Leyndardómar mötuneytis Alþingis - Slegist um kótilettur í raspi

Mötu­neyti Alþingis er hjartað í hús­inu, griða­staður þar sem allir eru vinir, svona yfir­leitt. Starfs­fólkið hugsar vel um alla, líka mat­vanda þing­mann­inn sem borðar helst ekki græn­meti en elskar græn­met­is­rétt­ina. Annar seg­ist íhuga að fá bann við því að hvítur Monster orku­drykkur sé seldur þar, drykkur sem fékkst fyrst í sjopp­unni eftir form­legt erindi til for­sætis­nefndar Alþingis.

Leyndardómar mötuneytis Alþingis - Slegist um kótilettur í raspi
Gómsætur hádeg­is­verður Langa í sæl­ker­asósu með bök­uðum rauðrófum og íslensku byggi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mötu­neytið er hjartað í hús­inu að mínu viti og starfs­fólkið þar er stór­kost­legt fólk. Eins og á öðrum vinnu­stöðum er nauð­syn­legt að mötu­neytið geti verið griða­staður. Þú getur verið að hnútukast­ast við ein­hvern í þing­sal og síðan tek­urðu bara utan um hann í mötu­neyt­inu,“ segir Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs. 

Alþingi er æðsti hand­hafi lög­gjaf­ar­valds á Íslandi. Þar sitja 63 þjóð­kjörnir full­trúar sem taka mik­il­vægar ákvarð­anir fyrir sam­fé­lagið. Oft er hart tek­ist á í þing­sal en síðan kemur að því að fólk fer í mat. 

Mötu­neytið er á annarri hæð í Skála, nýbygg­ingu sem var reist við þing­húsið árið 2002, og gengið er þangað úr and­dyri upp hinn fræga hring­stiga sem gjarnan sést þegar sjón­varps­við­töl eru tekin við þing­menn. Blaða­menn fá ekki að taka við­töl í mat­salnum og þar eru mynda­tökur almennt ekki leyfðar. Það má því segja að ákveðin leynd hvíli yfir mötu­neyt­inu í augum þeirra …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HKG
    Hulda K Guðjónsdóttir skrifaði
    Skemmtileg grein. En kemur einhvers staðar fram hver matreiðslumeistarinn er á staðnum?
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Mig langar að vita hvað reksturinn á mötuneytinu kostar og hvort að þingmenn og ráðherrar fái frítt að borða ofan á ofurlaun. Já, ég skrifaði ofurlaun!
    0
    • SJ
      Svala Jónsdóttir skrifaði
      " Heitur hádegisverður kostar 900 krónur. Sjoppa er starfrækt í mötuneytinu þar sem hægt er að kaupa ýmsa drykki og snarl, til dæmis kók, appelsín og orkudrykki, skyr, súkkulaði, ópal og myntur. Gos og súkkulaðistykki kosta hvort um sig 300 krónur." Það hjálpar að lesa greinina.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár