Er eyðileggingin réttlætanleg?

Kvik­mynda­leik­stjór­inn Ólafur Sveins­son frum­sýndi nýlega í Bíó Paradís tvær kvik­myndir um Kára­hnjúka­virkjun og áhrifa­svæði hennar fyrir fram­kvæmd­irnar – og eftir þær. Einnig stendur hann fyrir ljós­mynda­sýn­ingu um sama efni í for­sölum Bíó Paradís. Þar eru jafn­framt tvær stutt­myndir tengdar Kára­hnjúka­virkjun sem Ólafur gerði sér­stak­lega fyrir stóra marg­miðl­un­ar­sýn­ingu um nátt­úru­vernd sem hann vann í sam­starfi við Land­vernd og var fyrst sett upp í Norræna hús­inu, en hefur síðan verið sett upp á Ísafirði, Egils­stöðum og Akureyri.

Er eyðileggingin réttlætanleg?
Leik­stjóri Ólafur Sveins­son í vor­inu í Berlín. Mynd: Bára Huld Beck

Aðal­myndin heitir Horfinn heimur og er 74 mín­útna löng heim­ilda­mynd. Á undan henni er sýnd stutt­myndin Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Hún er ein­göngu klippt saman úr ljós­myndum en myndir og tón­list eru eftir Kjartan Sveins­son og hann gerir líka tón­list­ina við lengri mynd­ina.

Stutt­mynd­irnar tvær sem eru hluti af ljós­mynda­sýn­ing­unni tengj­ast báðar bar­átt­unni gegn Kára­hnjúka­virkjun. Önnur fjallar um Ómar Ragn­ars­son en hin um Ferða­fé­lagið Augna­blik og Ástu Arn­ar­dóttur og Ósk Vil­hjálms­dóttur, sem stóðu fyrir göngu­ferðum um áhrifa­svæði Kára­hnjúka­virkj­unar á árunum 2003–2006.

„Langa myndin byggir í raun á göngu­ferð sem ég fór með þeim og hópi ferða­manna síð­sum­ars 2006, skömmu áður en byrjað var að hleypa vatni á Hálslón,“ segir Ólafur þar sem við sitjum í vor­sól í Berlín, í mann­gerðu lands­lag­inu, og liggur þá bein­ast við að spyrja: Hvernig kemur þetta til?

„Ég vann lengi sem leið­sögu­maður,“ …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Til hvers, til þess að bræða ál? Nei, eyðileggingin er ekki réttlætanleg.
    0
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Gott viðtal og fullt af fróðleik - eins og myndirnar sem sýndar eru í Bíó Paradís! Mæli hiklaust með þeim.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár