Landsbankinn hagnaðist um 7,8 milljarða króna á þremur mánuðum

Hagnaður Lands­bank­ans var 144 pró­sent meiri á fyrsta árs­fjórð­ungi í ár en hann var á sama tíma í fyrra. Vaxta­tekjur hans juk­ust mikið vegna hækk­andi vaxtaum­hverfis og auk­inna umsvifa. Kostn­að­ar­hlut­fall hríð­lækk­aði.

Landsbankinn hagnaðist um 7,8 milljarða króna á þremur mánuðum
Nýjar höf­uð­stöðvar Lands­bank­inn er nú að flytja inn í fram­tíð­ar­hús­næði sitt. Bankinn hefur enn ekki opin­berað hver end­an­legur kostn­aður við þær sé, en Við­skipta­blaðið segir að hann sé á bil­inu 17 til 18 millj­arðar króna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hagnaður Lands­bank­ans, sem er að mestu í eigu íslenska rík­is­ins, á fyrsta árs­fjórð­ungi var 7,8 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar hagn­að­ist bank­inn um 3,2 millj­arða króna á sama tíma­bili 2022. Því jókst hagn­aður Lands­bank­ans á fyrsta árs­fjórð­ungi um 144 pró­sent milli ára.

Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Lands­bank­ans sem birtur var í dag.

Stóra breytan þar er áfram sem áður gagn­virði óskráðra eign­ar­hluta bank­ans, aðal­lega í Eyri Invest hf., en hagn­aður af því gang­virði var tæp­lega 3,3 millj­arðar króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Lands­bank­inn á 14,1 pró­sent í Eyri Invest, sem er langstærsti eig­andi Marel. Mark­aðsvirði Marel jókst um 16 pró­sent frá ára­mótum og út mars­mánuð.

Sú hækkun þurrk­að­ist hins vegar út í dag þegar bréf í félag­inu féllu um rúm­lega 17 pró­sent eftir að Marel birti upp­gjör í gær sem olli von­brigðum, aðal­lega vegna þess að pant­anir hjá félag­inu höfðu dreg­ist umtals­vert saman milli ára. 

Vaxtatekjur í miklum vexti

Hreinar vaxta­tekjur Lands­bank­ans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2023 voru 13,1 millj­arðar króna og var langstærsti hluti veltu bank­ans, sem alls nam 17,3 millj­örðum króna. Vaxta­tekj­urnar voru 27,3 pró­sent hærri en á sama tíma­bili í fyrra. Í upp­gjör­skynn­ingu segir að þetta sé vegna hækk­andi vaxtaum­hverfis og stækkun á efna­hags­reikn­ingi Lands­bank­ans, en útlán bank­ans hafa auk­ist um 160 millj­arða króna á síð­ustu 12 mán­uðum. 

Vaxta­tekj­urnar byggja á mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni. Sá munur kall­ast vaxta­munur. Hann var 2,8 pró­sent hjá Lands­bank­anum á fyrsta árs­fjórð­ungi. Vaxta­munur íslenskra banka er tals­vert meiri en þekk­ist á meðal ann­arra nor­rænna banka, en hann hefur verið lægstur hjá Lands­bank­anum hér­lendis.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands segir að útlána­vöxtur sé enn nokkuð kröft­ugur og skipti þar mestu að útflutn­ings­grein­arnar standa vel en einnig skapar ör fólks­fjölgun eft­ir­spurn eftir hús­næði. „Bankinn fjár­magnar nú um 4.500 íbúðir á mis­mun­andi bygg­ing­ar­stigum en fast­eigna­lán hafa ekki auk­ist að sama skapi þar sem kaup­endur sækja frekar í verð­tryggð lán utan banka­kerf­is­ins. Við munum sem fyrr kapp­kosta að bjóða sam­keppn­is­hæf kjör, bæði á útlánum og inn­lánum.“

Hinn stóri tekju­póst­ur­inn í grunn­rekstri banka eru þókn­ana­tekjur, stundum kall­aðar þjón­ustu­tekjur. Þar er um að ræða þókn­­anir fyrir til dæmis eigna­­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf en líka þau gjöld sem ein­stak­lingar og heim­ili greiða fyrir ýmis konar þjón­ustu sem bank­arnir veita þeim. 

Hreinar þókn­ana­tekjur Lands­bank­ans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins voru rúm­lega þrír millj­arðar króna og juk­ust um 15,5 pró­sent milli ára. 

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 17 millj­arða króna í fyrra, sem var tólf millj­örðum krónum minna en hann hagn­að­ist um árið 2021. Arðsemi eigin fjár Lands­bank­ans á síð­asta ári var 6,3 pró­sent en mark­mið hans er að vera með þá arð­semi yfir tíu pró­sent. Það náð­ist á fyrstu mán­uðum þessa árs þar sem arð­semi eigin fjár var 11,1 pró­sent. 

Kostnaðarhlutfallið hríðlækkar

Kostn­að­ar­hlut­fall Lands­bank­ans, sem mælir hvað kostn­aður er stór hluti af tekj­u­m, hefur hríð­lækkað frá því sem það var í fyrra. á fyrsta árs­fjórð­ungi var það 33,3 pró­sent en hafði verið 46,8 pró­sent á síð­asta ári. 

Lands­bank­inn hóf flutn­inga í nýjar höf­uð­stöðvar sínar við Reykj­ar­stræti 6 í mars. Í til­kynn­ing­unni til Kaup­hall­ar­innar er haft eftir Lilju Björk Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Lands­bank­ans, að þegar flutn­ing­unum lýkur síðar í maí­mán­uði muni um 80 pró­sent af starfs­fólki bank­ans vera undir sama þaki í stað þess að dreifast á 14 hús í Kvosinni og Borg­ar­túni. 

Engar upp­lýs­ingar eru í upp­gjör­inu um hver end­an­legur kostn­aður við bygg­ingu nýju höf­uð­stöðv­anna sé. Stjórn­endur bank­ans vildu heldur ekki gefa upp þann kostnað þegar Heim­ildin leit­aði eftir upp­lýs­ingum um það í síð­asta mán­uði og sögðu það „ótíma­bært“. Síðast þegar áætl­aður kostn­aður var birtur, árið 2019, var gert ráð fyrir að hann yrði 11,9 millj­arðar króna. Í Við­skipta­blað­inu í dag er sagt að kunn­áttu­menn áætli að end­an­legi kostn­að­ur­inn verði á bil­inu 17 til 18 millj­arðar króna.

Í upp­gjör­skynn­ingu Lands­bank­ans er sér­stök áhersla lögð á að bank­inn hafi náð sér í hag­stæða fjár­mögnun á árs­fjórð­ungnum þrátt fyrir erf­iðar aðstæður á mörk­uðum. Hann var til að mynda fyrstur íslenskra banka til að gefa út evr­ópsk sér­tryggð skulda­bréf í úrvals­flokki í erlendri mynd í mars. Sú útgáfa var upp á alls 300 millj­ónir evra, um 44,7 millj­arða króna. Bréfin voru til fimm ára og bera 4,25 pró­sent vexti. 

Þann 17. mars lauk bank­inn við skulda­bréfa­út­boð á nýjum víkj­andi skulda­bréfa­flokki eig­in­fjár­þáttar 2 upp á tólf millj­arða króna. Skulda­bréfin eru verð­tryggð og til tíu ára með 4,95 pró­sent föstum verð­tryggðum vöxtum. 

Eignir Lands­bank­ans voru 1.917 millj­arðar króna í lok mars og efna­hags­reikn­ing­ur­inn stækk­aði um 7,3 pró­sent milli ára. Eigið fé bank­ans var 278,3 millj­arðar króna á sama tíma og eig­in­fjár­hlut­fallið 25,3 pró­sent.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Ólafsson skrifaði
    Vaxtatekjur Landsbankans aukast mikið vegna stýrivaxtahækkana Seðlabankans. Það mun svo verða notað til að réttlæta bónusgreiðslur til stjórnenda Landsbankans - þó þeir hafi ekkert lagt til!
    3
  • skrifaði
    Af hverju er ekki hægt að skattleggja vaxtatekjur bankanna sérstaklega og koma þessum fjármunum aftur til okkar almennings (þar sem þeir eiga heima) með því að stórbæta vaxta- og húsnæðisbótakerfið?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár