1119. spurningaþraut: Meðvituð breikkun á raskati

1119. spurningaþraut: Meðvituð breikkun á raskati

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er gít­ar­hetjan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir íþrótta­fé­lagið á Sauð­ár­króki?

2.  Hvert falla öll vötn?

3.  Hver af eft­ir­töldum bíla­fram­leið­endum heldur EKKI úti kappakst­ursliði í Formúlu 1-keppn­inni: Alfa Romeo — Aston Martin — Ferrari — Mercedes — Volvo?

4.  Hvað sá skessan eftir að hafa borað sig í gegnum heilt fjall með stóra bornum frá föður sínum?

5.  Þjóð­sagan segir að  til­tek­inn Róm­ar­keis­ari hafi spilað á fiðlu meðan Róm brann. Þjóð­sagan er að vísu röng en hvaða keis­ari átti þetta að hafa verið?

6.  Hvernig dýr er chihuahua?

7.  Hvað hét „kropp­in­bak­ur­inn í Notre Dame“?

8.  Íslenskt ljóð­skáld lést aðeins 57 ára árið 1994. Skáldið var þekkt fyrir heldur hrá­slaga­legan lífs­stíl og hryss­ings­leg ljóð, sem birt­ust til dæmis í bókum eins og Meðvituð breikkun á raskati. Hvað hét skáldið?

9.  Árið 1994 lést líka banda­rískt skáld sem þekkt var fyrir hrá­slaga­legan lífs­stíl og hryss­ings­leg ljóð, en banda­ríska skáldið náði að vísu 73 ára aldri. Skáldið skrif­aði nokkrar skáld­sögur þar sem lýst er miklum drykkju­skap aðal­per­són­unnar og náði kannski mestum ver­ald­legum frama þegar gerð var all­fræg kvik­mynd eftir hand­riti skálds­ins. Myndin var gerð 1987  og hét Barfly. Hvað hét skáldið?

10.  Aðal­hlut­verk í Barfly lék ungur og nokkuð óheflaður leik­ari sem þá bar nokkuð á. Hann lék t.d. líka í mynd­inni Angel Heart. Leik­ar­inn hvarf svo úr sviðs­ljós­inu all­lengi og mun víst aðal­lega hafa stundað hnefa­leika á þeim árum. Eftir það tíma­bil þótti hann svo þrút­inn og bólg­inn í framan að hann var nærri óþekkj­an­legur. Hvað heitir hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða lista­maður skóp mál­verkið það arna?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tinda­stóll.

2.  Til Dýra­fjarðar.

3.  Volvo.

4.  Sólina.

5.  Nero.

6.  Hundur.

7.  Quasimodo.

8.  Dagur Sig­urð­ar­son.

9.  Bukowski.

10.  Mickey Rourke.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Jimmy Page, gít­ar­leik­ari Led Zeppelin. Myndina tók Terry O'Neill.

Á neðri mynd­inni er verk eftir Roy Lichtenstein.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár