Listamenn veigri sér við að ýta við fólki

Bára Huld Beck, frétta­rit­ari í Berlín, fer yf­ir menn­ing­ar­um­fjöll­un stóru blað­anna í Þýska­landi.

Listamenn veigri sér við að ýta við fólki

Sáttmáli hans við turninn

Die Zeit: Sein Pakt mit dem Turm

Benjamin von Stuckrad-Barre er þýskur rit­höf­undur og blaða­maður og prýðir for­síðu menn­ing­ar­blaðs­ins þessa vik­una. Beðið hefur verið með eft­ir­vænt­ingu eftir nýj­ustu skáld­sögu hans, Noch wach? eða Enn þá vak­andi? þar sem sögu­maður verður vitni að metoo-til­felli í þýsku fjöl­miðla­veldi. Fram kemur að höf­und­ur­inn hefur verið þekktur fyrir að skrifa um eigið líf og tengja þeir sem lesið hafa sög­una atburða­rás­ina við kæran vin höf­und­ar­ins, Mathias Döpfner, fjöl­miðla­mó­gúl í Þýska­landi. 

Inni í blað­inu er umfjöllun þar sem þeim pæl­ingum er varpað fram hvort lista­menn nú til dags veigri sér við að „hræða“ fólk eða ýta við þeim sam­fé­lags­legu sátt­málum sem borg­ar­arnir hafa sæst á. Höfundur telur að listin eigi ekki að vera bundin neinu sið­ferði. Lista­menn eigi að vera ögrandi og hneyksla. Þá gagn­rýnir hann að frekar sé ein­blínt á það hver fremji list­ina en hvað sé sagt. Hann hvetur lista­menn til að brjót­ast út úr þessum kassa og hætta að vera hræddir við að ögra af ótta við skoð­anir ann­arra. Það sé ein­fald­lega hlut­verk lista­manna að gera það. 

Óvinur nýlenduveldisins

FAZ: Die Nemesis der Kolonialmacht

Á for­síðu menn­ing­ar­blaðs FAZ er umfjöllun um Kasakstan. Landið er í Mið-Asíu en þar úir og grúir af hinum ýmsu þjóð­ernum. Þar er sam­an­safn af Kasökum, Úkra­ínu­mönnum, Þjóð­verjum, Kóreu­mönnum og auð­vitað Rússum. Í grein­inni er talað við fólk sem kalla mætti rúss­neska flótta­menn, fólk sem hefur and­mælt Úkra­ínu­stríð­inu og sér sér ekki fært að búa lengur í heima­land­inu vegna þess.  

Ein þeirra er and­ófs­konan og rit­höf­und­ur­inn Alisu Geniyeva en hún flúði Rússland ásamt eig­in­manni sínum vegna and­stöðu hennar við rúss­nesk yfir­völd. Margir ætt­ingjar hennar slitu öllum sam­skiptum við hana þar sem þeir trúðu áróðri Rússa varð­andi stríðið. Við­mæl­endur furða sig á mörgum löndum sínum og stuðn­ingi þeirra við Pútín. En það er einnig sam­stuð milli Kasaka og Rússa þar sem margir heima­menn telja að Rússar séu hroka­fullir og geri engar til­raunir til dæmis til að læra tungu­málið. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár