„Ef þú nærð stjórn á huganum, þá nærðu stjórn á líkamanum“

Heilsu­bæt­andi ísbað varð ein af mörgum lífs­stíls-tísku­bylgjum síð­asta ára­tugar á sam­fé­lags­miðlum. Lyk­ill­inn að góðri slökun í kalda pott­inum er rétt öndun, sam­kvæmt við­mæl­endum Heim­ild­ar­innar. Margir nýta sér Wim Hof-önd­unaræf­ingar til að njóta góðs af kuld­anum.

Ragnar Mar Svanhildarson Íþróttafræðingurinn og styrktarþjálfarinn notar kalda pottinn til að styrkja vöðvana.

Þú situr í heita pott­inum í sundi og slakar á eftir langan dag. Milli þess sem þú dormar í pott­inum og lítur á klukk­una sérðu hug­djarft fólk ganga rösk­lega að kalda pott­inum og vaða þar ofan í eins og ekk­ert sé. Fyrir ofan pott­inn hangir stór skeið­klukka. Þú bölvar þessu fólki í hljóði fyrir athygl­is­sýk­ina en innst inni langar þig að prófa líka. Skeið­klukkan segir 1:47 mín­úta og þú gjóar augum á fólkið sem hlýtur að vera van­sælt þarna ofan í. En sund­gest­irnir í kalda pott­inum virð­ast njóta sín, þau and­varpa og hrista sig hressi­lega til, skæl­bros­andi. Þú spyrð þig hvað þau fái eig­in­lega út úr þessu en bælir for­vitn­ina niður og snýrð þér gremju­lega í hina átt­ina. Einhvern tím­ann seinna hugs­arðu og lygnir aftur aug­unum.

„Þetta er svona ákveðin núvit­unda­ræf­ing að fara í kaldan pott. Ég held að þetta geti gagn­ast mjög mörgum ef maður gerir þetta rétt,“ segir Elín Edda Sig­urð­ar­dóttir mara­þon­hlaup­ari, en hún fer reglu­lega í kalt vatn. Elín Edda er ein af mörgum Íslend­ingum sem nýta sér kulda til að auka lífs­gæði. Heilsu­bæt­andi ísbað varð vin­sæl lífs­stíls-tísku­bylgja á sam­fé­lags­miðlum fyrir nokkrum árum. Fjölmörg mynd­bönd birt­ust þar af sjálf­skip­uðum gúrúum dreifa boð­skap og lækn­ing­ar­mætti kalda vatns­ins.

„Þá breytist allt“

Hol­lenski ísmað­ur­inn Wim Hof predikar mik­il­vægi önd­unar og þess að sætt­ast við kuld­ann. Þannig telur hann sig geta stjórnað sínu eigin ónæm­is­kerfi. Gerðar hafa verið vís­inda­legar rann­sóknir á Wim Hof og lær­lingum hans sem sýna fram á að önd­un­ar­að­ferð­irnar eru gagn­legar, að minnsta kosti að ein­hverju leyti. 

Vil­hjálmur Andri Ein­ars­son, betur þekktur sem Andri Iceland, sneri lífi sínu við með aðstoð kulda­með­ferðar eftir erf­iða lífs­reynslu og mikla verki til margra ára. Í dag býður Andri upp á nám­skeið fyrir fólk alls staðar að úr heim­inum sem byggja á hug­mynda­fræði Wim Hof.  

Aðeins 13 ára lenti Andri í slysi þar sem mænu­tagl hans skemmd­ist. Meiðslin orsök­uðu mikla verki sem Andri átti erfitt með að losna við. „Ég át gámana af íbú­feni til þess að reyna að ná bólg­unni niður. Ekki það gáfu­leg­asta svona eftir á að hyggja en þetta var það eina sem ég hélt að virk­aði.“

„Allt hjálp­aði þetta eitt­hvað en þetta end­aði í því að ég bætti á mig 30 kílóum og var bara að telja töflur.“ Eftir ára­tugi af verkjum og van­líðan kynnt­ist Andri síðan Wim Hof-aðferða­fræð­inni. „Þegar ég fer að gera öndun og kulda þá breyt­ist allt.“ Í köldu kari náði Andri loks­ins að slaka á og finna jafn­vægi, laus við verki. 

„Að dæsa er það besta“

Aðferða­fræðin sem Andri lifir eftir og kennir öðru fólki snýst um sam­spil önd­unar, kulda og hug­ar­fars. Andri segir mik­il­væg­ast að fólk byrji ein­hvers staðar, jafn­vel þó það sé bara með því að kæla sturt­una örlítið. „Láttu renna á hægri öxl­ina og snúðu hit­anum niður um nokkrar gráður þar til kerfið þitt fer í gang. Þá verður þú að taka yfir. Þetta geta verið tvær gráður, 10 gráður, fer eftir því hvar tauga­kerfið þitt er.“ 

Andri IcelandÍ kalda pott­inum nær Andri slökun.

Mestu máli skiptir að nota önd­un­ina í kulda­með­ferð vegna þess að hún er bein­tengd við tauga­kerfið. Það breytir upp­lifun ein­stak­lings til muna. „Það er öðru­vísi ef þú ferð vilj­andi og yfir­veg­aður í karið, búinn að stilla önd­un­ina af. Það er lyk­ill­inn að þessu öllu.“

Andri vísar í orð vís­inda­manns­ins Andrew Huberman: „Þú róar ekki hug­ann með hug­anum heldur með lík­am­anum, þá get­urðu farið að vinna í hug­anum.“ Sá ein­stak­lingur sem getur setið með rólegan hjart­slátt í köldu baði þolir ansi mikla streitu, að mati Andra, sem bætir því einnig við hve mik­il­væg öndun er í dag­legu lífi. „Að dæsa er það besta sem þú getur gert.“ 

Kvíðinn minnkaði

Elín Edda Sig­urð­ar­dóttir sótti nám­skeiðið Hættu að væla, komdu að kæla hjá Andra. „Þar kennir hann manni ýmis­legt annað en að fara í kalda potta, eins og Wim Hof-öndun og hvernig maður á að hita lík­amann sjálfur eftir köldu pott­ana. Það held ég að sé alveg mjög gott fyrir þá sem vita ekk­ert hvað þeir eru að fara að gera. Auðvitað er líka gott að fara til læknis fyrst og athuga hvort þú sért alveg í stakk búinn til þess að fara að stunda köld böð.“  

Elín Edda Sig­urð­ar­dóttirNotar kulda til að ná slökun.

Kalda vatnið hefur hjálpað Elínu Eddu að takast á við kvíða og öðl­ast ró. „Í nútíma­sam­fé­lagi þá erum við að anda svo­lítið grunnt og hratt. Á þann hátt erum við að auka streit­una á lík­amann.“ Margt bendir til þess að nútíma­sjúk­dómar séu afleið­ing af krónísku álagi og Elín Edda segir það því jákvætt ef fólk geti gert eitt­hvað til að létta álagið. „Svo er líka margt annað til eins og jóga, hug­leiðsla og núvit­unda­ræf­ingar af öðru tagi.“  

„Það er erfitt þegar maður fer ofan í kalt vatn að hugsa um eitt­hvað mikið annað en það. Þú ert ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að gera á eftir eða af ein­hverjum inn­kaupa­lista, heldur ertu bara á staðnum.“ Sjóböð eru líka í miklu upp­á­haldi hjá hlauparanum. „Þegar maður fer í sjó­inn þá er það líka umhverfið og nátt­úran, það er eitt­hvað rosa­lega róandi við það að vera í sjónum.“ 

Kuldinn flýtir fyrir bataferlinu

Ragnar Mar Svan­hild­ar­son er meist­ara­nemi í íþrótta­fræði og styrkt­ar­þjálf­ari karla­liðs Stjörn­unnar í körfu­bolta. Aðspurður hvers vegna íþrótta­fólk noti köld böð í þjálfun sinni, segir Ragnar það vera til að jafna sig hraðar eftir áreynslu. „Til þess að flýta fyrir bata­ferl­inu sem á sér stað eftir æfingu til þess að það sé ferskara fyrir næstu æfingu eða leik.“

Munur er á því hve mikið kaldi pott­ur­inn er not­aður eftir því hvort leik­menn eru í hóp- eða ein­stak­lings­í­þrótt og hvort þau eru á miðju tíma­bili eða utan keppn­is­tíma­bils. Í kalda kar­inu skolar íþrótta­fólk út bólgum sem mynd­ast í lík­am­anum. Bólg­urnar eru nauð­syn­legar til að byggja upp vöðva og þess vegna segir Ragnar að í körfu­bolta sé betra að nota kalda karið utan keppn­is­tíma­bils. „Eftir æfingu mynd­ast þessar bólgur en við viljum stundum hafa þær því að við getum unnið úr þeim og þannig byggt upp sterk­ari lík­ama.“ 

Flestir nota kalda karið eftir æfingu en Ragnar segir þó ein­hverja nýta sér það til að vera ferskari á æfing­unni sjálfri. „Þú getur farið fyrir æfingu. Að taka kalda karið og dýfa sér ofan í í tíu mín­útur, sumir lýsa því að þeir séu meira vak­andi á æfing­unni.“

Góð slökun lykillinn

Ragnar Mar Svan­hild­ar­sonÍþrótta­fræð­ingur og styrkt­ar­þjálf­ari.

Aðspurður hvað honum finn­ist um Wim Hof og aðra áhrifa­valda sem predika fyrir almenn­ingi hvað sé best að gera´, segir Ragnar: „Það sem fólk fattar ekki alltaf er að þegar maður er svona stór per­sónu­leiki eins og Wim Hof og hver annar áhrifa­valdur, þá er auð­vitað verið að selja sig og sína hug­mynda­fræði. Þegar þú ert að selja þína hug­mynda­fræði þá þarftu að vera svo­lítið mik­ill og ýktur til þess að fólk kaupi sig virki­lega inn í þetta.“ Ragnar hefur sjálfur prófað Wim Hof-öndun sem reynd­ist honum vel. Hann mælir líka með því að fólk kynni sér vís­indin á bak við aðferð­irnar sjálft. 

Líkt og Andri og Elín Edda und­ir­strikar Ragnar mik­il­vægi þess að ná góðri slökun. „Ég mæli alltaf með að prófa þetta á sjálfum þér. Ef fólk fílar alls ekki kalda karið, þá hefur það ekki jafn mikil áhrif og ef ein­hver segir: mér líður rosa­lega vel eftir á. Það er munur á þessum tveimur ein­stak­lingum þótt líf­fræði­lega ætti þetta að hafa sömu áhrif. En ef ein­hver er bara að þjást í þrjár mín­útur ofan í kalda kar­inu þá er þetta kannski ekki að gera eins mikið fyrir hann og ein­stak­ling­inn sem getur farið þarna ofan í og náð góðri slökun.“

Stingur í tærnar eðlilegur

Ragnar lýsti ferl­inu allt frá því að tánum er stungið ofan í pott og þangað til lík­am­inn kallar eftir því að sagt sé skilið við kuld­ann. „Maður fer nátt­úr­lega fyrst með tærnar, ef það er rosa­lega kalt fær maður smá sting í þær. Þá byrjar maður að taka djúpan and­ar­drátt því að það er komið stress í lík­amann. Ég segi alltaf að það sé best að fara með tærnar, mittið, síðan hjartað og svo alveg upp að hálsi.“ Til þess að halda ró er mik­il­vægt að anda sig í gegnum kuld­ann. Eftir hálfa til heila mín­útu er algengt að upp­lifa sælu­til­finn­ingu. Þegar lík­am­inn er kom­inn yfir slök­un­ar­stigið byrjar hann að skjálfa til að mynda varma. Reglan hans Ragnars er að fara upp úr þegar hann verður var við skjálfta. 

„Ég segi alltaf að það sé best að fara með tærnar, mittið, síðan hjartað og svo alveg upp að hálsi.“

„Maður getur verið nokkrar mín­útur eftir að maður byrjar að skjálfa en það er vont. Þú vilt frekar ná slökun og getur fengið ofkulnun ef þú skelfur lengi. Þú byggir bara þol fyrir þessu og lík­am­inn aðlag­ast. Ég myndi ekki mæla með því við ein­hvern sem hefur aldrei gert þetta að skella sér ofan í í korter.“ 

Sjálfur situr Ragnar oft í köldu kari með fing­urna upp úr því að þar, og í tám, er meiri næmni en ann­ars staðar í lík­am­anum. 

Bæði Andri og Ragnar nefndu hvernig fólk sem iðkar önd­unaræf­ingar Wim Hof nær að vera lengur ofan í köldu baði. „Hann er búinn að fara með fólki í gegnum önd­unaræf­ingar og með þessum önd­unaræf­ingum get­urðu einmitt verið þarna lengur af því ef þú nærð svo­lítið stjórn á hug­anum, þá nærðu stjórn á lík­am­anum,“ segir Ragnar.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár