Bensínverð það sama og fyrir ári en hlutur olíufélaga hefur tvöfaldast

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra er tæp­lega 308 krónur nú en var 307 krónur fyrir ári. Í maí í fyrra tóku olíu­fé­lögin sem selja Íslend­ingum bensín 31,24 krónur af hverjum seldum lítra. Nú taka þau 62,67 krónur af hverjum seldum lítra.

Bensínverð það sama og fyrir ári en hlutur olíufélaga hefur tvöfaldast
Dýr dropi Bens­ín­verð hefur hækkað um 29 pró­sent að raun­virði á síð­ustu þremur árum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra á Íslandi lækk­aði um 4,5 krónur milli apríl og maí­mán­aða og var 307,9 krónur um miðjan þennan mánuð. Við­mið­un­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­tölu hverju sinni til að forð­ast áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

Í krónum talið er verðið nán­ast það sama og það var fyrir einu ári síðan. Á sama tíma hefur heims­mark­aðs­verð á tunnu af hrá­olíu lækkað um tæp­lega þriðj­ung. Inn­kaup­verð íslenskra olíu­fé­laga á elds­neyti, sem ákvarð­ast einkum af heims­mark­aðs­verði og gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal, hefur á lækkað um 30 pró­sent. 

Þetta má lesa út úr nýrri bens­ín­vakt Heim­ild­ar­innar.

Ef horft er lengra aftur í tím­ann, til maí 2020, þá kostar bens­ín­lítr­inn nú 59 pró­sent fleiri krónur en hann gerði þá. Að teknu til­liti til verð­bólgu er hann 29 pró­sent dýr­ari í dag en hann var fyrir þremur árum síðan.

Álagningin hefur tvöfaldast á einu ári

Íslensku olíu­fé­lögin kaupa alla sína olíu af sama aðilum, Equinor í Noregi. Álagning olíu­fé­laga á Íslandi nú um 20 pró­sent af hverjum seldum lítra. Samkvæmt bens­ín­vakt­inni taka þau til sín 62,67 krónur af hverjum seldum lítra. Fyrir ári síðan, í maí 2022, tóku þau til sínu 31,24 krónur af lítra sem kost­aði nán­ast það sama og lítri í dag, eða tíu pró­sent af hverjum seldum lítra.. Inni í þess­ari álagn­ingu er áætl­aður kostn­aður á borð við flutn­inga og trygg­ingar.

Að hluta til mátti skýra þá lágu álagn­ingu sem var í fyrra­sumar með því að olíu­­­­­­­fé­lögin voru ekki, tíma­bundið, að velta hækk­­­­­­unum á heims­­­­­­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lag­ið. Það hafa þau hins vegar verið að gera und­an­farna mán­uði og þar með aukið hagnað sinn af elds­neyt­is­söl­unni. 

Tæplega 156 krónur af hverjum lítra fara til ríkisins

Hlutur rík­­­­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­­­­­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi. Alls er virð­is­auka­hlut­fallið sem leggst á bens­ín­lítr­ann 19,35 pró­sent, almenna bens­ín­gjaldið hækk­aði úr 30,2 krónum í 32,5 krónur um síð­ustu ára­mót og sér­staka bens­ín­gjaldið fór úr 48,7 krónum í 52,45 krónur. Þá hækk­aði kolefn­is­gjaldið úr 10,5 krónum í 11,3 krónur. 

Alls tekur íslenska ríkið nú um 155,89 krónur af hverjum seldum lítra af bens­íni, eða um 51 pró­sent. 

Von er á fleiri hækk­unum á þá sem keyra um á bílum á næstu árum. Ráðamenn hafa lengi boðað veggjöld víða til að standa undir nauð­syn­legum sam­göngu­fram­kvæmdum og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stytt­ist í að svokölluð flýti- og umferð­ar­gjöld legg­ist á. Þau eiga að að fjár­magna helm­ing kostn­aðar vegna sam­göngusátt­mála fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið, þar sem stærsti ein­staki kostn­að­ar­lið­ur­inn er hin svo­kall­aða Borg­ar­lína. 

Til stóð að leggja fram frum­varp um þau í nóv­em­ber í fyrra og áætl­anir gerðu ráð fyrir að þau yrðu lögð á í ár.  Því var þó frestað og nú stendur til að frum­varpið líti dags­ins ljós á þessu ári, og gjöldin raunar boðuð í fimm ára fjár­mála­á­ætlun sem kynnt var í mars. Gangi það eftir eiga gjöldin að leggj­ast á frá byrjun næsta árs. Nú er reiknað með, að teknu til­liti til verð­lags­breyt­inga, að gjöldin skili 74,6 millj­örðum króna inn í verk­efnið á tíu árum.

Gögn og aðferðafræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­legir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.

  • Líklegt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veitum. Mismunur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.

  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­berar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­aðar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TÞF
    Torfi Þór Friðfinnsson skrifaði
    Mögnuð grein er þá verið að taka mismunandi af okkur eftir staðsetningu (Bústaðavegur Kr 289,70 Orkan, Höfn-Vestmannaeyar Kr 323.80 N1 og mjög víð hjá N1 ) það er munur uppá Kr 34,1 Pr lítra það hlítur þá að vera hlutfall af smá söluverði
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár