­ins.

„Nei, það er þannig að rík­is­sátta­semj­ari starfar innan þess lag­ara­mma sem Alþingi ákveður og túlkun dóm­stóla á laga­heim­ild­unum hverju sinni. Ég hef gætt þess mjög vand­lega að tala ekki um vald­heim­ildir rík­is­sátta­semj­ara, þær eru við­fangs­efni stjórn­mál­anna. [...] Ég hef gætt þess mjög vand­lega að tala ekki um vald­heim­ildir emb­ætt­is­ins, því þá er maður kom­inn í póli­tík og það skemmir ein­fald­lega fyrir verk­efn­inu, sem er sátta­miðlun.“

Ertu búinn að ákveða hvað tekur við hjá þér? 

„Á næst­unni verð ég í þessu verk­efni að aðstoða hér og er með verk­efni líka sem miðar að því að skoða og kanna líðan og við­horf og starfs­að­stæður samn­inga­nefnda. Ég ætla að skila af mér skýrslu um það og mögu­lega taka að mér ein­hver til­fallandi verk­efni fyrir ráðu­neytið á næst­unni. Hvað tekur síðar við, ég tala bara um það seinna, en það er ekk­ert sem truflar þessi ábyrgð­ar­störf sem ég ætla að klára núna,“ segir frá­far­andi rík­is­sátta­semj­ari.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár