Fór með Valgerði Sverris til Úganda og tekur nú fjölskylduna með

Sveinn H. Guð­mars­son, fjöl­miðla­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, mun í lok sum­ars flytj­ast til Úganda til starfa í sendi­ráði Íslands í Kampala. Hann væntir þess að flutn­ing­arnir, sem hugs­aðir eru til nokk­urra ára, verði tals­verð við­brigði fyrir fjöl­skyld­una og sér í lagi börnin tvö, en von­andi góð reynsla sem þau búi að ævi­langt.

Sveinn H. Guð­mars­son, fjöl­miðla­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, lætur brátt af því starfi og mun í lok sum­ars flytj­ast ásamt fjöl­skyldu sinni til Úganda og taka við verk­efna­stjóra­stöðu á sviði tví­hliða þró­un­ar­sam­vinnu í sendi­ráði Íslands þar í landi.

„Þetta er bara hluti af þessum hefð­bundnu flutn­ingum innan utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Ég er búinn að vera í mínu starfi í rúm fimm ár, fyrst sem fjöl­miðla­full­trúi og svo einnig sem deild­ar­stjóri upp­lýs­inga­deildar und­an­farin tvö og hálft ár, og mér fannst kom­inn tími til að breyta til og leita nýrra áskor­ana,“ segir Sveinn í sam­tali við Heim­ild­ina um til­færsl­una í starfi.

Fjöl­skylda Sveins flyst með honum frá Sel­tjarn­ar­nesi til Úganda. „Við erum öll að fara. Við erum hjón með tvö börn sem eru undir tíu ára aldri og fyrir þau verða þetta tals­verð við­brigði en von­andi líka mjög lær­dóms­ríkt og spenn­andi og reynsla sem þau munu búa að alla ævi. Við munum búa í höf­uð­borg­inni Kampala og ég held að það muni fara mjög vel um okkur, ég kvíði því ekki,“ segir Sveinn, sem segir kom­andi breyt­ingar veru­legar, en mjög spenn­andi.

„Ég tek við verk­efna­stjóra­stöðu í sendi­ráð­inu okkar í Úganda á sviði tví­hliða þró­un­ar­sam­vinnu,“ segir Sveinn en Úganda er eitt af þremur  sam­starfs­ríkjum Íslands í tví­hliða þró­un­ar­sam­vinnu, hin tvö eru Malaví og Síerra Leóne. Ísland á í sam­starfi við hér­aðs­yf­ir­völd í þessum ríkjum og segir Sveinn mikið verk hafa verið unnið í tengslum við upp­bygg­ingu inn­viða á borð við skóla, heilsu­gæslu­stöðva, frá­veitu og vatns­veitu, svo eitt­hvað sé nefnt.

Sveinn segir að flutn­ingar af þessu tagi innan utan­rík­is­þjón­ust­unnar séu oft­ast til nokk­urra ára í senn og að reikna megi með að fjöl­skyldan verði í Kampala í um þrjú ár, það sé hefð­bundin lengd. Hann segir að flutn­ing­ur­inn til Úganda hefði að sjálf­sögðu aldrei komið til greina nema fjöl­skyldan stæði þétt að baki honum í þessu. 

Þó að það að fara til Afríku hafi ekki verið aug­ljós­asti kost­ur­inn þá bara hlökkum við til

„Við tókum sam­talið í þessu ferli og þetta fylgir því að starfa í utan­rík­is­þjón­ust­unni, að flutn­ingar á sendi­skrif­stofur erlendis geta komið til greina, þannig að þetta er mögu­leiki sem við höfðum búið okkur undir og gert ráð fyrir. Þó að það að fara til Afríku hafi ekki verið aug­ljós­asti kost­ur­inn þá bara hlökkum við til,“ segir Sveinn.

Hann seg­ist hafa komið einu sinni til Úganda og að sú ferð hafi í raun verið hans fyrstu kynni af utan­rík­is­þjón­ustu Íslands. „Þá var ég frétta­maður á Stöð 2 og fór í ferð sem Val­gerður Sverr­is­dóttir, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, fór í til Úganda að kynna sér þró­un­ar­sam­vinnu­verk­efni Íslands á þeim tíma. Það er athygl­is­vert að öllum þessum árum seinna skuli ég sjálfur vera á leið­inni þangað aftur, ekki sem frétta­maður heldur að fara að flytja þangað. Ég hafði ekki séð þann snún­ing fyrir mér þegar ég fór þarna árið 2007,“ segir Sveinn.

Hann hefur áður starfað erlendis, en árið 2010 starf­aði Sveinn í tæpt ár sem upp­lýs­inga­full­trúi UNICEF í Jemen. „Það var nátt­úr­lega áður en stríðið braust út í Jemen, sem von­andi sér fyrir end­ann á. En ástandið var slæmt í land­inu þá líka. Það hefur verið mjög dap­ur­legt og auð­vitað átak­an­legt að fylgj­ast með því hörmu­lega stríði, þar sem voldug ríki í þessum heims­hluta hafa barist sín á milli og notað Jemen sem víg­völl,“ segir Sveinn, sem hins vegar von­ast til þess að það horfi til betri vegar í sam­skiptum Írans og Sádi-Arabíu eins og teikn eru á lofti um.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár